Verzlunartíðindi - 01.12.1950, Síða 6

Verzlunartíðindi - 01.12.1950, Síða 6
VEFNAÐARVÖRUKAUP FRÁ SPÁNI Árin 1934 og 1935 var vefnaðarvörukaupum Is- lending-a í fyrsta sinni beint til Spánar. Þessi ár máttu heita lok þess tímabils, er þorra vefnaðar- vörukaupmanna var gert kleift að kaupa vörur sínar beint frá útlöndum, eins og margir þeirra höfðu gert um langt árabil. — Síðan tóku við kreppuárin fyrir heimsstyrjöldina, þá Ameríkuvið- skiptin og loks skipting innflutningsleyfa á ýms lönd, sitt á hvað og nú ennþá aftur á Spán, svo sem var fyrir 15—16 árum, eins og fyrr segir. — Ég fór til Spánar þegar vefnaðarvörukaupum var beint þangað í fyrra skiptið og því fýsti mig að heimsækja fornar slóðir að nýju og dvaldi þar um hálfsmánaðar skeið nú í október. Ekki þarf að lýsa því hér, hve mikill skortur er nú á vefnaðarvöru og fatnaði á íslandi. Vefnaðar- vöruleyfin, sem gefin voru út á Spán síðla sumars, giltu eingöngu metravöru, innrifatnað og sokka og var kaupmönnum ljóst, að af þessum vörufl. er skorturinn á baðmullarvöru tilfinnanlegastur. — Þess vegna munu flestir hafa haft hug á því að kaupa baðmullarvöru út á leyfi sín, fyrst og fremst, en láta gerviullarvöruna heldur sitja á hakanum. — En fljótlega kom í ljós,að ómögulegt mundi vera að fá baðmullarvöru út á íslenzku clearingleyfin á Spán. — Nú í haust hafa þó nokkrir íslenzkir kaup- sýslumenn lagt leið sína til Spánar, til þess að kaupa vefnaðarvörur. — Vafalaust hefur hver þeirra reynt allt, sem hægt var, til þess að fá baðm- ullarvöru. — Þetta hefur þó ekki tekizt. — Spánverjar hafa að vísu alveg nýlega heimilað útflutning baðmull- arvöru til íslands í clearingviðskiptum en með þeim afarkostum, að sama er og neitun. — Sannleikurinn er sá, að enda þótt allar búðir séu fullar af vörum frá Spáni, eins og raunar alls stað- ar virðist vera nema á íslandi, þá hafa Spánverjar allt of lítið af baðmullarvöru, enda verða þeir að flytja allt hráefnið inn til landsins. vinnulífsins á fyrirstríðsárunum, og verja þeim til stórkostlegri fjárfestingarframkvæmda en dæmi eru til um hér á landi. Hið gífurlega háa verðlag innanlands, vöruskorturinn, sem nú ríkir, og allar hinar svörtu hliðar hans eru þannig bein afleiðing þeirrar stefnu í viðskiptamálunum, sem nú hefur í megindráttum verið fylgt um nær tuttugu ára skeið. Svo mætti virðast, sem nú væri nóg að gert, og einlægur vilji fyrir hendi til þess að forða þjóðinni frá frekari afleiðingum verzlunarófrelsisins. Hin dýrkeypta reynsla af viðskiptahömlunum ætti að hafa sannfært þjóðina um, hvílík bölvun hlýtur af þeim að leiða. Myndi það koma enn betur í ljós, ef saga þeirra væri ýtarlegar rakin en gert verður í stuttri blaðagrein. Því skal ekki neitað, að það er hægar sagt en gert að skera fyrir öll þau mörgu mein, sem óáreitt hafa fengið að grafa um sig í at- vinnu- og viðskiptalífi þjóðarinnar og eiga rætur sínar að rekja til afleiðinga verzlunarhaftanna. En hitt er jafn víst, að fyrr eða síðar verður þjóðin að horfast í augu við sársaukann af slíkum aðgerð- um. Afleiðingar þess að skjóta slíku á frest geta í bezta lagi orðið til þess að átakið verði jafn erfitt og það þyrfti að vera í dag, hitt er þó allra líkleg- ast, að enn lengra muni síga á ógæfuhliðina með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Slíkt eru engar hrakspár, aðeins nauðsynlegt raunsæi, mótað af fenginni reynslu í þessum efnum. í þessu sambandi má geta þess, að Samband smá- söluverzlana og framkvæmdastjórar þriggja stærstu kaupfélaga landsins hafa með bréfi dags. 7. október beint eindregnum tillögum til rík- isstjórnarinnar um að afnema innflutningshöft- in og gefa innflutninginn frjálsan. Þessa myndi ekki vera getið hér, ef um það væri að ræða að málið snerti verzlunarstéttina öðrum fremur. Held- ur ekki er verið að telja umræddum aðilum það neitt til gildis, þó að þau hafi látið af því verða að koma slíkum tillögum á framfæri. Hér er um að ræða mál, sem snertir alla þjóðarheildina, og það er skylda hvers og eins, sem trúir á gildi frjálsrar verzlunar, að láta einskis ófreistað til þess að leiða málstað hennar fram til sigurs. Gunnar Vagnsson. 4 VERZLUNARTÍÐINDIN

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.