Íslensk bókatíðindi - 10.12.1983, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIO, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER
FRÁ HEIMABVGGÐ
Frásöguþíettir eftir
Öskar Þórðírsou fi-á Haga
FRÁ HEIMABYGGD
OG HERNÁMSÁRUM
Frásöguþaattir eftir Óskar
Þóröarson frð Haga í
Skorradal. Höfundurinn
segir m.a. frá rjúpnaveiö-
um, slarksömum ferðalög-
um og ýmsum dulrænum
atburöum. Einnig frá at-
hafnamanninum Steindóri
Einarssyni og loks segir
hann frá starfi sínu á her-
námsliöinu í Hvalfirði og
hermönnum, sem þar
dvöldu. Bókin er 175 bls.
Útgefandi er Hörpuútgáf-
an. Verð kr. 679,25.
GEYMDAR STUNDIR
Frásagnir af Austurlandi,
3. bindi. Ármann Hall-
dórsson valdi efnið og bjó
til prentunar. Hér er á ferö-
inni margvíslegur fróðleik-
ur um líf fólks, atvinnu-
hætti og lífsbaráttu á liðn-
um öldum. Útgefandi Vík-
urútgáfan. Verð kr. 593,-.
MKJS/Uiijt/ÓWW
GÖNGUR
-OG
RETTIR
GÖNGUR OG RÉTTIR
1. bíndi. Bragi Sigurjóns-
son safnaði efni og bjó til
prentunar. Fjallað um
göngur og réttir í Austur-
og Vestur-Skaftafellssýsl-
um, Rangárvallasýslu og
Vestmannaeyjum. Itarlegur
formáli um þróun afrétt-
armála frá upphafi byggð-
ar í landinu og bókarauki,
þar sem segir frá brúar-
byggingu bænda í Lóni inni
á Lónsöræfum og endur-
byggingu hinna sérstæöu
Reykjarétta. Milli 80 og 90
myndir eru í bókinni, sem
er 404 bls. Útgefandi
Skjaldborg. Verð kr. 988-.
Heimaslóð
Árbók hreppanna í
Mööruvallaprestakalli
1982. Fyrsti árgangur nýs
héraðsrits. Upplýsingar um
öll félög sem starfað hafa á
svæðinu, merktar greinar
um ólíkustu viðfangsefni.
136 bls. Bókaforlag Odds
Björnssonar. Áskriftarverð
kr. 250,-.
HEIMSSTYRJALDARÁRIN
Á ÍSLANDI 1939—1945
Fyrra bindi bókar Tómas-
ar Tómassonar um mestu
umbrotaárin á íslandi frá
því á þjóöveldisöld. í bók-
inni eru rakin þau áhrif
sem hernámið hafði á
efnahag og þjóðlíf á ís-
landi. Fjölmargar myndir
eru í bókinni og margar
þeirra hafa hvergi birst áð-
ur. 175 bls. Útgefandi Örn
og Örlygur. Verð kr. 925,-.
HORNSTRENDINGABÓK
eftir Þorleif Bjarnason. Ný
og glæsileg útgáfa bókar-
innar sem er í þremur
bindum. (Land og líf; Bar-
áttan viö björgin og Dimma
og dulmögn.) Fjölmargar
litmyndir eru í bókinni auk
svart/hvítra mynda. Sam-
tals 608 bls. Útgefandi Örn
og Örlygur. Verð kr.
1.797,-.
HAUOSfMU* HjNSSON
t SA UABSSÚOVM
llur clnn Imkp
á Mua
ísiv.rs-^s:íx.v.
HVER EINN BÆR
Á SÍNA SÖGU
— Síðara bindi. Saga
Ljárskóga í Dölum, skráö
af Hallgrími Jónssyni.
Fyrra bindiö sem út kom á
síðasta ári fékk mjög góð-
ar mótttökur. í þessu síð-
ara bindi leiðir höfundurinn
okkur einn árshring í lífi og
störfum fólksins, eins og
það var á íslenskum
bóndabæ í byrjun þessarar
aldar. Bókin er 175 bls. Út-
gefandi er Hörpuútgáfan.
Verð kr. 679,25.
IÐNAÐARMANNATAL
SUDURNESJA
eftir Guðna Magnússon.
Nýtt og að mörgu leyti ein-
stætt mannfræðital. Hér er
heilli starfsgrein í ákveön-
um landshluta gerö skil.
Aftan við talið er Saga lön-
aöarmannafélags Suður-
nesja, skráð af Andrési
Kristjánssyni. Einnig er birt
erindið Iðnir og handíðir á
liðinni tíð eftir Eyþór Þórö-
arson. Dýrmætur fengur
öllum áhugamönnum um
ættfræði og mannfræði.
Útgefandi er Iðunn. Verð
kr. 1877,20.
ÍSLENSKIR
SAGNAÞÆTTIR
ÍSLENSKIR SAGNA-
ÞÆTTIR
II bindi, samantektir af
Gunnari Þorleifssyni. I
þessu II bindi íslenskra
sagnaþátta eru m.a. þessir
þættir: Sagnaþættir, þjóð-
lífsþættir, skipsströnd,
þættir fyrri alda, sérkenni-
legir menn o.fl. Bókin er
208 bls. Útgefandi er
bókaútgáfan Hildur. Verö
kr. 642-.
Áálfltlll ÍIVIOljrilHVOlllt
Iðlcnjhiv
0Í6»oviia?ttiv
ÍSLENSKIR SJÁVAR-
HÆTTIR III
eftir Lúðvík Kristjánsson.
Fyrri bindi þessa mikla rit-
verks komu út 1980 og
1982 og eru stórvirki á
sviði íslenskra fræða.
Meginkaflar þessa nýja
bindis eru: Skinnklæði og
fatnaður, Uppsátur, Upp-
sátursgjöld, Skyldur og
kvaðir, Veðurfar og sjólag,
Veðrátta í verstöðvum,
Fiskimið, Viöbúnaöur ver-
tíða og sjóferða, Róður og
sigling, Flyðra, Happa-
drættir og hlutarbót, Há-
karl og þrenns konar veið-
arfæri. i bókinni, sem er
496 bls. í símaskrárbroti,
er 361 mynd. Útgefandi
Menningarsjóöur. Verð kr.
2.532,-.
LANDIÐ ÞITT S—T
eftir Þorstein Jósefsson
og Steindór Steindórs-
son. Bókin geymir sögu og
sérkenni þúsunda staöa,
bæja, kauþtúna, héraöa og
landshluta. I henni eru
hundruö litmynda. 280 bls.
Útgefandi Örn og Örlygur.
Verð kr. 1976,-.
Leiftur fra
liónum arum
LEIFTUR FRÁ
LIÐNUM ÁRUM 3
Safnað hefur Jón Kr. ís-
feld. Sagt er frá marghátt-
uðum þjóðlegum fróöleik,
svo sem reimleikum, dul-
rænum atburðum,
skyggnu fólki, skipströnd-
um og skaðaveörum. Áður
eru konar út tvær bækur í
þessum flokki og hafa þær
hlotið mjög góðar viðtökur.
Bókin er 205 bls. Útgef-
andi er Hörpuútgáfan.
Verð kr. 679,25.
LJÓSMYNDARINN
í ÞORPINU
Þessi bók geymir úrval
Ijósmynda Haraldar Lár-
ussonar Blöndal, 100 aö
tölu, frá Eyrarbakkaárum
hans fyrir og eftir 1920.
Inga Lára Baldvinsdóttir
fjallar um og skyrir mynd-
irnar. Merkileg heimild um
þjóðlífið fyrr á öldinni. 104
bls. Útgefandi er Svart á
hvítu. Verð kr. 990,-.
ORÐ OG DÆMI
í bókinni eru 25 rœður og
greinar Dr. Finnboga
Guömundssonar lands-
bókavarðar frá árunum
1965—1981, auk viðtals
Valgeirs Sigurðssonar við
hann. Greinarnar skiptast í
fjóra flokka: 1. Um forn
efni, 2. Um fáein síðari
tíma skáld, 3. Um bækur,
bókasöfn og bókamenn. 4.
Um ættir og ættfræði. 303
bls. Útgefandi Leiftur hf.
verð kr. 599,-.