Mosfellingur - 06.07.2023, Blaðsíða 14
- Frítt, frjálst og óháð bæjarblað14
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Laus störf
í Mosfellsbæ
Öll laus störf hjá Mosfellsbæ
og stofnunum má sjá og sækja
um á ráðningarvef bæjarins:
www.mos.is/storf
Hlein er hjúkrunarsambýli sem staðsett er
við Reykjalund. Hlein er heimili fyrir ein-
staklinga sem hafa flóknar þjónustuþarfir,
bæði andlega og líkamlega.
Íbúar Hleinar hafa allir hlotið varanlegan
skaða af völdum sjúkdóma eða slysa sem
leitt hefur til verulegrar skerðingar á hæfni
þeirra til að sinna daglegum þörfum. Um
sjö íbúa er að ræða sem eru háðir aðstoð
allan sólarhringinn.
Nú hefur verið ákveðið að stofna Holl-
vinasamtök Hleinar og fer stofnfundur
fram á Hlein þriðjudaginn 11. júlí kl. 16:30.
Tilgangur félagsins verður að styðja við
bakið á starfseminni á Hlein í samvinnu við
stjórnendur og starfsfólk Hleinar og Reykja-
lundar. Meðal annars verður það gert með
viðburðahaldi fyrir íbúa og gjöfum.
Allir eru velkomnir á stofnfundinn og
öllum er velkomið að gerast félagar í Holl-
vinasamtökum Hleinar.
Þeim sem hafa áhuga á að ganga í Holl-
vinasamtökin er bent á að hafa samband við
Anný Láru Emilsdóttur framkvæmdastjóra
Hleinar í gegnum annylara@reykjalundur.is
eða í síma 585 2029 á dagvinnutíma.
Stofnfundur 11. júlí • Styðja við starfsemina á Hlein
Stofna Hollvinasamtök
starfsfólk frá össuri
í góðgerðarheimsókn
Skemmtilegt starfsár er að baki hjá Lions-
klúbbnum Úu Mosfellsbæ.
Fundir eru að jafnaði einu sinni í mánuði
og er þá fundið upp á ýmsu til gamans og
meðal annars fengnir fyrirlesarar til að gera
fundina áhugaverða. Margt annað er gert
sér til skemmtunar eins og heimsóknir í
fyrirtæki, gönguferðir og kaffihúsaspjall.
Lokafundurinn var haldinn í maí og eftir
óvissuferð var snætt á skemmtilegum veit-
ingastað á Hólmsheiði.
Lionsklúbbar eru sjálfboðaliðasamtök
Stjórnarskipti fóru fram á Blik í lok
júní og matnum þar gerð góð skil ásamt
skemmtilegu spjalli. Lionsklúbbar eru
sjálfboðasamtök sem láta gott af sér leiða.
Fyrir jólin var afhentur styrkur til hjálp-
arsjóðs kirkjunnar. Það var gert á hátíðlegri
stund í Lágafellskirkju ásamt Lionsklúbbi
Mosfellsbæjar.
Í lok starfsársins afhenti Lionsklúbbur-
inn Úa tvær rafloftdýnur á hjúkrunarheim-
ilið Hamra í Mosfellsbæ. Það eru dýnur
með lofti sem hreyfist og eru notaðar til að
sjúklingar fái síður legusár. Jafnvel talað um
þriðju vaktina þar sem þær eru notaðar.
Munurinn er svo mikill. Er það von klúbb-
félaga að þær komi að góðum notum.
Eftir sumarfrí í júlí verður tekið til óspillt-
ara mála í ágúst en fundir byrja síðan í
september.
Gáfu rafloftdýnur á hjúkrunarheimilið Hamra á dögunum
Öflug starfsemi hjá
Lionsklúbbnum Úu
félagar með fjólu
forstöðumanni
og finni íbúa
Ný stjórn Úu Dagný gjaldkeri, Halldóra ritari og
Sigríður formaður.