Pósturinn - 12.11.1965, Blaðsíða 8
)
í
útvarps
stöö fyrir
unga
—ekki fráieitt, segja
tveir ungir útvarpsmenn
MeS nýrri vetrar-
dagskrá útvarpsins
koma nýir þættir og
fjölbreytt efni. Einn af
þáttum nýju vetrardag-
skrárinnar heitir „Á
NÖTUM ÆSKUNNAR",
og er honum stjórnað
af tveim ungum mönn-
Afgreiðsla
blaðsins
Við ætlum að benda á, aS
afgreiðsla blaðsins er að
Bragagötu 38-A, sem er á
homi Freyjugötu og Braga-
götu. Þangað eiga sölubörn
að sækja blaðið og skila af
sér, en þau böm, sem held-
ur myndu kjósa að fá blað-
ið sent heim, hringi í síma
10752.
Einnig viljum við benda
á, að blaðið kemur næst út
eftir hálfan mánuð, þann-
26. nóvember.
Söluböm! Látið ekki á
ykkur standa!
um, sem mikið hafa
verið viðriðnir músik
og skemmtanalíf.
Annar þeirra, Jón Þór
Hannesson, hefur m. a.
leikið í hljómsvbitinni
TÓNAR og hinn, Pétur
Steingrímsson, er einn af
magnaravörðum útvarpsins.
Þáttur þessi þótti þegar
í byrjun dálítið sérstæður
og þess vegna brá ég mér
niður í útvarp til að ná
tali af stjórnendunum.
Þeir tóku mér eins og i
lygasögu og leystu svo
rækilega frá skjóðunni, að
ef það væri allt skrifað,
myndi það taka minnst
heila blaðsíðu.
„Markmið þáttarins1',
sagði Pétur, „er að gera
eins mikið fyrir unga fólk-
ið og við getum. Við spil-
um enga plötu til enda, að-B
eins kjarnana úr þeim. Með
því móti getum við kynnt
allt að 15 lögum í stað 8—9.
Við munum leitast við að
hafa hvern þátt öðrum ó-
líkan; stundum munum við
rifja upp lög frá liðnum
árum, og stundum munum
Framhald á bls. 6.
Þetta er Ó.B. kvartett, sem hefur undanfarið leikið í Glaumbæ við fádæma undirtektir. Söngkona með hljómsveit-
inni er hin vinsæla Janis Caroll. Við munum birta viðtal við hljómsveit þessa í næsta blaði, en þangað til verðum
við að láta okkur nægja þessa ágætu mynd.
NR 1______________________________REYKJAVIK, 12. NOV. 1965 VERÐ 15 KR,
BITLARNIR OG ROLLING
STONES TIL ÍSLANDS?
Þama senda þeir út þáttinn, Pétur og Jón Þór.
Hljómar halda á
fjarlægari mið
Veríð að athuga möguleika á hljóm
leikum í íþróttahöllinni
„Við erum að fara til út-
landa í næstu viku.“ Það
eru Hljómar, sem segja
okkur þessar fréttir. Og
hver er tilgangur fararinn-
ar? Hvert er haldið?
„Við förum til Englands
Fyrst og fremst til að leika
inn á segulband músíkina
í kvikmyndina „Umbarum-
bamba“. Svo ætlum við að
setja kvikmyndalögin á LP-
plötu og bæta við lögum
upp í 12. Sú plata á að
koma á markaðinn hér -
febrúar eða marz.“
„Nokkuð fleira, sem gera
skal í ferðinni"?
„Það gæti hugsast, að við
reyndum að koma út
tveggja eða fjögurra laga
plötu núna fyrir jólin. Við
myndum þá leika inn á
hana í Englandi um leið.
Svo vorum við líka að
hugsa um að athuga mögu-
leika á að spila eitthvað
Englandi, eða í Danmörku
því að Andrés Indriðason
sem þar er staddur á veg-
um sjónvarpsins, ætiar að
huga að ráðningum fyrir
okkur. Ef allt þetta bregst
verðum við líklega 3 vikur
úti, annars lengur.“
15 kr.
Því -niður. Við höfum
reiknað og reikn ... _ lagt
saman og dregið frá, en
allt kemur fyrir ekki. Það
er engin ! '5 að hafa bla. -
ið ódýrarr en 15 kr. Það
er svo ðtrúle- '. 'rt að gefa
út blöð á íslandi, jafnvel
þótt blöðin séu ekki stór.
Annars er ekki allt fengið
með síðufjölda. Hann seg-
ir ekker' um gæði blaðs
Og þó að við höfum ekki
blaðið nema 8 síður til að
byrja með, munum við
þjappa á þær efni fyrir
unga fólkið og reyna að
hafa efnið goft. Þá þurf-
um við ekki að bið.ia af-
sökunar á 15 krónunum
aftur.
Þaö er ekki loku fyr-
irþaðskotið aðhingað
til lands muni koma á
næsta ári bæði Bítl-
arnir ensku og Rolling
Stones.
Baldvin Jónsson, sem fékk
Kinks-hljómsveitina hing-
að til lands, hefur tjáð
blaðinu, að athugaðir muni
verða möguleikar á því að
fá hinar heimsfrægu hljóm-
sveitir hingað til hljóm-
leikahalds. Telur hann út-
lit í þeim efnum alls ekki
slæmt eftir lauslega at-
hugun og nokkrar fyrir-
spurnir um þetta mál.
Baldvin álitur hugsanlegt
að Bítlarnir fengjust hing-
að einhvern tíma eftir ág-
úst-september næsta árs
en Rolling Stones jafnvei
miklu fyrr Þó kveður hann
eitt vera frumskilyrði þess,
að þetta nái fram að
ganga, nefnilega að nægj-
anlega stórt húsnæði ,fáist
fyrir hljómleikana — það
má ekl?i taka minna en
2000 manns, því að þessii
skemmtikraftar 'eru svo dýr-
ir, segir Baidvin. Við fáum
ekki séð. að annað hús-
næði en iþrottahöllin
Laugardal komi til greina
til að hýsa 2 þúsund áhorf-
endur, þótt okkur sé ókunn-
ugt um, hvort hún verður
leigð til hljómleikahalds.
Fleiri aðilar munu vera
að hugsa um innflutning
þekktra erlendra skemmti-
krafta, svo sem Jón Hjálm-
arsson, sem nýlega hefur
sett á stofn skrifstofu, þar
sem hann annast ráðning-
ar hljómsveita og annarra
skemmtikrafta. í viðtali við
blaðið kvaðst hann hafa
látið sér Bítlana koma til
hugar, svo og hina þekktu
hljómsveit Byrds, og hafa
margar aðrar í pokahom-
inu, en ekkert væri afráðið
ennþá um þau mál.
síðasta orðið
Það er Tónabíó, sem fær til sýningar nýju kvikmynd
Bítlanna, „Help“, en ekki mun enn ákveðið, hvenær það
verður. Myndin er enn of ný af nálinni til þess að hún
fáist til sýninga hér með viðráðanlegum kjörum. Þó e*
ekki víst að langur tími líði þar til við fáum að sjá hana,
og margir munu vera farnir að hlakka til.
Ekki fellur okkur allskostar við framhaldsleikritið i
barnatímanum, „Ámi í Hraunkotí.“ Samtölin eru eitthvað
það óeðlilegasta, sem hér hefur heyrzt lengi. Varla er um
að kenna hinum ágætu leikurum, sem þama koma fram,
og verður þetta því að skrifast á reikning höfundar, sem
gerir þarna full lítinn greinarmun á ritmáli og talmáli.
Það er synd, því að sagan er ágæt.
Það hefur kvisazt að hljómsveitaskipti muni verða á
Röðli um áramótin næstu. Mun hljómsveit Elfars Bergs,
sem þar hefur leikið um nokkurt skeið, hætta, en við
taka önnur ný,. undir stjórn Magnúsar Ingimarssonar,
hins kunna píanóleikara og útsetjara, sem um langt skeið
gerði garðinn frægar 1 hljómsveit Svavars Gests. Sagt
er, að með Magnúsi verði Vilhjálmur Vilhjálmsson, söngv-
ari, Garðar. sem áður lék á gítar með Svavari Gests,
Alfreð Alfreðsson, nú trommuleikarí hjá Hauki Morthens,
og ef til vill söngkonan Ánna Vilhjálms.