Heima er bezt - 01.09.2004, Qupperneq 5
Freyja Jónsdóttir:
Rœtt við
Magneu Bergmann,
verslunarkonu
Magnea Bergmann á að baki litríkan lífsferil og
merkilega viðskiptasögu, þar sem eðli frumkvöðuls-
ins hefur notið sín. Dugnaður, hugmyndaríki og út-
sjónarsemi eru lykilorðin í sögu þessarar athafna-
konu, sem byrjaði með tvœr hendur tómar en kom
upp blómlegum atvinnurekstri í tveimur löndum.
Magnea tók á móti blaðamanni á heimili sínu að
Lindargötu í byrjun sumars og stiklaði á stóru í lífs-
hlaupi sínu.
g er fædd og uppalin í Skuggahverfinu í Reykja-
vík, nánar tiltekið á Lindargötu 9 B, hjá ömmu
minni og afa, Magneu Bergmann og Ara Antons-
syni. Móðir mín, Þórunn Stefánsdóttir, lést þegar
ég var á öðru árinu og þá tóku afi og amma mig að sér.
Móðir mín var ættuð frá Stykkishólmi. Faðir minn var
Franz Arason sjómaður sem fyrst var á stórum skipum en
eignaðist síðan trillu sem hann gerði út sjálfur. A nreðan
hann var ungur var hann talinn sterkasti maður landsins.
Faðir minn giftist aftur Sveinbjörgu Guð-
mundsdóttur og hálfsystir mín er Þórunn
Fransdóttir tónlistarkona, hún hefur einnig
rekið verslanir með útsaum o.fl. Albræður
mínir eru Guðbjartur, Ari og Ragnar, sem
lengi var togaraskipstjóri.
Hús afa og ömmu var reisulegt timbur-
hús með kvisti, sem síðar var forskalað.
Það var ekki rifið fyrr en byrjað var að
byggja blokkirnar við Skúlagötuna. Þegar
ég átti þarna heima fylgdi húsinu stór lóð,
sem náði þangað sem Völundur var og á
lóðinni voru fjós, hlaða, hesthús og
hænsnakofi.Venjulega voru 13 mjólkandi
kýr í ijósi auk geldneyta.
Næsta hús við hliðina var Lindargata 9, sem afi minn
byrjaði að byggja þegar hann var unglingur. Þegar húsið
var nýtt hafði langamma mín kýr í kjallaranum.”