Læknablaðið : fylgirit - 07.05.2014, Blaðsíða 4

Læknablaðið : fylgirit - 07.05.2014, Blaðsíða 4
V í s i n d i á V o r d ö g u m F Y L g i r i T 7 9 4 LÆKNAblaðið 2014/100 Árlega eru haldnir vísindadagar, Vísindi á vordögum, þar sem vísindaniðurstöð- ur eru kynntar fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittir úr Vísindasjóði Landspítala. Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir rúmlega 70 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítalans. Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði spítalans. Stjórn vísindasjóðs Páll Matthíasson forstjóri, formaður Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri Vísindaráð er framkvæmdastjórn og vísinda- og þróunarsviði Landspítala til ráðgjafar um vísindastefnu og háskóla- og vísindastarf á sjúkrahúsinu og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði sam- kvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmið- anir. Þá er Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum. Vísindaráð Landspítala er skipað 10 mönnum til fjögurra ára í senn. Vísindaráð skipa Gísli H. Sigurðsson læknir (formaður), tilnefndur af læknaráði Herdís Sveinsdóttir hjúkrunarfræðingur (varaformaður), tilnefnd af hjúkrunarfr.deild Gunnar Guðmundsson læknir, tilnefndur af læknadeild HÍ Halldór Jónsson jr. læknir, tilnefndur af læknadeild HÍ Helga Gottfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Jón Friðrik Sigurðsson sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala Jóna Freysdóttir, náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Þorvarður Löve læknir, tilnefndur af læknaráði Þórarinn Guðjónsson náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Varamenn Auðna Ágústsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Einar Stefán Björnsson læknir, tilnefndur af læknadeild HÍ Guðrún Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarfræðideild HÍ Hannes Petersen læknir, tilnefndur af læknadeild HÍ Inga Þórsdóttir næringarfræðingur og hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir læknir, tilnefnd af læknaráði Jón Jóhannes Jónsson læknir, tilnefndur af læknaráði Þóra Jenný Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Vísindi á vordögum

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.