Íslensk bókatíðindi - 01.12.1975, Qupperneq 29

Íslensk bókatíðindi - 01.12.1975, Qupperneq 29
ÍSAFOLD vill benda á eftirtalin öndvegisrit: Ritsafn Matthíasar Jochumssonar 6 bindi — Bólu-Hjálmars 3 — — Jóns Sveinssonar, NONNA 12 — — Stefáns Jónssonar 8 — ÞjóðsögurJóns Árnasonar 9 — Menn í öndvegi 6 — Læknar á íslandi 2 — Þá var öldin önnur 3 — og að ógleymdum bókum eins og Matur og drykkur og nýju matreiðslubókina Við matbú- um, öndvegisbókina íslenzkir þjóðhættir og nýja Lög- fræðingatalið. LÖG OG RÉTTUR Eftir Ólaf Jóhannesson dómsmálaráðherra. Þessi markeftirspurða bók, sem verið hefur uppseld árum saman, fæst nú aftur í bókaverzlunum. Fjallar á greinargóðan hátt um ýmis meginatriði íslenzkrar rétt- arskipunar. HALLDÓR LAXNESS Eftir Peter Halberg. Höfundur lýsir þátttöku Halldórs Laxness i skoðana- skiptum um ýmis efni, svo sem: 1. islenzkt þjóðerni og umheiminn. 2. Trú og lífsviðhorf. 3. Stjórnmál og þjóðfélag. 4. Listræn viðhorf. Enginn lesandi Laxness ætti að láta þessa bók vanta i safn sitt. MINNINGAR ÚR HORNAFIRÐI Eftir Guðrúnu Guðmundsdóttur. Guðrún er fædd i Nesjum í Hornafirði 1863 og dvaldi þar til 1890, er hún fluttist til Seyðisfjarðar. Fyrsti hluti bókarinnar geymir minningar úr Hornafirði frá þessum ' árum, þjóðlífs- og persónulýsingar. Annar hlutinn er sextiu hornfirzkar sagnir, sem Guðrún hefur skráð, einatt tengdar sérkennilegum talsháttum. Vilmundur Jónsson landlæknir, sonur Guðrúnar, hefur samið ýtarlegar skýringar við minningarnar og sagri- irnar og eru þær birtar í sérkafla. Auk þess birtist sem bókarauki frásögn Vilmundar af ferð um söguslóðir bókarinnar sumarið 1935. Guðrún ritaði minningarþætti sína þegar hún var kom- in yfir áttrætt. Eru þær ritaðar af list, sem löngum hefur einkennt frásagnir alþýðu manna á íslandi, og bregða upp fjölda eftirminnilegra mynda úr íslenzku þjóðllfi á siðustu öld. Þórhallur Vilmundarson sá um útgáfuna. HIÐ ÍSLENZKA BÓKMENNTAFÉLAG Afgreiðsla Vonarstræti 12. Sími 21960

x

Íslensk bókatíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslensk bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.