Heima er bezt


Heima er bezt - 01.04.2002, Side 50

Heima er bezt - 01.04.2002, Side 50
dýrð kvöldsins óendanleg, hvert sem mannsaugað lítur. Hver bekkur kirkjunnar er íullskipaður, gleði og eftir- vænting ljóma á hverri brá. Presturinn stendur skrýddur fyrir altarinu og hefur boðun sína. Hann flytur kirkjugest- um þann dýrmætasta boðskap sem hljómað hefur á þess- ari jörð: „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs.“ Næst fyllir hljóðfærasláttur og sálmasöngur helgidóminn, allir, sem kunna, taka undir „Hin fegursta rósin er fundin, ... Eg held minni rós og ei kvíði.“ Söngurinn hljóðnar, presturinn stígur í stólinn. Hann ávarpar söfnuð sinn með ósk um gleðilega jólahátíð og heldur svo áfram máli sínu: - Okkur, sem hér erum saman komin á helgum stað í þessu friðsæla byggðarlagi, þar sem velmegun virðist ríkja meðal flestra, er gott að minnast þess á fæðingarhá- tíð frelsarans, hvaða gildi hann gaf okkur að leiðarljósi um lífsins vegu í villugjömum heimi. Hann elskar alla menn, hvar sem þeim er skákað í mannlegu samfélagi og hann sagði: „Af því skulu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“ Á þessari ljóssins hátíð, sem við hér fáum að njóta svo ríkulega, eru þeir meðbræður okkar óteljandi um víða veröld sem í myrkri sitja, eiga hvergi skjól, hvorki fæði né klæði, fella brennheit tár dýpsta vonleysis, á meðan fögnuður jólanna fyllir hjörtu okkar. Margir þeirra hafa aldrei fengið að heyra gleðiboðskap jólanna, sem í aldaraðir hefur hljóm- að í landi okkar, „Yður er í dag frelsari fæddur.“ Hann, sem bauð sínum lærisveinum, allra tíma: „Farið og boðið öllum þjóðum iðrun og syndafyrirgefningu." „Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.“ Hann, sem líknar, mettar, frelsar og endurreisir þann sem fallið hef- ur. Hann, sem forðum sagði lögvitringi nokkrum er vildi freista hans, dæmisöguna sígildu á öllum tímum, um mis- kunnsama Samverjann, en hana þekkjum við öll frá barn- æsku og hann sagði þá og segir enn: „Far þú og gjör slíkt hið sama.“ Og þeir eru margir nú á okkar dögum, sem í ýmsum skilningi hafa lent í ræningahöndum og liggja sárir utan vegar. Hlýðum boði frelsarans, förum og reyn- umst þeim hinn miskunnsami „náungi“ dæmisögunnar. Minnug þeirra forréttinda sem fallið hafa okkur í skaut, að við skulum mega í þessu frjálsa landi halda kristin, heilög jól. í Jesú nafni, amen. Hátíðarguðsþjónustunni er lokið. Kirkjugestir ganga út í lognkyrrt, svalt vetrarkvöldið og halda til síns heima, þar sem ilmandi jólasteikin bíður þeirra. Kjell Eyvik og fjölskylda hans hraða för heim á leið. Friður og helgi jólanna umlykur allt og þau ganga hljóð um stund og njóta þessara unaðssemda. En skyndilega rýfur litli Jensen þögnina og spyr með bamslegum ákafa í rómi: - Af hverju situr maðurinn þarna einn undir trénu á jólakvöldið? - Situr hver? Um hvað ertu að tala, Jensen minn? svar- ar faðir hans þýðlega. - Manninn undir stóra trénu, sérðu, þarna, pabbi, segir drengurinn og bendir upp í skógarþykknið skammt fyrir ofan veginn. Þau nema öll staðar og rýna í áttina þangað sem drengurinn bendir og brátt koma þau auga á þúst undir einu trénu, sem líkist einna helst mannveru. - Þú hefur skarpa sjón og athyglisgáfu, nafni minn, verður afa Jensen fyrst að orði. - Að þú skyldir taka eftir þessu sem ekkert okkar hinna kom auga á og ég hygg að þetta fyrirbæri þurfi nánari athugunar við. - Já, pabbi, svarar Kjell. - Ég held það líka. Við ættum að ganga þama upp eftir og vita hvað um er að vera. - Við förum öll, segir Asbjörg festulega og drengirnir taka undir með móður sinni. Þau hraða sér af stað í áttina til skógar og eftir nokkra göngu tekur þetta sjónarspil á sig skýra mynd. Undir há- vöxnu barrtré situr mannvera, hniprar sig saman og felur andlitið í höndum sér og þama er auðsjáanlega ekki allt með felldu. Ferðafólkið nemur staðar hjá mannveru þessari og virð- ir hana fyrir sér andartak en ber engin kennsl á viðkom- andi. Kjell hefur orð fyrir hópnum, býður gott kvöld og gleðileg jól. Mannveran dregur hendumar seinlega frá andlitinu, gýtur augunum á þetta óvænta aðkomufólk og hniprar sig enn meira saman í kút, en svarar svo lágum rómi: - Gott kvöld. Eftir útliti að dæma er þetta unglingspiltur, andlitið skinhorað og fölt og augun rauð og þrútin eins og eftir langvarandi grát. - Hvað heitir þú, vinur? spyr Kjell vingjarnlega. - Andre Rekdal, svarar pilturinn hljómlausri röddu. - Hvar áttu heima? er næsta spurning, sem Kjell beinir til piltsins. - Hvergi, er hans stutta svar. - En áður fyrr? spyr Kjell rólega. - Ég átti heima í sjóbúðinni niðri við höfnina. Torvald rak mig út í dag og sagði að ég gæti séð um mig sjálfur. Hann byrjaði að drekka vín strax í morgun, er svarið. - Torvald? Hver er hann? spyr Kjell þýðlega. - Karlinn sem bjó með mömmu, en hún dó í haust skömmu eftir að við fluttum hingað, svarar pilturinn raunalega. - Þetta var sorglegt, vinur, segir Kjell samúðarfullum rómi. - En nú kemur þú heim með okkur og heldur þar jólin. - Ég er svo illa til fara, svarar pilturinn og fer allur hjá sér. - Ekki eitt orð um slíka hluti. Það hljóta að vera til föt handa þér á heimili mínu, sem hægt er að nota til bráða- brigða, segir Kjell hressilega, réttir piltinum höndina og hjálpar honum, köldum og stirðum, að rísa á fætur, eftir langa setu við snæviþaktar rætur trésins. Afi Jensen hefur enn ekkert lagt til mála og látið son sinn einan um samræður við piltinn, en nú snarar hann af sér þykkum vetrarfrakka, sem hann ber ystan klæða og færir piltinn í frakkann. 190 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.