Austurland - 26.04.2018, Blaðsíða 6

Austurland - 26.04.2018, Blaðsíða 6
6 26. apríl 2018 FLJÓTSDALSHÉRAÐ: Bæjarfulltrúarnir Stefán Bogi Sveinsson og Gunnhildur Ingv- arsdóttir skipa tvö efstu sæti framboðslista Framsóknarflokksins á Fljótsdalshéraði fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar í vor en þriðja sætið skip- ar Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi, ráðunautur og formaður Félags sauð- fjárbænda á Héraði og Fjörðum. Flokkurinn hefur í dag þrjá full- trúa í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs en situr í minnihluta. Listann skipa alls 8 konur og 10 karlar, en þegar horft er til efstu 8 sætanna skipa þau 5 konur og 3 karl- ar. Meðalaldur frambjóðenda er 44 ár en tæplega 63 árum munar á yngsta frambjóðanda, Aðalheiði Björtu sem skipar fjórða sæti, og Guðmundi Þor- leifssyni sem vermir heiðurssæti list- ans, það átjánda. Aðalheiður og Guð- mundur voru bæði í framboði fyrir síðustu kosningar einnig og tóku bæði sæti á bæjarstjórnarfundum á kjör- tímabilinu í forföllum aðalmanna, að því er fram kemur í tilkynningu. Oddviti listans, Stefán Bogi segist vera mjög sáttur við hvernig listinn er saman settur og líka hvernig gekk að ná honum saman. „Á honum er fólk með reynslu en einnig nýliðar sem hafa gefið kost á sér og komið með nýjar og góðar hugmyndir inn í mál- efnavinnuna. Margt yngra fólk og líka margar konur í áberandi sætum og því ber að fagna. Þetta eru hópar sem talað hefur verið um að sé erfiðara að fá til starfa í sveitarstjórnarmálin, en því er ekki að heilsa hjá okkur.“ Eftirtaldir skipa framboðslista Framsóknar á Fljótsdalshéraði: Framboðslisti Framsóknar og óháðra FJARÐABYGGÐ: Bæjarfulltrúarnir Jón Björn Hákonarson, Pálína Mar- geirsdóttir og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir skipa efstu sæti lista Framsóknarflokks og óháðra í Fjarða- byggð. Jón Björn Hákonarson, oddviti listans og ritari Framsóknarflokksins, segir í tilkynningu vera afar þakklátur og stoltur af því að fá að leiða listann til kosninga í sameinuðu sveitarfélagi. „Mér er efst í huga þakklæti fyrir það traust sem mér er sýnt að fá að leiða lista frambjóðenda Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnar- kosningum í okkar góða sveitarfélagi. Styrkleikar Fjarðabyggðar eru fjölbreytileiki sveitarfélagsins á öll- um sviðum, sterkt atvinnulíf og fjöl- skylduvænt samfélag sem við þurfum að hlúa að og efla enn frekar. Þá er ég mjög ánægður með að á listanum sitja frambjóðendur úr öll- um sjö byggðarkjörnum Fjarðabyggð- ar með fjölbreytta reynslu sem vilja leggja hönd á plóg og vinna að því að gera gott samfélag enn betra“. Flokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna í síðustu kosningum. Eftirtaldin skipa framboðslista Framsóknar og óháðra í Fjarðabyggð: 1. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjar- stjórnar, Neskaupstað. 2. Pálína Margeirsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari hjá HSA, Reyðarfirði. 3. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari, Fáskrúðsfirði. 4. Jón Kristinn Arngrímsson, matráður, Reyðarfirði. 5. Ívar Dan Arnarson, vélstjóri, Reyðarfirði. 6. Ingólfur Finnsson, bifvélavirki, Breið- dalsvík. 7. Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, húsmóð- ir, Eskifirði. 8. Bjarni Stefán Vilhjálmsson, verkstjóri, Stöðvarfirði. 9. Elva Bára Indriðadóttir, leiðbeinandi, Breiðdalsvík. 10. Sigfús Vilhjálmsson, útvegsbóndi, Mjóafirði. 11. Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, for- stöðumaður, Fáskrúðsfirði. 12. Bjarki Ingason, framleiðslustarfs- maður og nemi, Neskaupstað. 13. Gunnlaugur Ingólfsson, bóndi, Breiðdalsvík. 14. Elsa Guðjónsdóttir, sundlaugarvörð- ur, Fáskrúðsfirði. 15. Þórhallur Árnason, varðstjóri, Eskifirði. 16. Svanhvít Aradóttir, þroskaþjálfi, Neskaupstað. 17. Sævar Arngrímsson, skipuleggjandi viðhalds, Eskifirði. 18. B. Guðmundur Bjarnason, verkstjóri, Reyðarfirði 1. Stefán Bogi Sveinsson, 37 ára, lögfræðingur og bæjarfulltrúi 2. Gunnhildur Ingvarsdóttir, 65 ára, fjármálastjóri og bæjarfulltrúi 3. Guðfinna Harpa Árnadóttir, 36 ára, bóndi og ráðunautur 4. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, 23 ára, búfræðingur og varabæjarfulltrúi 5. Benedikt Hlíðar Stefánsson, 44 ára, vélatæknifræðingur 6. Jónína Brynjólfsdóttir, 38 ára, verkefnastjóri 7. Alda Ósk Harðardóttir, 36 ára, snyrtifræðimeistari 8. Einar Tómas Björnsson, 26 ára, framleiðslustarfsmaður 9. Jón Björgvin Vernharðsson, 37 ára, bóndi og verktaki 10. Ásgrímur Ásgrímsson, 51 árs, öryggisstjóri 11. Guðrún Ásta Friðbertsdóttir, 32 ára, leikskólakennari 12. Björn Hallur Gunnarsson, 48 ára, verktaki 13. Valgeir Sveinn Eyþórsson, 23 ára, nemi 14. Ásdís Helga Bjarnadóttir, 49 ára, verkefnastjóri 15. Guðmundur Björnsson Hafþórsson, 42 ára, málarameistari og sölumaður 16. Magnús Karlsson, 65 ára, bóndi 17. Sólrún Hauksdóttir, 58 ára, ofuramma og bóndi 18. Guðmundur Þorleifsson, 86 ára, heldri borgari Gengið hefur verið frá ráðn- ingu Christoph Merschbrock sem verkefnastjóra Háskóla- seturs Austfjarða. Christoph kemur til starfa 1. ágúst næstkomandi. Christoph er fæddur í Þýskalandi og lauk Dipl.-Ing. í byggingartækni- fræði frá Hochschule Ostwestfalen- Lippe þar í landi og meistaragráðu í byggingaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Auk þess hefur hann lokið doktorsgráðu í upplýsingakerfum frá Háskólanum í Agder í Noregi. Christoph er lektor hjá Háskólanum í Jönköping í Svíþjóð en þar áður var hann lektor hjá Oslo and Akershus Uni- versity College. Christoph hefur starfað sem tæknimaður og verkefnastjóri hjá Ístaki á árunum 2005-2010. Auk þess að hafa reynslu frá há- skólaumhverfinu í Noregi og Svíþjóð þá hefur hann stundað nám á Íslandi og í Þýskalandi. Samhliða starfi sínu sem verkefnastjóri Háskólaseturs Austfjarða mun Christoph sinna rannsóknarstörfum og kennslu við Jönköping háskólann í Svíþjóð. Samkvæmt auglýsingu er verk- efnastjóranum ætlað að greina þörf á há- skólasetri á Austurlandi og leiða mótun framtíðarsýnar fyrir svæðisbundna há- skólamenntun. Verkefnastjórinn annast einnig einnig daglegan rekstur á verkefn- um vegna uppbyggingar háskólasetursins. „Christoph hefur mjög góða menntun sem nýtist einkar vel í starfinu ásamt því að hafa þekkingu og reynslu af evrópsku háskólaumhverfi. Þá er reynsla og þekking hans af kennslu, fræði- og rannsóknarstörfum mikilvæg verkefn- inu ásamt þeirri reynslu sem Christoph hefur af verkefnastjórnun. Fyrir hönd stýrihópsins bíð ég Christoph hjartan- lega velkominn til starfa við að koma háskólasetri Austfirðinga á fót,“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjar- stjóri Fjarðabyggðar í tilkynningu. Verkefnastjóri Háskólaseturs ráðinn Eitthvað nýtt, geymdu bílinn frítt ! TAKTU FORSKOT Á SÆLUNA! Ertu á leið í morgunflug? Forðastu himinhá geymslugjöld á bílnum! Svefninn er dýrmætur. Byrjaðu fríið degi fyrr og gistu á Base kvöldið fyrir flug. Sofðu lengur, geymdu bílinn frítt og fáðu skutl á völlinn, tekur 5 mín. Þetta er tilboð, bara fyrir snillinga ! Á Base er alltaf Happy Hour á barnum, og Gæðakaffi á könnunni. Það er bara basic! Njóttu notalegrar stemningar og skoðaðu eitt flottasta nýlistasafn Íslands í leiðinni. ALLT INNIFALIÐ: Frá 6900 í eigið herbergi. Morgunverður Frá Basic Double til Comfort Suite. Skutla á flugvöllinn og til baka Hafðu samband í tölvupóst eða síma til að Geymsla á bíl bóka: basehotel@basehotel.is/ 519 1300

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.