Pósturinn - 12.11.1965, Side 2
2
PÓSTURINN__________12. NÓV. 1965
1. TEARS .............................. Ken Dodd 1.
2. ALMOST THERE...................' Andy Williams 2.
3. IF YOU GOTTA GO, GO..............Manfred Mann 3.
4. HANG ON SLOOPY ........................ McCoys 4.
5. EVE OF DESTRUCTION ............. Barry McGure 5.
6. YESTERDAY MAN .........'........ Chris Andrews 17.
7 MESSAGE UNDERSTOOD ............... Sandy Shaw 6.
8. IT’S GOOD NEWS WEEK Hedgehoppers Anonymous 12.
9. HERE IT COMES AGAIN ................ Fortunes 18.
10. EVIL HEARTED YOU ................. Yardbirds 15.
BANDARÍKIN:
1. GET OFF MY CLOUD................Rolling Stones 3.
2. A LOVERS CONCERTO ...................... Toys 2.
3. YESTERDAY ............................ Beatles 1.
4. EVERYBODY LOVES A CLOWN. G .Lewis & the Playboys 5.
5. KEEP ON DANCING .................... Gentry’s 4.
6. YOU'RE THE ONE ...................... Vouges 7.
7. POSITiVELY 4TH STREET................Bcb Dylon 8.
8. 1 — 2 — 3 Len Barrv 10.
9. RESCUE ME Fontella Bass 14.
10. A TASTE OF HONEY, Herb. Alpert & the Tijuana Brass 15.
N 0 R E G U R :
1. SATISFACTION ..................... Rolling Stones
2. EBB TIDE ............................... Pussycats
3. HELP .................................... Beatles
F I N N L A N Ð:
1. SATISFACTION ................... Rolling Stones
2. DONA DONA.............................Seooo Hansik
3. HELP ................................. " Peatles
Við birtum engan islenzkan vinsældalista að þessu sinni, heldur gefum við
lesendum kost á að kjósa sjálfir vinsælasta lagið á íslandi. Atkvæðaseðillinn
er á bls. 6, og hann þarf að berast okkur hið fyrsta.
Né'nerið fyrir framan nafn iagsins er staða þess í dag, en númerið aftan
við hverja línu staða þess í fyrri viku.
Les lög - lifir á
Hann er nýkominn
frá Akureyri og hef(jr
innritazt í háskólann
til náms í lögfræSi. Við
þekkjum hann beztfyr-
ir lagið „Litla sæta
Ijúfangóða", sem hann
söng inn á plötu ný-
lega. Plata þesesi er á
hraðri uppleið í óska-
lagaþáttum og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson
er líka á hraðri leið
með að verða bekktur
söngvari á mælikvarða
dægurlaga.
Blaðið átti við hann stutt
tal fyrir skömmu.
— Ég byrjaði að syngja
i Menntaskólanum. Með
skólahljómsveitinni. Eftir
stúdentsprófið réðist ég svo
til Ingimars Eydal, og hef
sungið með hljómsveit hans
þar til ég kom suður nú
nýlega.
— Hvaða tegund tónlist-
ar fellur þér bezt?
— Mér fellur satt að segja
ekki við hina svonefndu
R&B n^úsík. Aftur á móti
er ég hrifinn v.f þeim sér-
staka stíl. sem Beatles leíka
Þá finnst mér mikið varið
í suður-ameríska músík, oe
ekki sízt jazz, enda er ég
einn af stofnendur jazz
klúbbs í Menntaskólanum á
Akureyri. Klúbburinn stóð
fyrir ýmissi kynningu í>
jazzi og reyndtst þetta mjög
vinsælt meðal nemenda. —
Svo hef ég gaman af góðri
kúrekamúsík svo og þjóð-
lögum.
— Hver finnst þér eftir-
tektanærðastur erlendrs
músíkmanna á þessum
sviðum?
— Mér er ómögulegt a?
svara því Bítlamir eru
sérflokki. Mahalia Jackson
f kirkjumúsík og svo mætti
lengi telja.
— Svo við snúum okkur
að íslenzkum skemmtikröft-
um?
— Því er líka erfitt ab
svara, en ég myndi vilja
nefna Ómar Ragnarsson og
Savaiina tríóið.
— Og íslenzkir dægur-
lagasöngvarar?
— Þessi spuming er þó
öllu erfiðust, Ef ég segi að
mér finnist mest varið
Elly Vilhjálms, halda allir
að það sé vegna þess að
hún er systir mín, sem húr
reyndar er. En af öðrum
finnst mér enginn koma t.i’
Pósturmn ræðir við
ungan háskólastúdent,
sem söng lagið „Litla
sæta Ijúfan góða“
greina nema Ragnar
Bjamason.
— Hvaða áheyrendur hafa
verið þér vinsamlegastir?
— Tvímælalaust útlent
ferðafólk, sem oft hlustaði
á okkur á Akureyri. — Svo
þótti mér gott að syngja
fyrir áheyrendur i Glaum
bæ í haust.
— Pinnst þér gaman aö
syngja opinberlega?
— Ég verð að viðurkenna
að það hefur sitt sérstaka
aðdráttarafl.
— Gætirðu hugsað béi
að gera sönginn að aðalat-
vinnu?
— Ég held ekki, en að-
stæðurnar eru þannig, að
ég verð að vinna fyrir mér
með söngnum meðan ég er
i skólanum.
— Þú ert kvæntur?
— Já, konan mín er Guð-
rún Jóhannsdóttir frá Ak-
ureyri og við eigum einn
son
— Hvers vegna valdir þú
að nema lögfræði?
— Það var nú aðeins ai
því að ég komst ekki í tann-
lækningar. Ég vil endilega
að það komi fram.
— Og fyrsta platan?
— Hún hefur hlotið góð-
ar viðtökur. Annars tókum
við aðra plötu um leið, en
hún mun koma á markað-
inn síðar Á þeirri plötu
syng ég danskan vals, sem
hjó okkur heitir „Rauna-
saga" og lag eftir Jónas
Jónasson við texta Kristj-
áns frá Djúpalæk, er nefn-
ist „Vor í Vaglaskógi1-. Per-
sónulega-held ég, að seinni
platan sé betri.“
— Og hvað er svo fram-
undan ?
— Auðvitað námið. Om
hitt má ég ekkert segja, en
ég reikna með að vinna
með hljómsveit hér eftir
áramótin.
í óskalagaþætti sjómanna
fyrir skömmu, var vinsæl-
asta lagið „Á sjó“. Það er
Þorvaldur Halldórsson, sem
syngur með hljómsveit
Ingimars Eydals frá Akur-
eyri.
Þorvaldur er annars Sigl-
firðingur að ætt og þaðan
er einnig höfundur textans
á plötunni, Ólafur Ragn-
arsson. Þorvaldur hefur svo
sannarlega ekki verið lengi
að krækja sér þarna
fyrsta sætið i sjómanna-
þættinum, enda hefur hann
hina áheyrilegustu bassa-
rödd og á áreiðanlega eftir
að heyrast meira í útvarp-
inu á næstunni
P0STHOSSINN PÚSWUSSINN_______ PÚSTHttSSINN
í rauninni er ætlunin,
lesandi góður, að þú sjáir
um þennan þátt blaðsins
sjálfur. Ekki ætlumst við
til að þú verjir löngum
tima til þess, heldur að-
eins, að þú takir þér penna
i hönd ef þér liggur eitt-
hvað á hjarta, og sendir
okkur línu. Tilskrifið mun-
um við birta hér og einnig
svarið, ef bréf þitt gefur
tilefni til.
Það ætti an “s varla a?
þurfa að ýta undir ungt
fólk til þess að láta álit
sitt í ljósi. Unr.i' fólki ligg-
ur alltaf eitthvað á hjarta
og það hefur oft sínar á-
kveðpu skoðanir á hlutxm-
um. Hér er vettvangurinn
til að '’.ma þeim skoðun-
ur á framfæri og ræða
málin.
f fyrsta lagi þætti okk-
ur auðvitað vænt um að
hey. hverju þér þykir
helzt ábótavan* í efnisvali
þessa blaðs. Einnig væri
gaman að fá að vita hvað
þér fellur bezt í geð. Það
er aldroi hægt að gera svo
öl’”~ líki, og jafnvel þótt
við höfum gert þet4- blað
eftir beztu getu, fer ekki
hjá því, að margt megi
betur fara. Það er alls ekki
víst, að við sjáum þá ér
galla. ia.fn vel og lesa.-dinn
sem sér blaðið f fyrsta
sinn. Þess vegna væri það
okkur ’uðvitað ómetanleg
hjálp í því að heyra frá
þér um þetta efni. •
í öðru lagi má búast við,
að þú þurfir að spyrja eins
eða annars varðandi hugð-
arefni þin. Við munum
reyna að leysa úr þeim
spurningum eftir beztu
getu, og það skal tekið
fram um leið, að fullkom-
lega er frjálst að spyrja
hvers, sem vera skal, milli
himins og jarðar.
Þá er rétt a.. taka fram,
að hverju bréfi þarf auð-
vitað að fylgja fu1” nafn
og heimilisfang, en við
munum hins vegar gjam-
.... birta bréf undir dul-
nefni, ef þú af einhverjum
ástæðum kærir þig ekki
um, “ð '-> þjtt kom? fram.
E . finnst okkur
skemmtilegra, að geta lát-
ið fullt nafn fylgja. Það
*»efur bréfinu meira ~ildi
Og að lokum þetta: Eáttu
verða af þvi að skrifa! —
Utanáskriftin er þt si:
Póstu. ’ in, Pósthólf 806,
Reykjavík.