Íslenska leiðin - 01.10.2001, Page 55

Íslenska leiðin - 01.10.2001, Page 55
Varnarsamstarf á nýrri öld Ingvi Hrafn Oskarsson J Að mörgu leyti er erfitt að fjalla um alþjóðamál um þessar mundir. Hryðjuverkin sem framin voru í Bandaríkjunum þann 11. september síðastliðinn breyta framtíðarsýninni, þó enn eigi eftir að skýrast betur hve breytingarnar verða miklar og djúp- stæðar. Atburðirnir sýndu hins vegar Ijóslega fram á að þörfin fyrir vamarsamstarf vestrænna ríkja er ekki síður knýjandi nú en á tímum kalda stríðsins. Með aðild sinni að Atlandshafsbandalaginu tóku fslendingar af skarið um að þeir teldu rétt og mikilvægt að hafa ákveðna af- stöðu í þeirri nýju skipan alþjóðamála sem var þá að mótast eft- ir lok seinni heimstyrjaldarinnar. Með aðildinni og sérstökum varnarsamningi við Bandarfkin tryggðu íslendingar öryggi þjóð- arinnar á vályndum tímum og staðfestu stuðning sinn við fram- gang lýðræðis og frelsis í heiminum. Þessi ákvörðun var til að byrja með verulega umdeild meðal landsmanna en eftir því sem stuðningsmönnum við helstefnu kommúnista fækkaði hér á landi varð eðlilega betri sátt um aðildina að NATO. Frá stofnun Atlandshafsbandalagsins hafa aðildarríkin búið við frið og þar með hefur meginmarkmiði bandalagsins verið náð til þessa dags. Tekist hefur að tryggja að hervaldi væri ekki beitt gegn borgurum aðildarríkjanna og skapa með því grundvöll fyrir vel- megun og lýðræðislega stjórnarhætti. Með hruni kommúnismans breyttist heimsmyndin verulega og þar með að sjálfsögðu áherslur og starfsemi NATO. Sú ógn sem vestrænum lýðræðisríkjum stafaði af Sovétríkjunum sál- ugu og bandamönnum þeirra var skyndilega úr sögunni. Atlandshafsbandalagió taldi sig þó réttilega enn hafa hlutverki að gegna og hefur með ýmsum hætti á liðnum árum stuðlað að friði á átakasvæðum í heiminum. Nægir þar að nefna mikilvægt framlag bandalagsins til friðargæslu en íslensk stjórnvöld hafa nýlega ákveðið að leggja meira af mörkum á þeim vettvangi. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum kristalla hins vegar að ýmsar hættur steðja enn að þótt „Veldi hins illa", sem Ronald Reagan nefndi svo, hafi hrunið. Raunar hafa stríð geisað víða í heiminum á liðnum áratugum, þóttfriðsælt hafi verið á Vesturlöndum. Um það bil 50 milljónir manna hafa látist í átökum víða um heim eft- ir lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Vopnuð átök eru því ekki úr sög- unni og þess er sjálfsagt ekki að vænta á næstunni. Atlantshafsbandalagið hefur nú tekið þá tímamótaákvörðun að jafna hryðjuverkunum í Bandaríkjunum við stríðsárás og fella at- burðina undir 5. grein sáttmála bandalagsins. fsland, eins og önnur aðildarríki, hefur því lýst yfir stríði gegn glæpaflokkunum sem þar stóðu að verki. Þessi ákvörðun er eðlileg því Ijóst má vera að hryðjuverkunum var ekki einvörðungu stefnt gegn því saklausa fólki sem féll í valinn, heldur einnig vestrænni menn- ingu og gildum. Til sanns vegar má færa þau orð George W. Bush forseta að „sjálft frelsið" hafi orðið fyrir árás. I þeim átökum sem framundan hljóta að vera við hermdar- verkamenn munu sem fyrr aðildarríki NATO fara fyrir öðrum lýðræðisþjóðum. Þó að framlag íslendinga til þeirrar baráttu muni ekki ríða baggamuninn getur það ekki annað en styrkt hana og það eitt er nægileg ástæða að mínum dómi fyrir þátt- töku. Okkur íslendingum ætti að sjálfsögðu að vera kappsmál að skipa okkur í sveit með þeim þjóðum sem varðveita vilja frið og lýðræði í heiminum. Það var okkur kappsmál þegar við gengum í Atlantshafsbandalagið og ætti ekki að vera okkur minna kappsmál nú. ísland er herlaust smáríki, en á þó fulla aðild að Atlandshafs- bandalaginu. Varla þarf að hafa mörg orð um hve mikið þessi að- ild eykur vægi íslendinga á alþjóðavettvangi. Aðildin tryggir að rödd okkar heyrist þar sem ákvarðanir eru teknar um öryggis- og varnarmál í heiminum. Engin skynsamleg rök hafa verið færð fyrir því að íslendingum sé kleift aó hafa viðlíka áhrif utan bandalagsins. Frumskylda ríkisvaldsins er að tryggja landvarnir og öryggi borgaranna. íslendingar hafa kosið að koma ekki á fót eigin her og eiga því þann kost einan að eiga samstarf við bandamenn sína um að tryggja varnir landsins. Nokkuð hefur borið á því sjónarmiði eftir lok kalda stríðsins að fslendingar þurfi ekkert að óttast, aðildin að NATO og vera varnarliósins hér sé því í besta falli óþörf. Rétt er að hernaður gegn fslandi hefur ekki verið tal- inn sérstaklega líklegur, en atburðirnir í Bandaríkjunum hljóta þó að leiða til þess að ýmsir þættir öryggismála okkar verði endurskoðaðir. Jafnvel þótt niðurstaðan verði sú, að hér sé fátt að óttast eins og margir hafa talið hingað til, er fyllsta ástæða til þess að halda uppi þeim landvörnum sem kostur er á. Hið fjar- læga og fráleita á það nefnilega til að verða á svipstundu að köld- um veruleik. Þann lærdóm höfum við dregið af atburðunum þann 11. september sl. Evrópusamstarf íslendingar eiga á mörgum sviðum mikilvægt samstarf við önn- ur Evrópuríki. Hér að ofan hefur verið fjallað um aðild íslands að Atlandshafsbandalaginu sem er hornsteinn stefnu okkar í ör- yggis- og varnarmálum. fslendingar eiga aðild að Evrópuráðinu og hafa fært í lög Mannréttindasáttmála Evrópu sem nú hef- ur mikla þýóingu í allri íslenskri lagaframkvæmd. fsland er hluti af hinu Evrópska efnahagssvæði sem tryggir viðskiptahags- muni okkar í ríkjum Evrópusambandsins. Nýlega gekk aðild ís- lands að Schengen samkomulaginu í gildi og höfum við því lagt niður landmæraeftirlit [persónueftirlit] gagnvart borgurum í aðildarríkjum samkomulagsins. Á grundvelli þess höfum við gert sérstakan samstarfssamning við EUROÞOL, löggæslu- stofnun Evrópu, en mikil lögreglusamvinna leiðir af Schengen samstarfinu. Hér að ofan eru raktir mikilvægir þættir þeirrar Evrópusam- vinnu sem íslendingartaka þátt í, sem nýtur að mestu leyti ein- dregins stuðnings landsmanna. Þegar rætt er um hugsanlega aðild íslands að ESB vill þetta vfðtæka samstarf sem við tökum Ingvi Hrafn Óskarsson, formaður Sambands mk ungra sjálfstæðismanna íslenska leiðin • Varnarsamstarf á nýrri öld Bls. 55

x

Íslenska leiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.