Íslenska leiðin - 01.10.2001, Blaðsíða 11

Íslenska leiðin - 01.10.2001, Blaðsíða 11
Starfshættir smáríkia innan ^Baldur Pórhallsson Inngangur Mikið álag er á stjómsýslu aðildarríkja Evrópusambandsins og efasemdir hafa verið um getu smáríkja til að taka virkan þátt í ákvarðanatöku sambandsins. Markmið þessarar greinar er að varpa Ijósi á það hvernig smáríki starfa innan ESB til að tryggja hagsmuni sína. Vinnubrögð stjórnsýslu smáríkja í málefnum tengdum ESB eru mjög frábrugðin vinnubrögðum stjómsýslu staerri ríkja. Þennan veigamikla mun á starfsháttum smærri og stærri ríkja í ESB má að stórum hluta skýra út frá stærð og einkenn- um stjórnsýslu ríkjanna. Þetta á bæði við hvað varðar stefnu- mótun innan stjómsýslunnar sem og starfshætti hennar inn- an ESB. Aðildarríki ESB skiptast í tvo hópa eftir stærð ef litið er til fjög- urra áhrifabreyta: Fólksfjölda, þjóðarframleiðslu, stærð land- svæðis og stjómsýslu ríkjanna. Tíu ríki af fimmtán teljast til smáríkja og fimm til stærri ríkja. Ríki sem teljast vera smá- ríki eru: Lúxemborg, írland, Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Austur- ríki, Belgía, Portúgal, Grikkland, og Holland. Ríki sem teljasttil þeirra stærri eru Þýskaland, Bretland, Frakkland, Ítalía og Spánn.1 Stjórnsýsla smáníkja Forgangsröðun Smáríki forgangsraða markvisst þeim málum sem þau beina sjónum sínum að innan ESB. Stjórnsýslan beitir öllum sínum kröftum í þeim málum þar sem beinir hagsmunir landsins lig- gja og tekur virkan þátt í ákvarðanatökuferlinu. í málum þar sem ekki er um beina hagsmuni að ræða reynir stjórnsýslan ekki að hafa áhrif og tekur mjög takmarkaðan þátt í ákvarðana- tökuferlinu. Stærri ríkin reyna hins vegar að hafa áhrif á öll mál ón tillits til þess hvort þau hafa beinna hagsmuna að gæta eða ekki. Tvennt skýrir forgangsröðun smáríkja innan ESB: Annars veg- ar eru þau neydd til að forgangsraða þar sem stjórnsýsla þeir- ta ræður ekki við allt það umfang sem aðild felur í sér. Stjórn- sýsla smáríkis getur einfaldlega ekki tekið virkan þátt í öllu sem fram fer innan sambandsins á árangursríkan og skilvirk- en hátt. Hins vegar geta smáríkin leyft sér að forgangsraða þar sem þau hafa færri hagsmuna að gæta innan sambands- ins en þau stærri. Þetta kemur til vegna einsleitara hagkerfis Q9 samanþjappaðra hagsmuna. Öformleg vinnubrögð Starfshættir stjórnsýslu smáríkja einkennast af óformlegri vinnubrögðum en tíðkast innan stjórnsýslu stærri ríkja. Starfs- nnenn smáríkja hafa þurft að sveigja frá hinu formlega skipu- lagi stjórnsýslunnar til að sinna þeim fjölmörgu málum sem ESB aðild krefst á tilsettum tíma. Þetta er einkum raunin þar sem aðildarríki ESB hafa ekki breytt í veigamiklum atriðum skipulagi stjórnsýslunnar, það er skipurit og vinnuferli eru nnjög áþekk þeim sem voru til staðar áður en til aðildar kom. Smáríki hafa leyst aukið álag á stjórnsýsluna með því að taka ákvarðanir í auknum mæli á óformlegum fundum, með símtöl- um og tölvupósti. Smæð stjórnsýslunnar gerir þeim betur kleift að taka upp óformleg vinnubrögð þar sem starfsmenn eru líklegri til að þekkja hvern annan en innan stærri stjórn- sýslu og treysta hver öðrum í meira mæli. Starfsmenn stjórnsýslu stærri ríkja eru bundnir af hinu form- lega skipulagi stjórnsýslunnar og hafa mjög takmarkað svig- rúm til að bregða frá því. Allar ákvarðanir verða að fara upp hið píramítalaga stjórnskipulag þar til hægt er að taka hina form- legu ákvörðun á þar til gerðum stað. Það tíðkast t.d. ekki innan stjórnsýslu stærri ríkja að sendifulltrúar í Brussel hafi beint samband við deildarstjóra, ráðuneytisstjóra eða ráðherra sem taka lokaákvarðanir. Pað er hins vegar algengt innan smærri stjórnsýslu sérstaklega ef bregðast þarf skjótt við. Hlutverk sendifulltrúa í Brussel Hlutverk sendinefnda smáríkja í Brussel er mun viðameira en sendinefnda stærri rfkja. Smáríkin nýta sendifulltrúana sína í meira mæli en þau stærri til að sækja fundi innan ólíkra mála- flokka innan ESB. Þeir taka einnig virkan þátt í stefnumótun ráðuneyta í Evrópumálum. Sendifulltrúar stærri rfkjanna taka hins vegar engan þátt í hinu formlega stefnumótunarferli þar sem innan stærri ríkjanna er skýr verkaskipting milli deilda í ráðuneytum sem móta stefnu landsins og sendifulltrúanna í Brussel. Pátttöku sendifulltrúa smáríkja í stefnumótun má skýra með fámenni stjórnsýslunnar. Smáar stjórnsýslur þurfa á sendi- fulltrúunum að halda við stefnumótun þar sem þeim leyfist ekki sá munaður að hafa eins skýra verkaskiptingu á milli deilda í ráðuneytum og tíðkast hjá stærri ríkjum. Smáríki reyna einnig að nýta sér til framdráttar að sendifulltrúar ríkjanna í Brussel hafa oftast bestu heildaryfirsýnina yfir þau málefni sem verið er að glíma við innan ESB hverju sinni. Sendifulltrúarnir eru því kallaðir á formlega og ófomnlega fundi til að móta stefnu ríkis- ins og semja þar að auki fyrir hönd þess innan ESB. Stuðningur við sendinefndir Sendifulltrúum smáríkja finnst að þeim vanti meiri stuðning, þ.e.a.s betri upplýsingar og skýr markmið frá ráðuneytum í öðr- um málum en þeim sem snerta grundvallarhagsmuni ríkisins beint. Þeir þurfa að finna eigin leiðir til áhrifa innan samband- ins þar sem fyrirmæli að heiman eru af skornum skammti. Ráðuneyti og undirstofnanir þeirra hafa ekki yfir þeim mann- afia og fjármunum að ráða til að takast á við öll þau málefni sem upp koma innan ESB. Pað er því algengt að fulltrúar smáríkja fari á fundi innan ESB án nokkurra fyrirmæla úr viðkomandi Baldur Pórhallsson, Dr. f stjórnmálafræði og skorarformaður Stjórnmálafræðiskorar Háskóla íslands. Islenska leiðin • Starfshættir smáríkja innan ESB Bls. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Íslenska leiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.