Íslenska leiðin - 01.10.2001, Side 18

Íslenska leiðin - 01.10.2001, Side 18
aö kalla til liðs við sig sérfróða einstaklinga sem hafa tekið að sér að fjalla um álitamál sem snerta hin ýmsu svið Evrópusamvinn- unnar og eru niðurstöóur þeirra kynntar í fundaröð sem nú stendur yfir. Niðurstöður höfunda verða síðan gefnar út í vetur. í skýrslum höfundanna eru skilgreind hugsanleg samnings- markmið íslendinga og þau álitamál sem upp gætu komió ef kemurtil umsóknar aðildar að ESB. Skylda stjornmálaflokka Það er skylda stjórnmálaflokkanna að standa þannig að verki að við séum tilbúin að bregðast við breyttum heimi á skömmum tíma. Heimurinn bíður ekki eftir þeim sem standa kyrrir heldur þurfum við að vera á sífelldri hreyfingu til að veróa um ókomna framtíð í fremstu röð í samfélagi þjóóanna. Möguleikar lítillar og velmenntaórar þjóðar sem býr að ríkulegum náttúruauðlindum eru óendanlegir ef vel er á haldið og við látum hina öru þróun ekki fram hjá okkur fara. Það er óábyrg afstaða stjórnmála- manna og flokka að neitast að horfast í augu við nýja tíma. Á því fá komandi kynslóðir að kenna. Qkkar er að standa vörð um hag þeirra og skila þeim samfélagi sem er ekki einungis byggilegt heldur augljós kostur ungu fólki sem hefur heiminn að fótum sér. Viðfangsefni nútímasamfélaga ná langt yfir landamæri ríkj- anna og því verður að takast á við þau á alþjóóavettvangi. Til að mynda eru umhverfismál málaflokkur sem ríkin geta ekki ver- ið einráó um. íslensk stjórnvöld geta - því miður - ekki ákveðið það ein og sér að ekki verði mengun á íslandi. Framlag íslendinga til margra mikilvægra málaflokka gæti verið langtum meira með nánara samstarfi við Evrópusambandið. Þetta á einnig við um hinn alþjóðlega fjármálamarkað, en breytingar á þeim markaði geta haft afgerandi áhrif á íslenskt efnahagslíf. Svona mætti lengi telja. Spurningarnar eru fjölmargar og brýnt að leita svara við þeim með ábyrgum hætti. Sjálfur tel ég að kostirnir við aðild að Evrópusambandinu geti reynst þyngri á metunum en gallarnir, að því tilskildu að íslend- ingar einir nýti fiskimiðin. Niðurstöður einnar af Evrópuskýrsl- um Samfylkingarinnar benda eindregið f þá átt vegna reglu Evr- ópusambandsins um nauðsynlega veiðireynslu aðlldarríkja og framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála Evrópusambandsins staðfesti að svo verði í samtali við Morgunblaðið síðastliðið vor. í skýrslunni eru færð sannfærandi rök að því að ESB-aðild myndi styrkja íslenskan sjávarútveg. Helstu niðurstöður þeirrar skýrslu sem lýtur að langmikilvægasta málaflokknum, sjávar- útvegsmálum, þegar kemur að umræðum um aðild að Evrópu- sambandinu er að aðild að Evrópusambandinu væri minna skref en inngangan í evrópska efnahagsvæðið var á sínum tíma og að flest bendi til þess að núverandi sjávarútvegsstefna ESB sé íslendingum hagstæð. írska dæmið í skýrslunni er talið líklegt að ríkt tillit yrði tekið til okkar í ráð- herraráðinu og að nálægðarreglan, þar sem leitast er við að leysa öll mál á lægsta mögulega stjórnstigi, ynni einnig með okkur. Tillögur að samningsmarkmiðum eru m.a. aó enginn að- gangseyrir verði greiddur í formi veiðiheimilda, að mikilvægi ís- lensks sjávarútvegs og sérstaða hans og íslensks hafsvæðis yrði viðurkennd, að áfram verði byggt á veiðireynslu aðildarríkj- anna við úthlutun aflaheimilda, ísland fengi framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála ESB, komið verði í veg fyrir kvótahopp og sömuleiðis að verðmæti veiða fari úr landi þannig að útgerðarfyr- irtæki hafi raunveruleg og sterk tengsl við efnahag fslands t.d. Bls. 18 Endalokum sögunnar skotið á frest • íslenska leióin með því að landa meirihluta af aflanum hérlendis og velta hagn- aði veiðanna í gegnum íslenskt efnahagslíf. Sjávarútvegsmálin eru mikilvægust fyrir okkur íslendinga í hugsanlegum aðildarvið- ræðum. Hafi skýrsluhöfundar rétt fyrir sér aukast líkumar á því að íslendingar hefji aðildarviðræður við Evrópusambandinu á næstunni. Brýnt er því á næstu árum að ná sátt og samstöðu á meðal þjóðarinnar um samningsmarkmið í slíkum viðræóum. Ég deili ekki með ýmsum gömlum félögum mínum hræðslu þeirra við að fullveldi þjóðarinnar skerðist við aðild, eða hvar eru dæmin um hinar undirokuðu smáþjóðir innan Evrópusam- bandsins? frland er eitt skýrasta dæmið um afdrif Iftillar þjóð- ar innan þess. frland var framundir lok 20. aldarinnar meðal fátækustu þjóða Evrópu, einsog lýst er með dramatískum hætti í nýþýddri bók Frank McCourt, Ösku Angelu. Nú er öld- in önnur og írland komió í hóp þeirra ríkustu. írska efna- hagsundrið hefur vakið aðdáun um víða veröld og er það einkum rakið til inngöngu íra í Evrópusambandið og umbyltingar í menntamálum, í bland við ýmsa gjörbreytta þjóðfélagshætti sem fleyttu landinu í fremstu röð. Einhverntímann hefði það þótt saga til næsta bæjar að írland ætti eftir að nálgast Bretland í þjóðartekjum og velsæld. Lífsskil- yrði þessara tveggja nágranna voru gjörólík en árið 1996 sigl- di írland fram úr Bretlandi í þjóðarframleiðslu og hagvöxtur er þar meiri og er þó blússandi velgengni f bresku efnahagslífi eftir að jafnaðarmenn tóku viö völdum. Fátæktin og vesöldin á írlandi áttu sér ýmsar augljósar skýringar. Þar ríkti hafta- stefna í efnahagsmálum og kúgun innan samfélagsins, ofurá- hersla var lögð á landbúnað sem aðalatvinnuveg þjóðarinnar og lítil sem engin sókn var í nýjum greinum fram eftir öldinni. Nú er samfélag írskra gjörbreytt og innganga írlands íEvrópu- sambandið árið 1973 olli straumhvörfum í þjóðfélaginu. Evrópu- sambandsaðildin hleypti nýju lífi í landið og veitti því tækifæri til framkvæmda ýmsar nauðsynlegar efnagsumbætur og opna hagkerfið út á við. Á þrjátíu árum tvöfaldaðist útflutningurinn og með skattaívilnunum löðuðu þeir að fjölda erlendra fjárfesta sem skilaði þeim miklum hagvexti. Sem dæmi má nefna að írar eru stórveldi í hugbúnaðarframleióslu og framleiða um helming af öllum viðskiptahugbúnaði í Evrópu og um 40% af einkatölvu- hugbúnaði. Þá má nefna að hinni írsku hagsæld hafa fylgt auk- in alþjóðleg áhrif og virðing sem meðal annars koma fram f ná- inni samvinnu stjórnanna í Dyflinni og Lundúnum að lausn hinna hörmulegu átaka á Norður-írlandi. Margt er með öðrum hætti á íslandi og eyjunni grænu. Dæmi hinnar stoltu smáþjóð- ar sem þar býr hlýtur þó að vekja athygli okkar. Forðumst einangrunarhyggju Það er eðlilegt að við íslendingar, sem urðum ekki fullgild þjóð meðal þjóða fyrr en fyrir fimm áratugum rúmum, förum gæti- lega við alþjóðlegar skuldbindingar, sérstaklega vegna þess að á fyrri áratugum lýðveldistímans ollu utanríkismál miklum og erfiðum deilum í landinu. Slík varkárni má þó ekki leiða til ein- angrunarhyggju. Þegar rætt er um utanríkismál mega málefni þriðja heimsins, þróunarlandanna, aldrei gleymast. Þar búa ýmsir hinna minnstu bræðra og það er okkar að veita þeim lið meðan þeir brjótast til bjargálna. Fáar þjóðir hafa lifað aðra eins fátækt og við íslendingar öldum saman og því þekkjum við flestum þjóðum betur hve erlend aðstoð skiptir miklu til að fá hjól hins heilbrigða mannlífs til að snúast á ný. Enginn er eyland og skylda okkar við fátækustu þjóðir heims eru miklar og ríkar. íslendingar hafa

x

Íslenska leiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.