Austurland - 26.04.2018, Blaðsíða 9

Austurland - 26.04.2018, Blaðsíða 9
9 26. apríl 2018 Steinar Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri rekstrar- félags Hattar á Egilsstöðum, skipar 1. sæti á lista Samtaka félags- hyggjufólks á Fljótsdalshéraði – Hér- aðslista í komandi sveitarstjórnar- kosningum. Steinar segir ungu fólki vel treystandi til að standa í brúnni. Mikil endurnýjun er á listan- um sem kynntur var í vikunni. Auk Steinars eru þar tíu nýliðar á sviði sveitarstjórnarmála og sérstaka athygli vekur fjöldi ungs fólks. Það liggur því beinast við að spyrja Steinar Inga, sem er 35 ára gamall, hvort hann sé reiðu- búinn að axla þá ábyrgð sem því fylgir að leiða og stýra heilu sveitarfélagi. „Heldur betur! Það er kominn tími til þess að ungt fólk láti til sín taka í auknum mæli í sveitarstjórnar- málum hér á Héraði. Það er mikil að- sókn af ungu fjölskyldufólki í sveitar- félagið, sem er virkilega jákvætt, og mig langar að þròa og betrumbæta sveitarfèlagið enn frekar. Ég er með gríðarlega góðan hóp með mér sem hefur víðtæka reynslu hvaðanæva að úr samfélaginu. Málefnavinnan hefur gengið mjög vel og er ég mjög spenntur að fylgja þeim góðu mál- um eftir sem við höfum á stefnuskrá okkar.” Nú leit út fyrir að Héraðslistinn myndi ekki bjóða fram fyrir fáeinum vikum, hvað breyttist? Ég held að félagshyggjufólki á Fljóts- dalshéraði hafi fundist það mjög erf- ið tilhugsun að ekki kæmi fram listi sem stæði fyrir þær hugsjónir sem félagshyggja stendur fyrir; áhersla á velferðar- og menntamál, umhverfis- mál, uppbygging fjölbreytts atvinnu- lífs og ábyrg fjármálastjórnun þar sem íbúar eru alltaf í forgrunni. Til- laga stjórnar um að ekki yrði boðið fram, var kannski sparkið sem við þurftum. Ég er mjög stoltur af því að okkur hafi tekist að mynda lista með jafn fjölbreyttum hópi fólks og með jafn öfluga og framsækna stefnuskrá og raun ber vitni. Á hvað munt þú leggja áherslu, fáir þú til þess tækifæri? „Sameiningarmál eru mér ofarlega í huga, en ég tel það mjög mikilvægt að við séum eins stór og við getum svo við náum meiri slagkrafti í þau hagsmunamál sem varða lands- hlutann allan. Fjölskyldumál eru mér einnig hugleikin, en við viljum bæta dagvistun fyrir börn og brúa það bil sem skapast er fæðingarorlofi lýkur. Við fjölskyldan erum sjálf í þeirri stöðu að einungis annað okkar getur verið úti á vinnumarkaðnum vegna skorts á dagvistundarúrræðum hér í sveitarfélaginu. Íþrótta- og tóm- stundamál eru í góðu lagi í sveitar- félaginu, en við getum gert ennþá betur og skapað fjölbreyttara tóm- stundarstarf hér sem mun hjálpa okkur að laða ennþá fleiri barna- fjölskyldur að.” Hvernig sérð þú fyrir þér framtíð Fljótsdalshérað og Austurlands? „Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd Austurlands í framtíðinni. Það er mikill mannauður og drifkraftur á svæðinu og mörg tækifæri sem við þurfum að nýta vel. Við erum með sterka atvinnuvegi sem við verðum að hlúa vel að, sérstaklega í ferða- þjónustu en þar eru mörg vannýtt tækifæri, t.d. Egilsstaðaflugvöllur.” En hver er maðurinn? „Ég er uppalinn hér á Hér- aði, nánar tiltekið í Fellabæ. Eftir stúdentspróf flutti ég til Reykjavíkur þar sem ég vann við knattspyrnuþjálfun hjá knattspyrn- ufélögunum Fram og Val, ásamt því að stunda nám í hagfræði við Há- skóla Íslands. Í Reykjavík kynntist ég konunni minni, Lindu Sæberg, sem einnig er frá Austurlandi, og eigum við soninn Esjar Sæberg. Við eigum síðan sitthvora dótturina úr fyrri samböndum, þær Önju og Móeiði. Síðastliðið haust ákváð- um við flytja aftur á heimaslóðir og urðu Egilsstaðir fyrir valinu. Ég er að þjálfa meistaraflokk kvenna í knattspyrnu og er nýtek- inn við stöðu framkvæmdastjóra Rekstrarfélags Hattar.” Í öðru sæti á lista Samtaka fé- lagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði – Héraðslista er Kristjana Sig- urðardóttir, verkefnastjóri og í þriðja sæti er Björg Björns- dóttir, mannauðsstjóri. Nánari upp- lýsingar um skipan list- ans má finna á herads- listi.is. Ég er klár í slaginn „Ég er mjög bjartsýnn fyrir hönd Austurlands í framtíðinni. Það er mikill mannauður og drifkraftur á svæðinu og mörg tækifæri sem við þurfum að nýta vel. 6 29. september 2016 aBG-VerkeFNIð oG GeðHeIlSa uNGa FólkSINS á leik- og grunnskólastigi ber sveitarfélögum að sinna sér- fræðiþjónustu skóla, til dæmis sálfræði- og kennsluráðgjöf, í gegnum skólaskrifstofur, fræðslusvið sveitarfé- laga eða þjónustumiðstöðvar en fram- haldsskólar á Íslandi hafa ekki beinan aðgang samræmdri sérfræðiþjónustu. Aðgengi að ráðgjöf, stuðningi og úrræðum fyrir nemendur leik- og grunnskóla telst almennt nokkuð gott hérlendis; fyrsta skrefið þegar grunur vaknar um vanda barns er nánast alltaf að vísa máli til sérfræðiþjónustu skóla. Á framhaldsskólastigi vandast málið því engin sambærileg þjónusta er í boði fyrir starfsfólk og nemendur. Hafi skóli áhyggjur af líðan, námsgetu eða velferð nemanda getur verið erfitt að átta sig á því hvert sé best að leita. Á Austurlandi var frá 2008 til 2015 starfrækt sérstakt samstarfsverk- efni, ABG verkefnið, sem hafði það að markmiði efla og samþætta þjónustu fyrir börn og ungmenni með geðræn- an vanda. Framhaldsskólarnir á svæð- inu, Verkmenntaskóli Austurlands og Menntaskólinn á Egilsstöðum, hafa tekið virkan þátt í verkefninu og unnið að þróun þess. Það er óhætt að segja að afleiðing þessa verkefnis er að samstarf hafi aukist á milli stofnana, boðleiðir styst og úrræðum fjölgað. Hvað var og er aBG verkefnið? Tilraunaverkefnið Aðstoð við börn og ungmenni með geðrænan vanda á Aust- urlandi (skammstafað ABG) var sett á laggirnir 1. janúar 2008 en liggur nú í dvala þar til verkefnisstjóri fæst austur til þess að leiða það áfram. Forsaga þess er sú að þær stofnanir á Austurlandi sem sinna börnum og ungmennum ákváðu árið 2007 að gera samstarfssamning sín á milli með það að markmiði að auka, bæta og samþætta þjónustu fyrir börn og ungmenni sem glíma við hegðunar- eða tilfinningavanda. Upphaflega stóð til að vinna að þessu markmiði eingöngu með auknu samstarfi stofnana en þegar Heil- brigðisráðuneytið kom inn í myndina og lagði til aukið fjármagn var ákveðið að Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) myndi ráða sálfræðing sem jafnframt yrði verkefnisstjóri ABG. Í upphafi var ABG verkefnið hugsað sem tímabund- ið tilraunaverkefni til þriggja ára og var 2010 áætlað lokaár þess. Um mitt sumar 2010 var því gerð úttekt á verkefninu til að leggja mat á hvernig til hefði tekist og hvort vilji væri til þess að halda því áfram. Kallað var eftir skriflegri umsögn frá öllum þeim stofnunum sem komu að því og beðið um afdráttarlausa af- stöðu um hvort ætti að biðja um áfram- haldandi fjármagn frá ráðuneytinu eða leggja verkefnið niður. Einnig var gerð þjónustukönnun þar sem afstaða þeirra foreldra og barna sem nýtt höfðu þjón- ustu ABG verkefnisins var könnuð með spurningalistum. Það var samdóma álit allra stofnananna sem komu að verk- efninu að það ætti að halda því áfram og niðurstöður þjónustukönnunar voru einnig mjög jákvæðar. Síðan 2010 hef- ur verið gert ráð fyrir ABG verkefninu í fjárlögum í kjölfar úttektar á því. Orri Smárason sálfræðingur var síðast ver- kefnisstjóri ABG-verkefnisins en þar sem hann fór í ársleyfi á síðasta ári hefur engin starfsmaður á vegum HSA sinnt verkefninu þar sem ekki tókst að ráða sálfræðing í stöðu Orra. Vonir standa til að úr rætist í haust en á meðan liggur verkefnið eins og áður sagði í dvala og er það miður þar sem þörfin fyrir það er mjög mikil. Austurland fékk Orra til að veita smá innsýn í verkefnið. árangurinn óvtíræður Hvaða árangur má helst telja af verkefni eins og ABG? „Það er mjög mikilvægt að verkefnið haldi áfram því það stuðlar ótvírætt að bættu geðheilbrigði og vellíðan fram- haldsskólanemenda með fjölbreyttum hætti. Í aðalatriðum má skipta þjónust- unni í fjóra meginhluta: Í fyrsta lagi með því að auka samstarf þeirra stofnana sem sinna ungmennum í vanda á svæðinu og stytta þar boðleiðir og auðvelda sam- skipti. Í öðru lagi með því að bjóða upp á viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi og í þriðja lagi með því að bjóða upp á námskeið og fræðslu. Í fjórða lagi geta framhaldsskól- arnir vísað nemendum til sálfræðimats ef grunur er um einbeitingarvanda eða námsörðugleika,“ segir Orri en hann segir að það hafi komið mjög fljótt í ljós, eftir að verkefnið byrjaði að þörf fyrir sálfræðiþjónustu var afar mikil og mun meiri en einn sálfræðingur gat annað með góðu móti. Það myndaðist langur biðlisti eftir viðtalsmeðferð strax á fyrstu mánuðum ABG og hélta hann áfram að vaxa allan starfstíma þess. Álagið hafi þó dreifst eftir að tilvísanaferlinu í verk- efninu var breytt og fleiri úrræði koma til greina en einstaklingsviðtöl hjá sál- fræðingi. Til dæmis má nefna hópmeð- ferðarúrræði, viðtöl við skólahjúkrunar- fræðing eða lækni, greining á vegum Skólaskrifstofu, viðtöl hjá félagsráðgjafa. „Það er því ekki sjálfgefið að tilvísun til ABG sé tilvísun í viðtalsmeðferð hjá sál- fræðingi eins og það var í upphafi verk- efnisins en það er þó enn það úrræði sem inntökuteymið notaði mest áður en ver- kefnið lagðist í dvala.“ allir framhaldsskólar ættu að huga að verkefnum eins og aBG Orri segir ABG-verkefnið á Austurlandi hafa sannað gildi sitt svo um muni. „ABG verkefnið sýndi með mjög skýr- um hætti fram á þörfina fyrir aukna geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni á Austurlandi. Strax í upphafi verkefnisins myndast langur biðlisti eft- ir sálfræðimeðferð,“ segir Orri en hann segir biðlista eftir sálfræðimati fyrir framhaldsskólanema hafa myndast og að hópúrræði eins og HAM námskeið og Klókir krakkar hafi oftar en ekki ver- ið fullsetin. Í dag komi raunar ekkert í stað þessa brýna forvarnaverkefnis, þó frábært starfsfólk félagþjónustunnar og Skólaskrifstofu Austurlands geri hvað þeir geta til að brúa bilið þar til verk- efnið kemst aftur í gang. “Ég veit að þar er kappskostað að gera sem best og halda sem mestu samstarfi hvort sem er undir formerkjum ABG eða einhvers annars og á meðan ég starfaði að ver- kefninu fann ég fyrir mikilli meðvitund um ábyrgðina hjá öllum sem starfa að þessum málum. En sem fyrr segir er álagið á flestum þessum stöðum ansi mikið og að mínu mati er þörf fyrir meiri þjónustu en í boði er.” Orri hefur í dag snúið sér alfarið að rekstri eigin sál- fræðiþjónustu og mun ekki snúa aftur til að starfa að verkefninu eða hjá HSA. Flókin málaflokkur þarf styrka forstöðu „Ég vona innilega að það finnist bráð- lega sálfræðingur sem er tilbúinn til að leiða verkefnið áfram, því þetta er gríðarlega mikilvægt verkefni. Geð- heilbrigðismál barna og ungmenna er flókinn málaflokkur ekki síst vegna þess að forræði hans er á margra höndum. Leik- og grunnskólar, sérfræðiþjónusta skóla og félagsþjónustur eru reknar af sveitarfélögum á meðan ríkið rekur framhaldsskóla, heilsugæslustöðvar, BUGL og Greiningarstöð. Án svona samtenginarverkefna er viss hætta á því á landsbyggðinni að til verði margar litlar stofnanir sem sinna fyrst og fremst sínum afmörkuðu verkefnum og þá get- ur skipt málið að verkefni eins og ABG tengi aðilana saman," segir Orri. Hann segir ABG verkefninu ætlað að draga úr þeirri hættu að einingarnar sem fást við vandann einangrist eða kikni undir álaginu þar sem hver og ein þeirra á yf- irleitt fullt í fangi með að sinna sínum skjólstæðingum. „Með því að vinna saman er unnt að sinna fjölbreyttari verkefnum, auka áherslu á forvarnir og fjölga töluvert þeim úrræðum sem skól- ar geta vísað til á sínum eigin heima- velli. Það sem áunnist hefur með ABG verkefninu má þakka samstarfi stofn- ana sem saman gátu fjölgað úrræðum og bætt þjónustu í þessum málaflokki á sínu starfssvæði.“ orri Smárason sálfræðingur Nokkur orð um kvíða Við þurfum aðeins að passa okkur þegar við tölum um kvíða. Það er nefnilega mikil- vægt að aðgreina heiti á tilfinningu frá heiti á flokki geðraskna. Í daglegu tali, held ég, notum við flest orðið “kvíði” yfir hvort tveggja sem ég held að sé ekki sérlega hjálplegt. Kvíði sem tilfinning er nefnilega eðlilegur og óhjákvæ ilegur hluti af því að vera til, þó hann geti vissulega verið óþægilegur. Þegar mikið liggur við og stefnan er tekin inn í aðstæður þar sem lífi, heilsu, sjálfsmynd eða vellíðan okkar er ógnað er gott og eðlilegt að þetta viðvörunarkerfi heilans fari í gang. Við lærum þá betur fyrir prófið, undirbúum okkur betur fyrir starfsviðtalið, ræðuna tónleikana eða leikritið. Þennan kvíða viljum við því ekki endilega losna við. Hann er til merkis um að við viljum standa okkur vel og að það skipti okkur einhverju málið að útkoman (úr prófinu, ræðunni, leikritinu...) sé góð. Kvíðaraskanir eru annað mál. Þær koma til þegar þessi eðlilega og yfirleitt hjálplega tilfinning fer að láta á sér kræla án þess að tilefni sé til eða í mun meira mæli en tilefni er til. Mörkin liggja hér: Þegar tilfinningin kvíði er orðin hamlandi fyrir einstakling, farin að skerða lífgsæði og lífsgleði hjá viðkomandi, þá er líklega til staðar kvíðaröskun. Kvíðaraskanir eru algengastar allra geðraskana, bæði hjá börnum og fullorðnum, og virðist tíðni þeirra enn fara vaxandi. líkja má kvíðaröskun við bil ðan r ykskynjara. reykskynjari á að nema reyk og vara okkur við honum. Oft þegar það er reykur til staðar þá er eldur til staðar. Og eldur er hættulegur og það er mikilvægt að bregðast við honum. Í heila okkar allra er líka ákveðin mekanismi sem skimar í sífellu eftir hættu. Ef hann finnur eitthvað sem hann telur ógna okkur kveikir hann á svokölluðu baráttu- og flóttaviðbragði, lífeðlisfræðilegu viðbragði sem ætlað er að gera okkur betur í stakk búin til að takast á við hættulegar aðstæður. Þetta baráttu- og flóttaviðbragð köllum við í daglegu tali kvíða. reykskynjarinn heima mér er örlítið vanstilltur og fer stundum að pípa þegar ég er að steikja hamborgara eða rista brauð. Það er enginn raunveruleg hætta á ferðum, enginn eldur, en hann fer samt af stað. Það sama gerist í kvíðarösk- unum. Viðvörunarkerfið okkar fer af stað og kveikir á kvíðaviðbrögðunum þó svo að hættan sé ekki í raun til staðar. reykskynjarinn er vanstilltur. Sem betur fer höfum við í dag meðferðarúrræði sem hjálpa okkur að still reyk- skynjarann. Þar ber helst að nefna hugræna atferlismeðferð sem hefur mestan rann- sóknarstuðning við meðhöndlun kvíðaraskana. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum frá landlæknisembættinu á hugræn atferlismeðferð að vera fyrsti kostur þegar kemur að meðferð við kvíðaröskunum. Samkvæmt klínískum rannsóknum skilar sálfæðrileg meðferð, og þá sérstaklega hugræn atferlismeðferð, betri árangri við meðhöndlun kvíða en bestu lyfin á markaðnum. Því miður er sálfræðimeðferð alls ekki nógu aðgengileg á Íslandi og því er nánast ómögulegt að heilbrigðiskerfið geti starfað eftir leiðbeiningum landlæknis og í samræmi við bestu vísandalegu þekkingu á þessu sviði. En það er efni í annan og lengri pistil. Börn og kvíði öll börn verða kvíðin á einhverjum tímapunkti í lífinu og er það oftast eðlilegt með tilliti til þroska þeirra. til dæmis hræðast smábörn aðskilnað við móður sína á sama tíma og þau verða hrædd við ókunnu a eða mannfæli eins og það er oft kallað. nokkrum árum síðar verða börn gjarnan myrkfælin og sum ung börn ímynda sér skrímsli undir rúminu og innbrotsþjófa við útidyrnar. á unglingsárunum verða börn oft mjög feimin og meðvituð um sjálf sig. Þessi hræðsla eða fælni er yfirleitt hluti af eðlilegu þroskaferli barns og er þá um tímabil að ræða sem börnin vaxa frá. Kvíði er eðlileg tilfinning sem allir fá og ha n er alls ekki alltaf sl mur. Kvíði er mikilvægur fyrir okkur til að ko ast af, vera örugg og standa okkur betur. Kvíði veldur því að við forðum okkur úr hættulegum aðstæðum, til dæmis ef bíll er að fara að keyra á okkur. Kvíði getur einnig gagnast okkur í próflestri: ef við erum hrædd um að standa okkur ekki nógu vel er líklegra að við lesum og undirbúum okkur. Opnunartímar: Mán.-fös. 08:00-18:00 Lau. 10:00-14:00 471-2299 - email: austur@ab.is Fagradalsbraut 25 Egilsstöðum Led ljósabar í öllum stærðum og gerðumBílavarahlutir í úrvali Milwaukee verkfæri í úrvali ÞINN HAGUR Í BÍLAVARAHLUTUM Framboðslisti Samtaka félagshyggjufólks á Fljótsdalshéraði – Héraðslista til sveitarstjórnarkosninga 26.maí 2018 1. Steinar Ingi Þorsteinsson 2. Kristjana Sigurðardóttir 3. Björg Björnsdóttir 4. Aðalsteinn Ásmundarson 5. Sigrún Blöndal 6. Dagur Skírnir Óðinsson 7. Gyða Dröfn Hjaltadóttir 8. Skúli Björnsson 9. Leifur Þork lsson 10. Margrét S. Árnadóttir 11. Garðar Valur Hallfreðsson 12. Kristín María Björnsdóttir 13. Jón Steinar Garðarsson Mýrdal 14. Iryna Boiko 15. Arngrímur Viðar Ásgeirsson 16. Lára Vilbergsdóttir 17. Aron Steinn Halldórsson 18. Ragnhildur Rós I driðadóttir

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.