Heima er bezt - 01.04.2002, Side 8
Arnljótur og Asta
með börnum,
tengdabörnum og
barnabörnum
sínum. Aftari röð
frá vinstri:
Sighvatur Sœvar
Arnason, Ragn-
hildur, Arnljótur
Astvaldsson, Ast-
valdur Jóhannsson,
Hrafnkell Sighvats-
son, Þórhalla.
Fremri röð:
Asta, Asthildur
Emma Ástvalds-
dóttir, Jóhann Páll
Astvaldsson, Ásta
Guðrún Sighvats-
dóttir, Arnljótur.
Ljósm.: Mynd, Hafnarfirði.
voru vígalegir menn enda urðum við
svo skelfingu lostnir að við hlupum
eins og fætur toguðu út í móa og
földum okkar þar meðan þetta fór
hjá. Og halarófan fór fram hjá og hélt
til austurs um Áfanga uns hún hvarf í
rykmekki, og við vorum engu nær
um þetta dularfulla ferðalag. Við
vissum reyndar ekki fyrr en löngu
síðar að búið var að hernema ísland
og að þetta hafði verið sjálfur breski
herinn að flytja sig frá Akureyri til
Seyðisfjarðar landleiðina á hertrukk-
um.
Við unglingarnir á Húsavík áttum
töluverð samskipti við hermennina,
sem voru nú reyndar aldrei margir
þar. Þeir fyrstu reistu tjöld sín sunnan
við Þorvaldsstaðaá. Þangað sóttum
við strákamir nokkuð stíft. Ég minn-
ist þess að þeir buðu okkur einu sinni
inn til sín. Þar í tjaldinu rákum við
augun í dálítil egg, gljáandi egg, eða
málmkúlur litlar, og fórum að skoða
þetta. Við sáum að á hverri kúlu var
spöng, sem spennt var föst og við
byrjuðum að fikta og ætluðum að
losa um útbúnaðinn því strákar vilja
nú einu sinni kanna eðli hlutanna.
Þegar dátamir sáu hvað við höfðum
fyrir stafni þá kom þetta óskaplega
fát á þá. Þetta reyndust þá vera hand-
Arnljótur
með Jóhann
Pál og Ástu
Guðrúnu.
Jóhann Páll í
garðinum á
Grenimel 40.
152 Heima er bezt