Mosfellingur - 08.06.2023, Blaðsíða 42
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar42
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
...fylgstu med okkur
www.facebook.com/mosfellingur
aTHYgli
Við fórum hjónin í kaupstaðarferð
í síðustu viku. Fórum út að borða
og í leikhús. Níu líf var mögnuð upp-
lifun. Halldóra Geirharðs var sem
andsetin og það var fallegt og sterkt
að fá að syngja með okkar eigin Halla
Ásgeirs og systkinum hans á sama
degi og móðir þeirra kvaddi.
Það vakti athygli okkar í þessari
stuttu en góðu ferð hvað við
mannfólkið erum orðin miklir
símaþrælar. Pör saman úti að borða,
annað eða bæði í símanum. Á
leiksvæðinu voru krakkar að leika
sér, foreldrarnir hoknir yfir símanum
á meðan. Fyrir framan okkur í
leikhúsinu, sátu foreldrar með ungl-
ingsdóttur. Mamman lagði kapal í
símanum á meðan hún beið eftir að
sýningin byrjaði, rétt náði að slökkva
áður en Dóra æddi inn á sviðið. Reif
svo strax upp símann þegar hléið
kom og hélt áfram með kapalinn al-
veg þangað til sýningin byrjaði aftur.
Dóttirin vafraði í gegnum Instagram
í sínum síma. Pabbinn horfði fyrst
aðeins út í loftið en fór svo að senda
einhverjum einhver skilaboð. Á leið-
inni í höfuðstaðinn sáum við marga
bílstjóra rífa upp símann á ljósum,
nýta tímann, og auðvitað marga
líka vesenast eitthvað í símanum á
meðan þeir keyrðu.
Það er ekki aftur snúið með
símana. Þeir dekka svo stóran
hluta af lífinu og athöfnum okkar
í dag. Samskipti, upplýsingaöflun,
skipulag, tungumálanám, banka-
viðskipti, fréttir, afreying, myndavél,
upptökutæki – allt þetta og miklu
meira til er í símanum okkar.
En við getum sjálf tekið okkur
taki. Hætt vera uppvakningar
og þrælar. Hætt að láta þetta
brjálæðislega öfluga apparat stýra
lífi okkar í staðinn fyrir að nýta það
til þess góða sem það býður upp á.
Hætt að leggja símakapla, skrolla í
gegnum Instagram
og senda skilaboð
þegar við höfum
tekið frá tíma til að
njóta samveru og
alvöru upplifana
sem gefa okkur
svo miklu meira.
Verið lifandi, með
athygli.
SUMARMESSUR
Í Mosfellsbæ, Kjós
og Kjalarnesi
4. júní
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir
guðfræðingur leiðir stundina
11. júní
17:00
Ilmolíu-messa í Brautarholtskirkju
Sr. Arna Grétarsdóttir
17. júní
11:00
Guðsþjónusta með þátttöku
skáta í Lágafellskirkju
Sr. Henning Emil Magnússon
18. júní
11:00
Útvarpsguðsþjónusta í
Reynivallakirkju
Sr. Arna Grétarsdóttir
25. júní
14:00
Helgistund við útialtarið
við Esjuberg
Sr. Arna Grétarsdóttir
og Sr. Henning Emil Magnússon
2. júlí
18:00
Ganga frá Lágafellskirkju
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Sr. Henning Emil Magnússon
9. júlí
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Sr. Henning Emil Magnússon
16. júlí
13:00
Sumarmessa í Saurbæjarkirkju
á Kjalarnesi
Sr. Arna Grétarsdóttir
20.–23. júlí
09:00
Pílagrímaganga: Reynivellir –
Þingvellir – Skálholt
23. júlí
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Sr. Arndís Linn
30. júlí
20:00
Kvöldmessa í Mosfellskirkju
Sr. Arndís Linn
6. ágúst
14:00
Hesta- og útivistarmessa
í Reynivallakirkju
Sr. Arna Grétarsdóttir
13. ágúst
18:00
Ganga frá Lágafellskirkju
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Sr. Arndís Linn
20. ágúst
20:00
Kvöldmessa í Lágafellskirkju
Sr. Henning Emil Magnússon
27. ágúst
18:00
Kyrrðarbæn í Mosfellskirkju
20:00
Kvöldmessa í Mosfellskirkju
Sr. Henning Emil Magnússon
Nánari upplýsingar má finna á Facebook síðunni:
Sumarmessur í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós.
Sumarmessurnar eru samstarfsverkefni kirknanna
í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós.