Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 13
ekki einu sinni hjá flokksbræðram mínum. Ég lét samt á það reyna og flutti tillögu um efnið og hún var kolfelld. Svo liðu nokkur ár og þá fór ekki framhjá neinum að þessi togara- útgerð var orðin staðreynd hvarvetna á íslandi. Þá fyrst fórum við að líta í kringum okkur og áttum nú fárra kosta völ. Síðast lentum við í því að kaupa fjölveiðiskip, sem Vestmanna- eyingar voru að láta smíða fyrir sig á Akranesi, en hættu við. Við létum síðan ljúka þeirri smíði og það var skipið Júlíus Hafstein. En þrátt fyrir allt voru margir á móti þessu og málsmetandi maður sakaði mig um að vilja innleiða togarasvall í bæinn. Ég man að ég hrökk ónotalega við. En staðreyndin er sú að við fórum of seint af stað, Húsvíkingar lentu aftar- lega á merinni í þessu og ég held að þeir hafi aldrei náð sínum hlut.“ Enginn veit hvað undir annars stakki býr „Þegar ég kom hér suður gerðist ég tækjavörður hjá Líffræðistofnun Há- skóla íslands. Það var mjög fjöl- breytt starf. Eg sá um innkaup og uppsetningu og viðhald tækja. Enn fremur sá ég um smíði á alla vega áhöldum og tólum til notkunar þar í stofnuninni. Starfið var skemmtilegt, ekki síst vegna þess að maður kynnt- ist fjölmörgu ágætu fólki. Ég átti að hætta þarna þegar ég varð sjötugur en var endurráðinn með einfaldri bókun. Nú er eitt ár liðið frá mínum starfslokum. Þá hafði ég unnið þarna í fimmtán ár. Enda þótt rafvirkjunin hafi orðið mitt ævistarf finnst mér að tækni- sviðið hafi ekki verið minn heima- völlur, þegar allt kemur til alls. Áhuginn hefur meira beinst að ýms- um sviðum hugvísinda. Frá fyrstu tíð hef ég verið að glugga í eitt og ann- að, en varast samt að festast í nokkru sérstöku. Ég hef til dæmis aldrei orð- ið heltekinn af einhverjum ákveðn- um höfundi og setið fastur í verkum hans. Frekar hef ég farið vítt og breitt og vel má vera að þannig hafi ég öðlast einhverja yfirsýn. Aftur á móti eru það þín orð að ég hafi staðið mig vel í einhverjum spurningakeppnum. Satt að segja finnst mér ég vita ákaflega lítið og því minna sem ég les meira. Allir sem lesa og grúska komast áreiðan- lega að sömu niðurstöðu. Eins og þú sérð þá á ég töluvert bókasafn. Þar fer lítið fyrir skáldsög- unum. í hillunum eru fræðibækur, einkum sagnfræði og þess háttar svo og ljóð. Ljóðin eru í uppáhaldi hjá mér. Svolítið hef ég bundið inn sjálf- ur af mínum bókum. Fræðagrúsk hefur lengi átt hug minn allan. Ég byrjaði snemma að velta fyrir mér gamalli stafagerð og gömlum textum. Ég kann ekki að skýra hvernig áhuginn vaknaði fyrir því. Ég hef í nokkrum mæli viðað að mér fornum skáldskap og eytt tals- verðum tíma í að brjóta hann til mergjar mér til mikillar ánægju. Þessa stundina er ég að fara yfir gamlar sálmaþýðingar og gamla sálmatexta frá sextándu og sautjándu öld. Það veitir mér ómælda ánægju. Þessi vinna er unnin fyrir ákveðna aðila hér í borginni, ef þetta dund getur á annað borð kallast vinna. Hér er ég með tvær spjaldskrár í kössum. Það hefur farið drjúgur tími í að gera þær. Önnur þeirra er rita- skrá Þingeyinga. Ég byrjaði á henni um 1970 og reyndar hefur nú verið fjallað um hana á prenti áður. Ég hugsaði mér að koma í spjaldskrá öllu því sem skrifað hefur verið af Þingeyingum frá fyrstu tíð til okkar daga. Ég hef aflað mér upplýsinga ansi víða og nú eru einir þúsund ein- staklingar komnir á spjöld. Þeir eru Þingeyingar flestir, margir skáld og sumir rithöfundar. Enn fremur er hér spjaldskrá um Guðmund Hannesson lækni. Það var einu sinni meiningin að einhver fær maður fengi hana til afnota og skrif- aði bók um Guðmund Hannesson. Einhverra hluta vegna hefur aldrei orðið neitt úr því. Satt best að segja skil ég ekkert í læknasamtökunum að hafa ekki látið gera bók um þennan merka mann fyrir löngu. En hvað sem því líður þá á ég spjaldskrána og hún sýnir svart á hvítu að þessi Hún- vetningur var einhver mikilhæfasti íslendingur, sem uppi hefur verið. Passíusálmarnir lesnir á Keili „Þegar við fluttum hér suður þótti mér slæmt hvað ég var ókunnugur á svæðinu. Mig langaði til að verða bærilegur heimamaður sem allra fyrst og greip til minna ráða í því sambandi. Ég tók herforingja- ráðskortið og skráði upp úr því öll fjöll og hæðir sem eru tvö hundruð metrar yfir sjó á Reykjanesi, alveg inn að Skálafelli, sunnan Hellisheið- ar, að Skálafelli við Esju með línu um Þingvallavatn. Þegar skráningu lauk reyndust hæðirnar vera á annað hundrað. Við svo búið fór ég að ganga á kollana og krossaði við á listanum mínum eftir hverja ferð. Ég gekk gjarnan á tvær eða þrjár hæðir sömu helgina og las mér til um þær og nágrenni þeirra bæði á undan og eftir og hafði af þessu hina mestu ánægju. Þegar ég var farinn að átta mig á staðháttum og vissi hvaða leið- ir mér þóttu athyglisverðastar og hvar útsýnið var fegurst hafði ég öðl- ast býsna mikla þekkingu á svæðinu. Þegar ég talaði við staðkunnuga menn varð mér ljóst að ég var að verða manna fróðastur um eitt og annað. Þegar ég benti þeim á hin ýmsu kennileiti urðu sumir afar undrandi og sögðu: „Nei, hvað seg- irðu, heitir þetta nú eitthvað sérstakt? Það höfðum við ekki hugmynd um.“ Undir niðri þótti mér mjög skemmti- legt að vera allt í einu orðinn sér- fræðingurinn í hópnum. En að öllu gamni slepptu þá veitti þetta mér þá tilfinningu, að ég væri orðinn heima- maður hér syðra og það hafði ótrú- lega mikla þýðingu fyrir mig. Þegar spor mín lágu orðið vítt og breitt um landsvæðið, sem afmarkað var á kortinu, tók ég einskonar ást- fóstri við fjallið Keili. Hann er mjög fallegt fjall, stendur þarna einn sér og minnir vel á sig enda eitt helsta kennileiti á Reykjanesskaga fyrir sjó- menn áður fyrr. Ég er æði lengi bú- inn að vera í góðu sambandi við Passíusálmana og Hallgrím Péturs- son, hef safnað sálmunum í ýmsum útgáfum og reynt að komast yfir sem flest um Hallgrím Pétursson og eftir hann. Ekki veit ég hvort þessi áhugi stafar af trúhneigð. Reyndar tel ég Heima er bezt 157

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.