Pósturinn - 12.11.1965, Síða 7
12. NÓV. 1965________PÓSTURINN
7
\
Ómar Ragnarsson enn á ferð-
inni með jólaplötu barnanna
Þegar hlustað er á óska-
lagaþætti útvarpsins og
danslagaþætti þá kemur ;
Ijós, að margar nýjar, ís-
lenzkar plötur hafa haslað
sér völl undanfarnar vikur.
Fyrir tæpum mánuði kom
út 33. snúninga plata með
Savannatríóinu. Eitt lagið
af þeirri plötu hefur orðið
mjög vinsælt, heitir það
Ást í meinum, en þetta er
tólf laga plata. Þá hefur
lagið Konuvísur heyrzt
nokkrum sinnum og einnig
er Jarðarfarardagur sér-
staklega skemmtilegt.
Hljómsveit Ingimars Ey-
dal sló svo sannarlega í
gegn með fyrstu plötu sinni,
sem út kom ekki alls fyrir
löngu. Þar hafa tvö lög af
fjórum þegar náð fádæma
vinsældum. Eru það lögin
Á sjó, sem Þorvaldur Hall-
dórsson syngur, en þetta
er erlent lag, sem Ólafur
Ragnarsson gerði íslenzkan
texta við. Ólafur er eins og
Þorvaldur frá Siglufirði
Hitt lagið er hið skemmti-
lega sænska lag Fröken
Frekan, sem er með skín-
andi góðum texta eftir Val-
geir Sigurðsson á Seyðis-
firði. Hefur það Jilotið
nafnið Litla sæta ljúfan
góða og er sungið af Vil-
hjálmi Vilhjálmssyni, en
viðtal er við hann á öðrum
stað í blaðinu.
Þetta eru hvort tveggja
SG-hljómplötur og þaðan
er að vænta fleiri hljóm-
platna á næstunni. Ómar
Ragnarsson söng fyrir
nokkru fjöldan allan af
jólalögum fyrir börn inn á
33. snúninga plötu, sem er
að koma út. Þetta er fyrst
og fremst plata fyrir börn
en búast má við því, að
þessi plata, eins og fyrri
plötur Ómars, verði vinsæl.
Þá er og í undirbúningi út-
gáfa á annarri plötu með
hljómsveit Ingimars Eydal,
kemur hún út í byrjun
næsta árs og einnig stendur
til að gefa út plötu með
svonefndri bítlamúsík hið
fyrsta, hvort Hljómar leika
á henni eða einhver önnur
„bítlahljómsveit" hefur ekki
verið ákveðið enn.
I NÆSTA
BLAÐI:
Af efni næsta blaös má t. d.
benda á grein um SONNY og
CHER, aðra grein um bítlamúsík
í kirkju í Danmörku. fjölda
greina af íslenzkum „pop“
stjörnum og margt fleira at-
hyglisvert efni fyrir ungt fólk.
ATHUGIÐ:
aö afgreiðsla blaðsins er að
Bragagötu 38 A
Ungar stú'kur í Ömmuk.iólum í Disneylandi í sumar.
NÝ KJÓLATÍZKA RYÐUR SÉR RUMS í U.S.A.
MUKJÓLAR“
Það var ung og falleg
flugfreyja hjá Loftleiðum,
sem sagði okkur i fréttum
nýlega, að síðir kjólar, eins
og myndin sýnir, væru
komnlr í verzlanir i Neiv
York og þættu fallegir- Ekki
kvaðst hún hafa orðið vör
við, að ungu stúlkurnar
væru farnar að skarta i
þeim á götum úti, heldur
væru þeir líklega notaðir
heimavið enn sem komið
væri.
Svo fengum við nánari
upplýsingar i TIME. Þar
segir, að svona kjólar séu
nefndir „granny“-kjólar og
við gætum því nefnt þá
„ömmukjóla" TIME segir
ennfremur, að þetta hafi
allt byrjað í Kalifornfu
þegar nokkrar ungar stúlk-
ur keyptu sér rósótt og alla
vega skræpótt efni, ipn-
flutt frá Hawai, og saum-
uðu sér sjálfar s*ða kjóla
með þessu sniði.
Kjólaframleiðendur veitt"
athygli þessu framtaki
stúlknanna, og hugsuðu
svo, að líklega gæti orðið
„bisniss" i ' því að hefja
framleiðslu í stórum stíl.
Nú eru ömmukjólar til sölu
víðsvegar um Bandaríkin
og kosta 10—15 dali stykk-
’ð (430—645 krónur).
í Los Angeles hafa ömmu
kjólarnir komizt í tízku
bæði til að nota á stefnu-
mótum og til að punta sig
í á daginn. .þegar skólinn
er búinn. „Maður verður
svo fínn í þeim,“ segir ung
stúlka af þessum slóðum til
skýringar. Og einhver gaf
aðra skýringu: „Ungu
stúlkurnar vilja þessa kjóla
fyrst og fremst vegna þess,
að þær eru öruggar um, að
mamma muni að minnsta
kosti ekki líkja eftir þeim,
þegar hún fær sér kjól
næst."
Og víst hafa ömmukjólar
sézt opinberlega. Þannig
bar mikið á þeim á hljóm-
leikum brezku Bítlanna í
Hollywood og svo munu þeir
hafa verið daglegt brauð í
hinum fræga skemmtigarði
DISNEYLANDI f sumar
sem leið.
Mér væri sönn ánægja aS mega veita yður aðstoð við
skemmtanahald yðar.
ÚTVEGA HLJÓMSVEITIR
OG SKEMMTIKRAFTA
eins og t. d. Rondo tríóið
Pónik og Einar Káta félaga Stero tríóið
Toxic Stuðla tríóið
O.B. kvartett Astra tríóið
og Janis Caroli Savanna tríó
J.J. Hljómsveit
Strengi Þorsteins Eiríkssonar
Lóma og Jakob Jónsson
Orion Hljómsveit
Fjarka Þórs Nielsen
PÉTUR GUÐJÓNSSON
SÍMI 16520 KL 17-19 - EFTIR KL. 19, 16786
UT ! GEIMINN
eftir VERUS
Sem stendur er verið að
þjálfa 28 manna hóp til geim-
ferða í Bandaríkjunum
Þjálfun þessara manna, sem
sumir, eða ef til vill allir,
eiga það fyrir höndum að
verða sendir út í geiminn,
og sumir vafalaust áður en
langt um líður, er afar ná-
kvæm og geysilega dýr- Þeir
verja hvorki meira né minna
en 50 klukkustundum á viku
hverri í tvö ár til að undir-
búa sig undir eina geimferð
Líkamsþjálfun þeirra er
miklu erfiðari en nokkur
íþróttamaður þarf að ganga
í gegn um, en auk þess þurfa
þeir að vera miklir kunn-
áttumenn bæði í stjörnu-
frææði og jarðfræði.
Markmið ferða Gem-
ini geimfaranna er að þjálfa
geimfara í öllum þeim ótai
atriðum, sem þeim verða að
vera vel kunn þegar sá dag-
ur rennur upp, að lagt verð-
ur upp í förina til tunglsins.
Þegar hafa verið send á loft
nokkur Gemini geimför með
mönnum innanborðs og
einnig mannlaus. Áætlað er
að senda enn allmörg geim-
för til viðbótar, bæði i þeim
tilgangi að athuga hver á-
hrif langvarandi þyngdar-
leysi hefur á menn, og eins til
þess að æfa til þrautar hið
erfiða viðfangsefni að láta
tvö geimför mætast úti í
geimnum.
Enda þótt æfingarnar fari
annan daginn fram á austur-
strönd Bandaríkjanna og
hinn daginn ef til vill við
Mexikóflóann, er þó aðal æf-
ingasvæðið hið svonefnda
Manned Spacecraft Genter,
sem staðsett er í nágrenni
Houston í Texas. Þar eru að
starfi hvorki meira né minna
en 2200 geimvísindamenn og
verkfræðingar, sem njóta að-
stoðar um það bil jafnmargra
tæknimenntaðra manna og
annara aðstoðarmanna.
í næsta blaði hefst hér á 7. síðunni ný íslenzk myndasaga
SAGA HLJÓMA
teiknuð af Árna ifar - Athugið að fylgjast með frá byrjun