Ungt fólk takið afstöðu - 01.03.1995, Side 23
ásökunum
kjósendanna, sem
kallar þá ómerkinga
vegna þess að
ósamræmið er mikið
milli orða og athafna.
Mannorðið fer alltaf
fyrst. Þá fer
einstaklingurinn í
varnarstöðu og eyðir
hinum svokallaða
pólitíska ferli í að
réttlæta sig í stað
þess að vinna að
hagsmunum
heildarinnar. Fólk
sem er í vamarstöðu
gerir aldrei neitt af
viti, hvorki
stjórnmálamenn né
aðrir.
Það verður engu
bjargað hér sem
flokkseigendur vilja
ekki bjarga. Það
verður engu breytt
nema því sem þeir
vilja breyta. Það em
ekki þeir sem greiða
kostnaðinn af öllum
gjaldþrotunum,
heldur við -
skattborgaramir. Þið
unga fólkið emð
skattborgarar
framtíðarinnar.
Skuldasúpan sem
bíður ykkar er
óyfirstíganleg. Þið
eigið von á ævilöngu
skuldafangelsi. Þið
skuluð því drífa
ykkur í burtu sem
fyrst; læra eitthvað
sem þið getið
framfleytt ykkur á
erlendis og ekki láta
ykkur detta í hug að
koma aftur heim.
Hér er ekki pláss
fyrir ykkur. Við
höfum framleitt of
mikið af
menntamönnum á
seinustu tveimur til
þremur áratugum.
Það em allar stöður
skipaðar ungum
mönnum. Hættið að
reyna að bjarga
þessari þjóð og
bjargið ykkur
sjálfum. Hér er engin
framtíð. Engin von.
II
NEIEN SÆTT
Nei, en sætt
og settlega klætt
afsamvisku glætt
og vandlega rætt:
Lífykkar fætt
í lotterísætt
aflögfræðum gætt
og vítammsbætt.
Til lukku með lífið og dauðann!
Þið eigið svo gott
og eruð svoflott
með aflitað skott
og straujaðan þvott.
Svo laus við allt spott
og grunsamlegt glott.
Hve grípandi pott-
þétt ykkar dott.
Til lukku með lífið og dauðann!
UMSOKN
Af eyðublaðisforminu dragið ei dár:
Dagur fæðingar, mánuður, ár.
Menntun, hjúskaparstaða og stétt
ístöfum skýrum og ekki of þétt.
Gjörið svo vel og gefið í skyn
getnaði heppnaða, aldur og kyn.
"Mitt nafn er ekki sémafn, heldur sögn
sýnið þið vindinum öll mín gögn."
Uppáhaldslitir og áhugamál
arfgengir kvillar og brestir í sál.
Húðlitur, augna og fingrafór
fengnir sjúkdómar, skrámur og ör.
Vandið frágang ogfarið með öll
feimnismál sem og skakkaföll.
"Mitt nafn er ekki sérnafn, heldur sögn
sýniðþið vindinum Öll mín gögn."
En ekkert þó nýtt
né afykkur títt.
Andním svo blítt
og viðmótið hlýtt.
Hár ykkar sítt
afhreinlæti strítt.
Þiðfáið þaðfrítt
eins og börnum er snýtt.
Til lukku með lífið og dauðann!
Nei, en sætt
og settlega klætt
vel út blætt
og allt að því ætt:
Lík ykkarfætt
í kirkjugarðsætt
afkrufningu tætt
og tvinnað og þrætt.
Til lukku með lífið og dauðann!
(1992)
Syndir allar og subbulegheit
sundurliðið í telgerðan reit,
og tvíræðar langanir teljið með,
tæplynda hugsun og mistök skeð.
Skrifið svo undir og aftan við,
á umfjöllun verður hefðbundið snið.
(1992)
ALMNGISKOSNINGAR 1 9 9 5 ■ U N G T FÓLK TAKIÐ AFSTÖÐU