Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 41

Heima er bezt - 01.04.2002, Blaðsíða 41
Dvínar megin, magnast þraut, munann beygir ergi. Til að sveigja böls hjá braut bjargráð eygi hvergi. Bilar traust og bresta vé, bátur í naust er dreginn. Og ekki laust við að ég sé ævihausti feginn. Hvað helst tefur manninn mest mun ég eflaust dylja. Oft mér hefuryljað best óðarstef að þylja. Man ég fagra blómabyggð; björt voru jyrirheitin. Oft mér finnst í kvöldsins kyrrð kalla til mín sveitin. Ljóma slœr á landsins byggð; litskrúð prýðir hjalla. Oft mér vakti traust og tryggð tignin blárra fjalla. Reyndist þrár við arman óð; œfði dára gaman. Sem þrjózkur klár á þrældómsslóð þvælst hef árum saman. Að lokum eru stökur sem lúta að ævikjörum Höskuld- ar Ottós: Hlotnast smátt, sem heillar geð; heppnast fátt að muna. Ólund þrátt ég af mér kveð; einn um þátttökuna. Mest það dái, er síst fœ séð; sefast þrá í önnum. Sjálfsagt á ég samleið með sárafáum mönnum. Höskuldur Ottó Guðmundsson lést 1993. Dægurljóð Sumarið er komið enn á ný til okkar. Ársins hringur endurtekst sífellt. Við förum býsna marga hringi, ef við náum háum aldri. Sagt er, að enginn vilji verða gamall, en lifa sem lengst. Undarleg þversögn, ekki satt? Ég bað um ljóðið “Ég fór á ball hér í bænum” og fékk góð viðbrögð við því. Ljóðið heitir það raunar ekki, held- ur ber það yfirskriftina “Og sorgin flaug.” Það fékk ég ljósritað frá einum ágætum vini þáttarins, sem ekki lætur nafns síns getið. Jónbjörg Eyjólfsdóttir sendir mér ljóðið einnig. Þetta eru nokkur erindi, sem hér fara á eftir : Eg fór á ball hér í bœnum og bjó mig þannig út: I vaspelanum vænum var wiský upp í stút. Sú fyrsta, sem þar ég mætti, var Magga með pilsaslætti, en músikin í því hœtti, er ég gekk inn. Hún kipraði augnahvarminn og klappaði mér á arminn og kippti mér upp í barminn, já, barminn sinn. Mitt hjarta hoppaði' af gleði og hló af sœlu þá, því allt, sem inni þar skeði, var yndislegt að sjá. Hún Magga lófann sinn lagði á litla kollinn minn. Hún brosti blítt, er hún sagði: “Ég býð þig velkominn. “ Svo gengum við inn í glauminn og gleðinnar sæludrauminn, og gœfunnar fundum strauminn í hverri taug. Tra la la la la la la la la. Og sorgin flaug. Um loftið tónarnir titra og tíminn líður fljótt. I augum glamparnir glitra, og gaman er í nótt. En íþví byrjaði ballið með “Boomsa Daisey ” á ný. Og sú var nú klár í knallið og knallar pelann í. Nei, áttu þá líka snabba, æ, elskan mín, segðu' ei pabba. En eigum við ekki ' að labba hér út í krók. Þar kallaði hún mig kappann; í hvelli ég dró úr tappann. En, kœri minn, láttu' ei nappa 'ann! Ó, gefðu smók! I króknum Möggu ég kyssti við “Commander ” og vín. Heima er bezt 181

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.