Heima er bezt - 01.04.2002, Page 5
VAKANDI
FRAMF ARAHU G
Rabbað við
Amljót Sigurjónsson
rajvirkjameistara
frá Húsavík.
Hafa lagt sitt að mörkum
til samfélagsins
aman fara sólskin og norðan-
nepja eins og svo oft á sér stað
þegar veður er fagurt við Faxaflóann.
Laufið, gult og rautt, þekur gang-
stéttirnar og nakin trén norpa í görð-
unum við húsin. Það eru komnar vet-
urnætur.
Grenimelur 40 í Reykjavík. Þar
hafa hjónin Arnljótur Sigurjónsson
og Ásta Jónsdóttir búið síðan þau
íluttu að norðan árið 1986. Annars
var heimili þeirra áratugum saman á
Húsavík við Skjálfanda. Þar í bæ
voru þau mætir borgarar og komu
víða við sögu. Hún gat sér mjög gott
orð sem kennari og formaður kvenfé-
lagsins svo dæmi séu tekin. Hann var
aftur á móti starfandi rafverktaki í
sýslunni en fórnaði jafnframt ómæld-
um tíma í ýmis félagsstörf. Hann var
bæjarfulltrúi á Húsavík 1966-1978,
forseti bæjarstjórnar 1970-1974 og
bæjarráðsmaður 1974-1978. Hann
var í stjórn Hitaveitu Húsavíkur, Ut-
gerðarfélagsins Höfða, Hótels Húsa-
víkur og Héraðsskjalasafnsins. Hann
var í trúnaðarráði Dvalarheimilis
aldraðra, í byggingarnefnd Safnahúss
Heima er bezt 149