Íslenska leiðin - 01.10.2001, Side 58
Verum gagnrýnir þátttakendur
I #w*si 1 i nf.
i dlUluUdbdnIbbdl II
J Katrín Júlíusdóttir
íslendingar, sem hluti af alþjóðasamfélaginu eru og verða að
vera þátttakendur í öflugu samstarfi meðal þjóðanna. Sam-
starf við aðrar þjóðir er gríðarlega mikilvægt og ekki síst á þess-
um tímum sem við lifum nú. Það skiptir okkur, eylandið fsland,
afar miklu máli að vera í góðu samstarfi við aðrar þjóðir í efna-
hagslegu, öryggislegu og félagslegu tilliti. Erum við nú þegar að-
ilar að NATO og hefur það ætíð verið umdeild þátttaka. Ætla ég
ekki í þessu greinarkorni að fara djúpt ofan í sögu þess sam-
starfs en koma þó aðeins inn á hlutverk þess. Stærsta spurn-
ingin og mikilvægasta spuming okkar íslendinga er hinsvegar
sú hvort við ætlum og eigum að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu. Þessi spurning snertir öll svið íslensks þjóðlffs.
EES er grundvöllur hagsældar síðustu ára
Meðal þeirra samninga sem við erum þátttakendur í er samn-
ingurinn um evrópska efnahagssvæðið [EES]. Sá samningur er
grundvöllur þeirrar velsældar sem við höfum búið við undanfar-
in ár . Við höfum notið heilmikils í gegnum þann samning í til
dæmis efnahagslegu, félagslegu og menntalegu tilliti. íslend-
ingar fengu þannig aðgang að innri markaði Evrópusambands-
ins og aðgang að styrkjakerfum Evrópusambandsins á hinum
ýmsu sviðum og þá sér í lagi að þeim styrkjum sem veittir eru
til menntamála og nýsköpunar. Það er þó einn hængur á.
Vegna EES-samningsins tekur ísland yfir um 85% af allri laga-
setningu sambandsins á t.d. sviði neytenda- samkeppnis og
menntamála. Þó hafa íslendingar ekkert um þessar lagasetn-
ingar að segja vegna þess að við erum ekki fullgildir aðilar að
sambandinu. Fulltrúar íslendinga geta komið sínum sjónarmið-
um að í upphafi samþykktarferilsins en hann tekur yfirleitt gríó-
arlegum breytingum eftir að hafa farið í gegnum allar stofnan-
ir sambandsins. Ef íslendingar myndu ákveða að samþykkja ekki
ákveðna tilskipun færi EES-samningurinn í uppnám. Þegar
samningurinn var gerður var hann gerður við hina svokölluðu
EFTA-blokk sem þá skipti töluverðu máli. Síðan þá eru eingöngu
íslendingar, Norðmenn, Svisslendingar og Lichtenstein eftir í
EFTA. Evrópusambandið er hins vegar að stækka til austurs og
hafa nú 12 ný ríki sótt um aðild að sambandinu og munu þó
nokkur þeirra ganga inn innan fárra ára. Samningsstaða hinn-
ar fyrrum EFTA-blokkar er því gerbreytt. Það eru því draumór-
ar hjá þeim stjórnmálamönnum á íslandi í dag sem halda að við
getum útvíkkað, breytt eða styrkt samninginn á komandi árum
í stað þess að ganga inn. Samningurinn tekur ekki til t.d. sjávar-
útvegs, öryggis- og dómsmála eða peningamála. Áherslan á
þessa þætti er hinsvegar að aukast innan sambandsins og því
Ijóst að EES-samningurinn er að ganga sér til húðar.
íslendingar eiga að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu
Við í Ungum jafnaðarmönnum viljum að fsland sæki um aðild að
Evrópusambandinu sem allra fyrst. í kjölfarið á aðildarumsókn
hefjist aðildarviðræður þar sem samningsmarkmiðin eru að tryg-
gja íslenska langtímahagsmuni sem best. Það sem er þó lykil-
atriði varðandi umsóknaraðild er að í lok aðildarviðræóanna verði
aðildarsamningurinn borinn undir þjóðaratkvæði og mun því ís-
lenska þjóðin hafa síðasta orðið hvort af aðild íslands að Evrópu-
sambandinu verður. íslenska þjóðin á að hafa síðasta orðið í
þessum efnum því spurningin um aðild okkar aó Evrópusam-
bandinu er langtíma fyrirkomulag. Eins og staðan er í dag
erum við með forsætisráðherra sem ekki ertilbúinn til að ræða
einu sinni hvort ganga eigi til samninga við Evrópusambandið.
Engu að síður höfum við nýlegar kannanir þar sem sýnt er að
íslenska þjóðin vill sækja um inngöngu að sambandinu. Það er
ábyrgðahluti að íslenskir ráðamenn hlusti á þessar raddir. Við
erum að missa af lestinni, gengi krónunnar er sveiflukennt, ís-
lenskt efnahagslíf er sveiflukennt vegna þess að við erum að
reka efnahagskerfi sem haldiö er uppi af 270.000 manns, auk
sérstaks gjaldeyris fyrir þessa sömu tölu einstaklinga sem
varla flokkast undir aó fylla borg á evrópskri grund. Gengjum við
í Evrópusambandið myndi opnast 380.000* milljón manna
markaður fyrir íslenskar afurðir.
*innan fárra ára verður þessi tala orðin 500 milljónir þegar ný aðildarriki hafa
verið tekin inn.
Evrópusambandið og fullveldið
Til að koma í veg fyrir að hörmungar síðari heimsstyrjaldarinn-
ar gætu endurtekið sig fór af stað margs konar alþjóðlegt sam-
starf í heiminum. Meðal annars jókst samvinna Evrópuríkjanna
til muna. Hluti af hugmyndafræði Evrópusambandsins er að
tengja saman hagsmuni Evrópuríkjanna þannig að ríkin lendi
síður í ófriði við hvert annað. Ríki sambandsins vinna saman í
mörgum málaflokkum, s.s. í mannréttinda-, atvinnu-, mennta-,
viðskipta- og félagsmálum.
EES-samningurinn var eins og áður sagði mjög stórt skref fram
á við í íslensku samfélagi og má þakka honum stóran hluta af
efnahagslegum uppgangi síðustu ára. EES-samningurinn gaf
íslandi aðgang að svokölluðum innri markaði Evrópusambands-
ins með fjórfrelsinu. ísland hefur mjög takmarkaða möguleika
til að hafa áhrif á ákvaróanatöku sem snertir innri markaðinn
og tekur ekki þátt í þeim þáttum Evrópusamstarfsins sem
verða sífellt mikilvægari, svo sem í utanríkismálum, öryggis- og
dómsmálum, byggðamálum, efnahags- og peningamálum. Evr-
ópuþingið verður einnig sífellt mikilvægara en EES-samningur-
inn veitir íslandi engan aðgang að störfum þess. Samningurinn
veitir ekki heldur aðgang að störfum leiðtogafundar ESB né
vinnunefndum ráðherraráðsins.
í dag verða íslendingar að lögleiða allt að 85% af löggjöf Evrópu-
sambandsins án þess að hafa áhrif á ákvarðanaferli ESB-lög-
gjafarinnar. Aðild fslands að Evrópusambandinu er því hluti af
sjálfstæðisbaráttu en er ekki fullveldisafsal. Þetta er spuming
um að vera stoltur þátttakandi meðal þjóóanna, ekki eingöngu
þiggjandi.
Katrín Júlíusdóttir, formaður
ungra jafnaðarmanna
Bls. 58 Verum gagnrýnir þátttakendur í alþjóóasamstarfi • Islenska leiðin