Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2022, Blaðsíða 3

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2022, Blaðsíða 3
3 Markmiðið var að fræðast um ÖBÍ, hvaða hlutverki það gegnir í samfélaginu og þá þýðingu sem það hefur fyrir aðildarfélög á borð við Lungnasamtökin að vera innan vébanda þess. Fyrst vildum við þó fá að heyra af Þuríði sjálfri og hvað hafi orðið til þess að hún gerðist formaður bandalagsins. “Ég hef eins og margir aðrir farið í gegnum lífið á þægilegan og einfaldan máta, glímdi hvorki við sjúkdóma né annað, þannig að ég hafði aldrei sett mig inn í þennan málaflokk,” segir Þuríður þegar við höfum komið okkur fyrir á skrifstofunni hennar. “Svo var það árið 2007 að ég varð fyrir því að detta af hestbaki og var svo óheppin að lenda með bakið beint ofan á steinnibbu og brjóta þrjá hryggjar- liði, fjölda rifbeina og skaddast á mænu, með þeim afleiðingum að ég hreyfði fæturna aldrei aftur. Þetta er nú eiginlega for- sagan,” segir hún blátt áfram þar sem hún situr í hjólastól við skrifborðið sitt. Þuríður bjó í Skagafirði, menntuð sem grafískur hönnuður og var á þessum tíma framkvæmdastjóri prentsmiðju. Hún hafði verið í vinnunni en skotist frá til að hjálpa til við að koma hrossum í sumarhaga en ætlaði svo að snúa aftur til vinnu að því loknu. “Ég bað samferðamann minn að hringja í 112 og fá sjúkrabíl eins og skot og svo var mér flogið á Borgarspítalann þar sem ég fór í uppskurð strax morguninn eftir, var spengd og meðhöndluð eins og þurfti. Ég fór svo í endurhæfingu inn á Grensásdeild, þrem vikum seinna.” Slysið átti sér stað 26. apríl þegar Þuríður var rétt nýorðin fertug. Hún er þriggja barna móðir og voru börnin öll orðin stálpuð, tólf ára stelpa, 14 ára strákur, nýfermdur og einn tvítugur. “Þetta breytti náttúrulega alveg gríðarlega miklu fyrir þau,” heldur hún áfram, atburðurinn greinilega ljóslifandi fyrir henni. Hún bætir við að öll fjölskyldan og margir í kringum hana hafi orðið fyrir áfalli og upplifað miklar breytingar líka. Hún kemur úr stórum systkinahópi, er elst 6 systkina og foreldrar hennar voru báðir á lífi á þessum tíma. Ætlaði að gera allt aðra hluti í lífinu Þuríður sneri ekki heim fyrr en í október eftir að hafa verið yfir sumartímann í endurhæfingu. Þarna var hún farin að nota hjólastól og var búin að læra að keyra og taka stólinn inn í bílinn og verða sjálfbjarga sem hún átti að vísu eftir að öðlast meiri færni í. “Ég ætlaði að fara að gera allt aðra hluti í lífinu, en það kúventist og ég þurfti að skilja í hvaða lífi ég væri allt í einu lent en var nú tiltölulega fljót að átta mig á því, þó það tæki tíma að sættast við það,” bætir við hálfbrosandi. "Ég bjó við mikil forréttindi. Ég var á vinnustað sem var á einni hæð, aðgengið að honum var bætt svo að auðvelt var að komast inn. Ég hafði unnið við tölvur frá því ég útskrifaðist úr námi og gat tekið á móti viðskiptavinum mínum áfram. Í rauninni var þetta því eins lítil breyting eins og hægt var í mínu starfsumhverfi, það eru fæstir svo heppnir.” Þuríður segir að reyndar hafi sér liðið mun skár á vinnustaðnum á þessum tíma heldur en heima. Ekkert eðlilegt né réttlátt við að fatlað fólk sé með 25% lægri laun en lágmarkslaunin kveða á um Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, veitti okkur viðtal nú á haustdögum í björtum og notalegum vistarverum bandalagsins í Sigtúni.

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.