Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Blaðsíða 16

Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Blaðsíða 16
KYNNING Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður 25. maí 1929 við samruna Ihaldsflokksins og Frjálslynda flokksins. Helstu embætti Sjálfstæðisflokksins skipa: Formaður: Davíð Oddsson. Varaformaður: Friðrik Sophusson. Formaður þingflokks: Geir H. Haarde. Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins: Kjartan Gunnarsson. Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna: Guðlaugur Þór Þórðarson. Formaður Landsambands sjálfstæðiskvenna: Amdís Jónsdóttir. Formaður Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins: Kristján Guðmundsson. Fylgi Sjálfstæðisflokksins í síðustu kosningum var 38,6 % og 26 þingmenn. Nánari upplýsingar um stefnu Sjálfstæðisflokksins er hægt að fá á skrifstofu flokksins að Háaleitisbraut 1, 2. hæð, sími: 568- 2900. Allir sem hafa náð sextán ára aldri geta orðið meðlimir í Sjálfstæðisflokknum og tekið þátt í starfi hans m.a. í félögum út um allt land eða í hverfafélögum í Reykjavík. Samband ungra sjálfstæðismanna eru samtök ungs fólks innan Sjálfstæðisflokksins. Innan SUS eru 39 aðildarfélög um land allt sem í eru um 8500 félagar á aldrinum 16-36 ára. Formaður SUS er Guðlaugur Þór Þórðarson en nánari upplýsingar veita Hlynur Guðjónsson framkvæmdastjóri SUS og Jóhanna María Eyjólfsdóttir í síma 568- 2900 eða 568-6216. P< < 0 2 u5 * hJ Ph w H) 5 i—i w w Q O w Sjálfstæðisflokkurinn ’ Sjálfstæðisflokkurinn er frjálslyndur og umbótasinnaður stjórnmálaflokkur sem sækir fylgi sitt til allra stétta. Sjálfstæðisflokkurinn er andstæður sósíalisma í íslenskum stjórnmálum og berst m.a. fyrir frelsi einstaklingsins, takmörkun ríkisumsvifa og að öllum íslendingum sé tryggður jafn réttur til menntunar, heilsugæslu og félagslegrar aðstoðar efeitthvað á bjátar. ■ Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að sem mestri nýsköpun á öllum sviðum atvinnulífsins. Hlutverk ríkisins er að skapa þau skilyrði að sem flestar hugmyndir um ábatasamar nýjungar geti orðið að veruleika og þannig stuðlað að auknum hagvexti og meiri atvinnu. /ítvÚMounát Til að auka hagvöxt og atvinnu um leið verður ríkið að stilla skattheimtu í hóf og halda stöðugleika í hagkerfinu. Einungis þannig munu atvinnugreinar landsins verða samkeppnishæfar gagnvart erlendum atvinnugreinum. Skattfé borgaranna skal nota til þess að tryggja jafnan aðgang íslendinga til náms, heilsugæslu og mannsæmandi afkomu ef lífsviðurværi bregst. Aðildin að Sameinuðu þjóðunum, alþjóðleg fríverslun og þátttaka í norrænu samstarfi hafa um árabil verið hornsteinar íslenskrar utanríkisstefnu auk varnarsamstarfsins við Bandaríkin sem og aðildin að Atlantshafsbandalaginu. Sjálfstæðisflokkurinn vill treysta frjálsa verslun milli landa, nána samvinnu við Vesturlönd og alþjóðlegt viðskiptafrelsi. ‘ityúáKC&b iámát Stefna Sjálfstæðisflokksins er að sem flestar fjölskyldur og einstaklingar í þjóðfélaginu geti eignast íbúð og búið í eigin húsnæði og notið þess öryggis og sjálfstæðis sem því fylgir. TýCcKttt&Wi&t/ Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja jafnrétti allra til náms og rétt manna til þess að starfrækja einkaskóla. A grunnskólastiginu er brýnt að einsetja skólana og skoða þarf hvort styttra skólaár á framhaldsskólastiginu jafni aðstöðumun íslenskra námsmanna á við evrópska námsmenn. Fjárhagslegt sjálfstæði LIN mun í framtíðinni stuðla að betri þjónustu við stúdenta. í umhverfismálum vill Sjálfstæðisflokkurinn efla alhliða umhverfisvernd svo og vamir gegn hvers konar mengun. Sjálfstæðisflokkurinn vill treysta umhverfisvitund almennings og fyrirtækja með því að auka umhverfisfræðslu og ábyrgð þeirra sem menga náttúmna. Sltá á (hzuyi Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja áframhaldandi framfarir og stöðueleika oe halda þjóðinni frá sundurþykkri fjölflokka vinstri ríkisstjórn. ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ UNGT FÓLK TAKIÐ AFSTÖÐU

x

Ungt fólk takið afstöðu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungt fólk takið afstöðu
https://timarit.is/publication/1848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.