Mosfellingur - 08.06.2023, Síða 12
- Frítt, frjáls og óháð bæjarblað12
Verkið fellst í smíði tveggja 12 íbúða fjölbýlishúsa á tveimur
hæðum við Úugötu Mosfellsbæ.
Um er að ræða alverktöku þar sem verktaki tekur þátt í
hönnunarferli og skilar fullbúnu húsi ásamt lóð á föstu verði.
Bjarg leggur til lóð undir húsið
Áhugasamir verktakar sendi póst á throstur@bjargibudafelag til
að fá nánari gögn og upplýsingar.
Bjarg íbúðafélag er sjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB og er rekin án
hagnaðarmarkmiða. Félaginu er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum á
vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.
BJARG ÍBÚÐAFÉLAG ÓSKAR EFTIR
SAMSTARFSAÐILUM TIL AÐ SJÁ UM
BYGGINGU HAGKVÆMRA LEIGUÍBÚÐA Í
MOSFELLSBÆ
Golfmótið Palla Open fer fram um helg-
ina á Hlíðavelli, þriðja árið í röð. Líkt og
áður standa Palli Líndal og Golfklúbbur
Mosfellsbæjar fyrir mótinu í samvinnu við
Reykjadal.
„Ætli mótið sé ekki komið til að vera,
þessar upphæðir sem hafa safnast bæði í
gegnum mótsgjöldin og frjáls framlög hafa
nýst vel bæði í Reykjadal og til styrktar
Hlaðgerðarkoti og það er alltaf jafn gaman
að skipuleggja þetta. Það hefur verið upp-
bókað í mótið síðustu tvö ár og stefnir í það
sama núna,“ segir Palli Líndal, sem mótið
er kennt við.
„Við höldum í hefðina og spilum bæði
tveggja manna og fjögurra manna Texas.
Síðast þegar ég vissi voru 206 manns skráðir
svo það eru nokkur laus pláss ennþá.“
Í ár er stefnt að því að upphæðin sem
safnast nýtist til að styðja við fjölskyldur
langveikra barna í bænum og til að byggja
nýja búningsaðstöðu í Reykjadal sem er
sérsniðin að þörfum barna og ungmenna
sem þangað sækja.
Byggja upp nýja búningaaðstöðu
Andrea Rói Sigurbjörns forstöðumaður
Reykjadals þakkar stuðninginn innilega.
„Reykjadalur í Mosfellsdal eru sumarbúðir
fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum
8-21 árs og hingað koma árlega um 250
gestir.
Við erum mjög spennt fyrir því að geta
loksins farið í umbætur á sturtuklefunum í
sumarbúðunum. Það er þörf á þriðja klef-
anum hér í Reykjadal sem væri þá einstakl-
ingsklefi fyrir sundlaugina okkar, klefinn
myndi nýtast vel fyrir þau sem passa ekki í
kvenna- og karlaklefann vegna kynvitundar
eða kjósa að fá meiri næði við fataskipti.
Mesta stemningin myndast í sundlaug-
inni og hún er notuð oft á dag af sumum
í hópi gestanna okkar. Einnig enda allir
leynigestirnir okkar í lauginni sem er oft
hápunktur kvöldvökunnar. Við í Reykjadal
ætlum að mæta á mótið og hvetjum öll sem
hafa áhuga til að taka þátt.“
Stefnir í frábæran dag 10. júní
Golfklúbbur Mosfellsbæjar tekur engin
gjöld vegna mótsins og því rennur móts-
gjaldið óskipt í söfnunina. „Við hjá GM
erum stolt af því að standa fyrir verkefni
eins og þessu og það er gaman að sjá áhug-
ann ár eftir ár,“ segir Ágúst Jensson fram-
kvæmdastjóri GM og bætir við að þátttaka í
verkefni sem þessu sé liður í samfélagslegri
ábyrgð klúbbsins.
„Síðan verður hér bæði verðlaunaaf-
hending og ball um kvöldið svo það stefnir
í frábæran dag á Hlíðavelli.“
Skráning á mótið fer fram á
golfboxinu og er opin til og með 10.
júní. Einnig er hægt að leggja málefninu
lið með frjálsum framlögum á reikning
116-26-329 kennitölu 650581-0329.
Safnað fyrir Reykjadal og fjölskyldur langveikra barna
Palla Open mótið
komið til að vera
góðgerðargolfmótið
haldið í þriðja sinn í ár