Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 29
lögðust í eyði vegna gjóskulags og
margir Norðmýlingar fluttust þess
vegna til Vesturheims.
Gígurinn er talinn vera um 150
metrar í þvermál og um 60 metra
djúpur niður að brúngulu vatnsborð-
inu í botni hans. Síðar átti ég eftir að
fá mér sundsprett á þessum undar-
lega stað ásamt fleirum, en það er
önnur saga.
Frá Víti röltum við vestur að
Knebelsvörðunni svonefndu, sem
Þjóðverjarnir, þau Viktorina von
Grumbkow og Flans Reck, hlóðu
þarna sumarið 1908, til minningar
um tvo landa sína, þá Max Rudloff
og Walter von Knebel, er fórust
þarna við rannsóknarstörf
sumarið áður og var talið
að þeir hefðu drukknað í
vatninu, en sá síðarnefndi
var heitbundinn ungfrú
Grumbkow. Erindi þýsku
stúlkunnar að Öskjuvatni
þessa sumardaga 1908
var að sjá staðinn og leit-
ast við að afla upplýsinga
um afdrif unnustans, sem
var þó árangurslaust.
Sagt var að stúlkan hefði
sökkt litlum kistli í vatnið
er hafði að geyma sam-
eiginlegar minjar hennar
og Walter von Knebels.
Eftir að hafa klappað
nöfn þeirra Max Rudloffs
og Walter von Rnebels á
grágrýtishellu í vörð-
unni, sem enn var sjá-
anleg 1963, yfirgáfu
þau ungfrú Grumbkow
og Flans Reck síðan
Öskju og héldu heim-
leiðis aftur.
Síðar skrifaði Vikt-
orina von Grumbkow
bók um Islandsferð-
ina sem hún nefndi
ísafold og kom út í
Berlín 1910.
Þarna sagði hún
skilið við fortíð sína og giftist síðar
Hans Reck, sem var fylgdarmaður
hennar í íslandsferðinni.
Bókin Isafold var gefin út á ís-
lensku árið 1982 í ágætri þýðingu
◄ Frá Vikra-
borgum í
Öskju 1964.
T Spjallað um
jarðfræði við
Öskjuvatn
sumarið '63.
◄ Litið ofan i Viti við
Öskju og gönguleiðin
niður að vatninu ligg-
ur eftir gjánni beint á
móti og sumarið '63 lá
bílaslóð upp á gíg-
barminn að norðan-
verðu.
T Þarna er hópur
fólks að búa sig til
sunds í gígvatninu
sumarið '64.
◄ Knebels-
I varðan, sem
þau Viktorina
von Grumb-
kow og Hans
Reck hlóðu á
norðurbakka
Öskjuvatns
sumarið 1908.
Haralds
urðssonar.
Haft er fyrir satt að flestir
þeir þýsku ferðantenn sem til
íslands koma og um landið
Heima er bezt 169