Austurland - 26.04.2018, Qupperneq 12
12 26. apríl 2018
Guli vitinn
Enn ein nóttin þar sem öldurnar gjálfra við gamla vitann
og sinnið galopin und sem saltið á greiða leið að.
Enginn af piltum reykfylltra sala Hótel Borgar
á nokkuð líkt aðdráttarafli gula vitans við innsiglinguna
sem blikkar hana til sín gegnum
hverja dansandi nóttina á fætur annarri.
Að sitja á röku, tilhöggnu grjótinu gefur undarlega fró.
Anda að sér útsynningnum og finna skvettast inn í hugsunina
hugmynd um að synda út hafnarmynnið.
Öldurótið stundum blítt og í annan tíma strítt.
Vitinn hennar sterkur eins og rót Yggdrasils
og hún Embla í skjóli hans uns birtir og borgin vaknar.
Ljós handan myrkurs
(Hamborg, Þýskaland)
Þeir hengdu sig frekar í íbúðargámunum
en að fara aftur til Ankara
og láta skjóta sig í kjallaranum á flugstöðinni.
Konurnar urðu geðveikar af biðinni
með litlu börnin og allsleysið umlykjandi.
Ég var að kikna undan vonsku heimsins og
því að geta ekki gert neitt til hjálpar
sem skipti máli í alvöru
og þurfti að svara því fyrir sjálfa mig
hvort ég ætti að fara mína leið.
Einhvers staðar á þessari vegferð
skildist mér að fegurð lífsins býr í hinu smáa,
að hjálpræðið felst í daglegu lífi
og maður lætur ekki lítilmagna, börn og skepnur
liggja óbætt hjá garði.
Orð
Þau sneru algjörlega við blaðinu
og fóru út eftir áralanga innistöðu.
Klifruðu í trjánum,
eltust við norðurljósin og
létu beinlínis öllum illum látum
uns ég skipaði þeim harðri hendi
að koma og setjast prúð niður á pappírinn
– steinhalda sér saman þangað til
annað yrði gefið út.
Ný ljóðabók eftir 20 ár
Eftir tuttugu ára hlé kemur
5. maí næstkomandi út ný
ljóðabók frá Steinunni Ás-
mundsdóttur rithöfundi, 70 ljóð undir
heitinu Áratök tímans. Útgefandi er
Félag ljóðaunnenda á Austurlandi. Út-
gáfuhóf verður haldið á Bókakaffi við
Lagarfljótsbrú kl. 15 á útgáfudaginn
og eru allir velkomnir.
Steinunn er fædd árið 1966 í
Reykjavík. Ferðalög innanlands og
vítt um veröldina, ljóðagerð, blaða-
mennska, starf að náttúruvernd og
landvarsla voru helstu viðfangsefni
ungdómsáranna, allt fram til ársins
1996. Hún settist þá að á Egilsstöð-
um og vann sem blaðamaður og ljós-
myndari Morgunblaðsins á Austur-
landi í hartnær áratug en tók svo við
ritstjórn héraðsfréttablaðsins Austur-
gluggans um nokkurra ára skeið.
Steinunn afréð fyrir fáeinum árum
að draga sig úr erli fjölmiðlavinnu,
kyrra líf sitt og leita skáldæðarinnar
á ný. Árin 2016 og 2017 skrifaði hún
langflest ljóð þessarar bókar og er með
því rofin tveggja áratuga þögn hennar
á vettvangi skáldskaparins.
Fyrri bækur
Steinunnar Ásmundsdóttur:
Einleikur á regnboga
– Almenna bókafélagið, 1989
Dísyrði – Goðorð, 1992
Hús á heiðinni – Andblær, 1996.
Ljóð, sögur og greinar í safnritum,
tímaritum og blöðum og þættir/innslög
á ljósvaka.
Hugverkavefur: www.yrkir.is
Steinunn Ásmundsdóttir
Áratök tímans
Nýtt á Íslandi frá
kerrum
Smi ðjuvegi 40, gul gata, Kópavogi
750kg kerra, gerð 1384, mál: 251x131x35cm
með sturtum. Verð kr: 229.839,- án vsk.
750kg kerra, gerð 1374, mál: 251x131x35cm,
opnanleg að framan. Verð kr: 201.612.- án vsk.
Startrailer 750kg, gerð 1280,
mál: 205x109,5x30cm. Verð kr: 120.888,- án vsk.
750kg kerra, gerð 1376, mál: 205x131x35cm,
opnanleg að framan. Verð kr: 169.355.- án vsk.
Tveggjaöxlakerra, 2500kg, gerð 2331, mál: 3,03x1,50m,
opnanleg að framan. Verð kr. 431.452, - án vsk.
Flatvagnar-ýmsar stærðir, 2000kg-3500kg,
mál frá 2,65x1,65m til 6,10x2,48m.
Iðnaðarmenn og aðrir,
kerrurnar frá hafa
margsannað sig á Íslandi!