Austurland - 26.04.2018, Side 10
26. apríl 201810
Anna Alexandersdóttir, forseti
bæjarstjórnar á Fljótsdals-
héraði, leiðir lista Sjálfstæð-
isflokks og óháðra á Fljótsdalshéraði
í sveitarstjórnarkosningunum í vor.
Gunnar Jónsson, formaður bæjarráðs
sem setið hefur fyrir hönd Á-lista, er í
öðru sætinu en listinn var samþykkt-
ur á fundi fulltrúaráðs á dögunum. Á
honum eru tíu konur og átta karlmenn.
Margir á listanum hafa ekki áður
skipað sæti á listanum í sveitastjórn-
arkosningunum. Þar er þó einnig að
finna reynslumeira fólk, til dæmis
þrjá einstaklinga sem setið hafa fyrir
hönd Á-listans í bæjarstjórn en Á-
listinn býður ekki fram í ár. Listarnir
hafa unnið saman í bæjarstjórn ásamt
Héraðslista félagshyggjufólks en mál-
efnaskráin hefur ekki enn verið gefin
út. Þó er ljóst að með Gunnari hlýtur
að fylgja skýr krafa um að Fljótsdals-
hérað taki frekari umræður um sam-
einingarmál við önnur sveitarfélög
alvarlega enda hefur hann verið öflug-
ur talsmaður þess.
Skylda að skoða
sameiningarmálin betur
Gunnar Jónsson, formaður Bæj-
arráðs Fljótsdalshéraðs, kallaði
saman nefnd með fulltrúum sveitar-
félaganna til leggja fram könnun um
hug íbúa sex sveitarfélaga á Austur-
landi til sameiningar. Hann segir að
tilgangurinn hefi verið sá að veita
nýjum sveitarstjórnum sem taka við
eftir kosningar í maí upplýsingar
um hug íbúa til sameininga. „Ég
lít nánast á það sem skyldu nýrra
sveitarstjórna, sérstaklega í þessum
sveitarfélögum sem eru svo afdrátt-
arlaus með sínum íbúum að vilja
sameiningar, að þessar sveitarstjórn-
ir setjist niður og ræði málið í fúlu-
stu alvöru.“
Í samtali við RÚV nefndi Gunn-
ar sérstaklega Fljótsdalshérað,
Seyðisfjörð, Djúpavog og Borg-
arfjörð eystra. „Sameiningar hjá
þessum sveitarfélögum kalla strax
og afdráttalaust á ákveðnar sam-
göngubætur sem hafa verið mjög í
umræðunni að undanförnu. Get ég
fyrst nefnt Öxi sem er vegurinn á
milli Djúpavogs og Fljótsdalshéraðs.
Síðan nefni ég Fjarðarheiðargöng á
milli Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarð-
ar og að lokum vil ég nefna Borgar-
fjarðarveg til Borgarfjarðar eystri.“
Framboðslistinn í heild sinni:
1. Anna Alexandersdóttir, verkefnisstjóri og forseti bæjarstjórnar
2. Gunnar Jónsson, bóndi og formaður bæjarráðs
3. Berglind Harpa Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MS í heilbrigðisvísindum
4. Karl Lauritzson, viðskiptafræðingur
5. Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, viðskiptafræðingur
6. Sigurður Gunnarsson, ferliseigandi skaut- og álframleiðslu
7. Davíð Þór Sigurðarson, verkefnisstjóri
8. Ívar Karl Hafliðason, umhverfis- og orkufræðingur
9. Eyrún Arnardóttir, kennari og dýralæknir
10. Hrafnhildur Linda Ólafsdóttir, aðstoðarframkvæmdarstjóri
11. Guðný Margrét Hjaltadóttir, viðskiptafræðingur
12. Sigrún Harðardóttir, félagsráðgjafi,
13. Aðalsteinn Jónsson, búfræðingur, fyrrv. bóndi nú í ferðaþjónustu
14. Helgi Bragason, skógarbóndi,
15. Ágústa Björnsdóttir, fjármálasérfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáli
16. Guðrún Ragna Einarsdóttir, þjónustufulltrúi og bóndi,
17. Sigvaldi H. Ragnarsson, sauðfjárbóndi
18. Sigríður Sigmundsdóttir, matreiðslu- og framleiðslumaður
Gunnar til liðs við
Sjálfstæðismenn
Frá vinstri: Davíð Þór Sigurðarson, Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, Ívar Karl Hafliðason,
Guðrún Ragna Einarsdóttir, Aðalsteinn Jónsson, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Sig-
valdi H. Ragnarsson, Anna Alexandersdóttir, Sigurður Gunnarsson, Ágústa Björns-
dóttir, Gunnar Jónsson, Hrafnhildur Linda Ólafsdóttir, Guðný Margrét Hjaltadóttir
og Eyrún Arnardóttir. Á myndina vantar: Karl Lauritzson, Sigrúnu Harðardóttur,
Helga Bragason og Sigríði Sigmundsdóttur.
Námskeið sem ætlað er að-
standendum barna sem
fengið hafa frumgreiningu
eða staðfesta greiningu á einhverfurófi
fer fram á Egilsstöðum í maí. Mælt er
með því að báðir foreldrar/forráða-
menn mæti saman á námskeiðið.
Ömmur/afar og aðrir áhugasamir
vinir eru einnig velkomnir. Nám-
skeiðið verður haldið laugardaginn
12. maí frá kl 11:30 - 16:30 á Hótel
Valaskjálf á Egilsstöðum og er þátt-
takendum að kostnaðarlausu. Boðið
verður upp á léttar veitingar. Frekari
upplýsingar um skráningu má finna á
fb-síðu Blár Apríl.
Blár Apríl á
Egilsstöðum
Miðaverð er 1.500 kr. á mánuði fyrir
einfaldan miða og 3.000 kr. fyrir tvöfaldan miðaFylgstu með okkur á Facebook og á das.is
Vinningar í hverri viku - Happdrætti DAS
Mestu vinningslíkurnar
- skynsamlegasti kosturinn
Kauptu miða á das.is eða í síma 561 77 57
Þetta er Fanney. Hún trúir á
staðreyndir. Fanney tekur aldrei
ákvörðun fyrr en hún hefur fast
land undir fótum, hún anar ekki
að neinu. Hún kannar allar
breytur áður en hún birtir
niðurstöður sínar.
Fanney Davíðsdóttir er skynsöm og spilar í Happdrætti DAS
Nýtt
happdrættisár
hefst í maí
Vikulegir útdrættir
Einfaldur miði
Vinningar Fjöldi Upphæð Samtals
Aðalvinningur 6 15.000.000 90.000.000
Aðalvinningur 6 3.000.000 18.000.000
Aðalvinningur 40 2.000.000 80.000.000
Vinningar 208 150.000 31.200.000
Vinningar 1.248 50.000 62.400.000
Vinningar 5.200 20.000 104.000.000
Vinningar 19.050 10.000 190.500.000
Samtals 25.758 576.100.000
Tvöfaldur miði
Vinningar Fjöldi Upphæð Samtals
Aðalvinningur 12 15.000.000 180.000.000
Aðalvinningur 12 3.000.000 36.000.000
Aðalvinningur 80 2.000.000 160.000.000
Vinningar 416 150.000 62.400.000
Vinningar 2.496 50.000 124.800.000
Vinningar 10.400 20.000 208.000.000
Vinningar 38.100 10.000 381.000.000
Samtals 51.516 1.152.200.000
VÖNDUÐ JEPPADEKK
Á FRÁBÆRU VERÐI
STÆRÐ 315/70R17
49.600,- kr.
STÆRÐ 285/70R17
46.900,- kr.
ARCTIC TRUCKS | KLETTHÁLSI 3 | 110 REYKJAVÍK | 540 4900
WWW.ARCTICTRUCKS.IS
ÞÚ FÆRÐ JEPPADEKKIN HJÁ OKKUR!