Mosfellingur - 06.07.2023, Page 32
Leirvogstunga 27, 270 Mosfellsbæ, sími: 864 6600
Gólfefna lausnir
fyrir heimili
og fyrirtæki
www.bmarkan.is
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími8933022
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími8933022
GERÐ AÐALUPPDRÁTTA
VERKEFNA– OG
BYGGINGASTJÓRNUN
HAGKVÆMISATHUGANIR OG
ÁÆTLUNAGERÐ
UMSJÓN FRAMKVÆMDA
ÁSTANDSKOÐUN FASTEIGNA
WWW.TOGT.IS
togt@togt.is
sími 893 3022
Þverholti 3 - Sími: 566-6612
FÓTAAÐGERÐASTOFA
MOSFELLSBÆJAR
Þjónusta við mosfellinga
- Aðsendar greinar32
Smiðjuvegi 60 (rauð gata) Kópavogi - Sími 557 2540
Útboð leikskóla
í Helgafellshverfi
Eftir árstafir hefur loksins
verið ákveðið að bjóða út bygg-
ingu leikskólans í Helgafelli.
Það stóð til að gera það fyrir
ári síðan en þá ákvað meiri-
hlutinn að fresta því og setja
á fót starfshóp. Bæjarfulltrúar
D-lista lögðu ítrekað fram til-
lögu um að bjóða bygginguna
út strax því annars myndi
kostnaður hækka verulega.
Niðurstaða starfshópsins var
svo sú að bjóða út byggingu
leikskólans og var þar lægsta
boð um 30% yfir uppfærðri og
hækkaðri kostnaðaráætlun og
hefur því kostnaðurinn hækkað um hundruð
milljóna króna. Inni í þeirri upphæð er þó ekki
kostnaður við útboð á stoðveggjum á lóðinni
sem var hluti af verkinu en meirihlutinn tók þá
sérstöku ákvörðun að bjóða það sérstaklega út 2
vikum fyrir útboð á byggingu hússins.
Þessi niðurstaða er ekki góð fyrir skattgreið-
endur í Mosfellsbæ.
Resktur Hlégarðs
Starfsemi í Hlégarði er nú komin vel af stað
eftir bæði heimsfaraldur og gagngerar endur-
bætur innanhúss undanfarin ár. Meirihlutinn
ákvað í síðustu viku eftir margra mánaða tafir
að stofnað yrði B hlutafélag í eigu Mosfells-
bæjar um reksturinn. Búið var að ráða öflugan
viðburðarstjóra sem mun sjá um að fjölbreytt
menning muni blómstra í húsinu.
Það sem vekur furðu í málinu er að meirihlut-
inn ákvað að Mosfellsbær myndi sjá um vínveit-
ingasölu í Hlégarði í stað þess að bjóða þann þátt
út eins og gert er nánast undantekningarlaust
með sambærilega starfsemi. Lýðheilsubærinn
Mosfellsbær er þar með kominn í samkeppni við
einkaaðila í veitingarekstri í bænum, þar með
talið í sölu á áfengi.
Bæjarstjórinn er þannig orðinn ábyrgur ef
eitthvað fer úrskeiðis varðandi vínveitingasölu
á viðburðum í Hlégarði. Það verður athyglisvert
að sjá hvað G&T eða bjór muni kosta á barnum.
Ætli það verði happy hour? … svo tala oddvitar
meirihlutans fallega um að styðja við atvinnulíf
í Mosfellsbæ. Þetta er ekki vönduð stjórnsýsla.
Fulltrúar D-lista lögðu fram tillögu um að út-
vista veitingarekstri til einkaðila en sú tillaga
var felld.
Fjárhags- og tekjuáætlun
Við gerð síðustu fjárhagsá-
ætlunar bentu fulltrúar D-lista
ítrekað á að tekjuhlið áætlun-
arinnar væri vanáætluð og þá
sérstaklega þegar kæmi að
tekjum varðandi lóðasölu og
byggingarréttargjöld.
Í nýrri uppfærðri tekjuspá
til loka árs 2023 sem var birt
nú um miðjan júní, kom svo
á daginn að tekjur bæjarins
verða mun hærri en reiknað
var með, í samræmi við það
sem bent hafði verið á. Það er
auðvitað mjög jákvætt.
Það sem vakti mesta athygli
er að tekjur af lóðasölu sem
voru áætlaðar 500 milljónir verða a.m.k. 1.700
milljónir þannig að þar munar 1.200 milljónum.
Þetta var nokkuð ljóst við gerð fjárhagsáætlunar
en það má velta fyrir sér hvort ástæða þessara
vanáætlana gæti verið sú að það hafi verið þægi-
legra fyrir meirihlutann að afsaka sögulegar
skattahækkanir á húsnæði o.fl. með því að hafa
tekjuáætlunina lága.
Áætlanir hjá Mosfellsbæ hafa staðist með
ótrúlegri nákvæmni undanfarin ár en það virð-
ist nú vera úr sögunni.
Svið fyrir viðburði í Álafosskvos
Á síðasta fundi bæjarráðs lögðu fulltrúar D-
lista fram tillögu um að Handverkshúsið Ásgarð-
ur og Mosfellsbær tækju höndum saman um
byggingu viðburðasviðs við áhorfendabrekku í
Álafosskvos.
Tillagan gerir ráð fyrir að sviðið verði úr eins
umhverfisvænum hráefnum og kostur er og yrði
sviðið í anda verka Ásgarðsmanna sem hafa
komið að ýmsum verkefnum í Mosfellsbæ og
víðar undanfarin ár.
Með tilkomu sviðs í Álafosskvos gefst enn
betra tækifæri fyrir fjölbreytta viðburði og
menningu í Kvosinni.
Tillögunni var vísað til áframhaldandi vinnslu
innan stjórnsýslu Mosfellsbæjar og mun þá um-
hverfissvið Mosfellsbæjar væntanlega koma að
málinu. Vonandi getur orðið af þessu samstarfi
og að reist verði svið við Álafosskvos sem fyrst.
Ásgeir Sveinsson, Jana Katrín Knútsdóttir,
Rúnar Bragi Guðlaugsson og Helga Jóhannesdóttir,
bæjarfulltrúar D-lista
Af bæjarstjórnarmálum
er þetta helst
100%GÆÐI
HREINT KJÖT
•EN
G
IN
V IÐBÆTT AUKAEF
N
I
•
GRENSÁSVEGI 48 - REYKJAVÍK
SUNNUKRIKA 3 - MOSFELLSBÆ
FÁÐU RÁÐLEGGINGAR
HJÁ FAGMÖNNUM
GRILLA
Í KVÖLD?