Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 32
▲ Hópmynd af ferðafélögunum úr Öskjuferðinni 1963, í tilefni komu frönsku
hjónanna Renée og Marc Henriet frá París, til Islands sumarið 2000 eða 37
árum eftir að Öskjuförin var farin. Þeir eru frá vinstri: Valdimar Samúelsson
Ritchie, Börkur Arnljótsson, Lovísa Einarsdóttir, Sigmundur Karl Ríkarðsson,
Marc Henriet, Renée Henriet, Axel Guðmundsson, Þorsteinn Hjaltason, Guð-
mundur Hervinsson, Örn Proppé, Guðrún B. Tómasdóttir, Guðmundur Sœ-
mundsson og Þórður Henríksson.
Fjórða dag ferðarinnar, sunnudag-
inn 11. ágúst, hvíldumst við í Herðu-
breiðarlindum, en þar var þá komið
sæluhúsið Þorsteinsskáli. Þar héldum
við kveðjukvöldvöku fyir samferða-
fólk okkar norður yfir öræfin, sem
áður er nefnt, því næsta dag ætlaði
það að halda heimleiðis aftur, þjóð-
veg til Reykjavíkur.
Svo bar til að Steindór Steindórs-
son frá Hlöðum, var staddur í Þor-
steinsskála þessa helgi og varð hann
góðfúslega við bón okkar að segja
nokkuð frá óbyggðunum og kynnum
sínum af þeim. Best þótti okkur að
heyra reimleikasögur hans úr fjalla-
kofum og sæluhúsum, eins og til
dæmis frá sæluhúsinu við Jökulsá,
Hálsakofa undir Snæfelli, sæluhús-
inu í Hvítárnesi og víðar.
Mánudaginn 12. ágúst héldum við
brott úr Herðubreiðarlindum austur
til Egilsstaða með viðkomu á Gríms-
stöðum, í Möðrudalskirkju og eyði-
býlum á Jökuldalsheiði. Fyrr um
daginn hafði verið gerður stuttur
stans í dalverpi eða gíg Hrossaborg-
arinnar, því þar var einstaklega gott
að ná talstöðvarsambandi úr bílnum
við Gufunesradíó og Reykjavík.
Næstu daga ferðuðumst við í ein-
stakri veðurblíðu um Austfirði,
Norður- og Austurland og ókum loks
Kjalveg úr Blöndudal til Suðurlands.
Annars voru gististaðir okkar síðari
hluta ferðarinnar á eftirtöldum stöð-
um:
Atlavík, Norðfirði, Egilsstöðum,
Raufarhöfn, Hólmatungum, Reykja-
hlíð, Akureyri og Hvítárnesi, en það-
an lögðum við upp í síðasta áfangann
til Reykjavíkur um Gullfoss,
Lyngdalsheiði og Þingvöll, þann 20.
ágúst.
Mikið er allt orðið breytt í vega-
málum landsins, eins og til dæmis
Norður- og Austurlands frá þessari
síðsumarsferð 1963. Þá skein sól
sunnan þegar við ókum um hlað á
Grímsstöðum og í Möðrudal, en nú
hafa þessir bæir báðir horfið úr þjóð-
braut og sömu sögu er að segja um
Jökuldalsheiðina, þar sem þjóðveg-
urinn lá áður um túnfót í Rangárlóni
við norðurenda Sænautavatns en er
nú marga kílómetra í burtu. Allgóður
vegur er nú kominn upp að Snæfelli,
bæði úr Hrafnkelsdal og Fljótsdal
enda mikil umferð á þessum slóðum,
svo mikil að draugurinn úr Hálsa-
kofa kvað vera fluttur þaðan, að
kunnugra sögn.
Síðsumarsdagar á hálendi íslands
eiga sér oft töfra lognværðar og heið-
ríkju sem óvíða er að finna annars
Öskju skal bent á bækur Ólafs Jóns-
sonar, Ódáðahraun I-III, Árbók
Ferðafélags íslands 1981 (Ódáða-
hraun) eftir Guðmund Gunnarsson,
Landið okkar eftir Pálma Hannesson,
Isafold eftir Viktorinu von
Grumbkow og Eldur í Öskju, eftir
Sigurð Þórarinsson. —
A Jón bóndi Stefánsson í kirkju sinni
í Möðrudal. Hjá honum stendur Hall-
grímur Jónasson kennari.
staðar í víðri veröld og svo
var einnig þessa ágústdaga
fyrir nær fjórum áratugum
og reyndar í fleiri ferðum
mínum um landið á síðari
helmingi þeirrar aldar sem
nú hefur kvatt, því upp úr
óbyggðaferðinni 1963
varð til óformlegur ferða-
klúbbur sem starfaði í
nokkur ógleymanleg ár
undir forystu Péturs Pét-
urssonar. Hér verður
brugðið upp nokkrum
svipmyndum úr þessum
ferðum, sem eru frá ýms-
um tímum og stöðum árin 1963-
2001.
Þeir sem vilja fræðast nánar um
172 Heima er bezt