Íslensk bókatíðindi - 01.12.1975, Qupperneq 2
Bókin sem allir biða eftir
Öldin
okkar
Miimisveix) tíðindi
1951-1960
Öldin okkar
nýtt bindi
ÚRVALSRIT
FRÁ MENNINGARSJÓÐI
Fósturjörð I—II
eftir Pálma Hannesson
Ný og endurskoðuð útgáta hinna vinsælu ritgerða og
erinda Pálma rektors um land og þjóð. Hannes Péturs-
son skáld annaðist útgáfuna.
Bréf til Stephans G.
Stephanssonar I—III
Frá allmörgum þjóðkunnum íslendingum austan hafs
og vestan. Ómetanleg heimild um sögu íslenzkrar
hugsunar og líf Klettafjallaskáldsins. Dr. Finnbogi
Guðmundsson sá um útgáfuna.
íslenzkar bókmenntir
og heimsskoðun
eftir Grím Thomsen
Viðburður á íslenzkum bókamarkaði, enda var Grim-
ur Thomsen skáld einn af brautryðjendum íslenzkrar
bókmenntafræði. Andrés Björnsson þýddi ritgerðirnar
úr dönsku og ritar inngang.
Hagfræði
eftir Ólaf Björnsson
Mjög aðgengilegt og skýrt uppflettirit eftir þjóðkunn-
an vísindamann. Ritið er prýtt fjölda mynda. Þetta er
fimmta ritið í hinum vinsæla bókaflokki: Aifræði
Menningarsjóðs.
Alaskaför Jóns Ólafssonar
eftir Hjört Pálsson
Fróðlegt rit um hina ævintýralegu Alaskaför Jóns Ól-
afssonar skálds og ritstjóra, en hann hugðist nema ís-
lendingum nýtt land. Bókin er gefin út í bókaflokknum:
Sagnfræðirannsóknir.
Saga Reykjavíkurskóla I
Fyrsta bindi ritverks um Menntaskólann í Reykjavík.
í þessu bindi segir frá námsskipan og kennslustarfi,
en auk þess er í bókinni einstætt myndasafn af öllum
brautskráðum stúdentaárgöngum. Ritstjóri er Heimir
Þorleifsson.
Nú birtist þriðji hluti hins vinsæla ritverks ÖLDIN OKKAR
og tekur yfir árin 1951—1960. Eru „Aldirnar“ þá orðnar
átta talsins og gera skil sögu þjóðarinnar í samfleytt 360
ár í hinu lífræna formi nútíma fréttablaðs. Myndir í bók-
unum eru á þriðja þúsund talsins og er í engu öðru ritverki
að finna slíkan fjölda íslenzkra mynda. — „Aldirnar" eru
þannig lifandi saga liðinna atburða i máli og myndum, sem
geyma mikinn fróðleik og eru jafnframt svo skemmtilegar
til lestrar, að naumast hafa komið út á íslenzku jafnvin-
sælar bækur. Látið ekki undir höfuð leggjast að bæta
þessu nýja bindi við þau, sem fyrir eru.
Öldin er skemmtileg, fróðleg og frábær
Tryggiðykkur eintak meðan tiler
Iðunn
BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS