Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Blaðsíða 45

Heima er bezt - 01.09.2004, Blaðsíða 45
bara á fullu að læra, væri í lítilli íbúð og Bergþóra barnapía væri vitlaus í honum. Óli vildi nú ekki festa sig, fannst gaman að vera með henni en þau Jóna og Svenni héldu að hann þyrfti að djamma mikið meira áður en hann færi að festa rætur. „Þetta er örugglega fyrsti strákurinn, sem stelpugreyið verður hrifin af ‘ sagði Svenni, „og hann er nú ekki feim- inn við að nýta sér það hann Óli, hann er svo veikur fyrir aðdáun kvenfólksins“. Jóna hló. „En ekki þú, Svenni minn?“ Þær sögðu þeim hvaða saga gengi í sveitinni, að Jóna væri aftur orðin ófrísk. Þau skellihlógu og sögðu það vera Óla að kenna, hann hefði skrökvað þessu að einhverjum, sem hefði svo náttúrlega hlaupið með fréttina. *** „Þetta var skemmtilegur dagur“, sagði Steinar þegar þau fóru að hátta. „Komdu hérna Unnur Egils listakona“. Hann játaði fyrir henni að hafa stolist til þess að skoða allar bleiku, mjúku myndirnar hennar og var stórhrifinn. Ég er svo veik fyrir þessum manni, hugsaði hún og strauk honum yfir bringuna og magann, hann hefur svo mikið aðdráttarafl. Skyldi það vera eins með hann gagnvart mér? Hann var með mjúk ljós hár út um allt og sem snöggvast sá hún Atla fyrir sér, dökkan á brún og brá. Hún þrýsti sér að Steinari og klemmdi aftur augun og reyndi af öllum mætti að hugsa bara um hann. Það tókst eftir smá- stund og hún fór að hugsa um Erlu og prestinn hennar. Erla sagði henni að Víglundur hefði viljað að hún flytti til hans, en hún sagðist ekki fara frá Álftanesi nema á börum, þannig að hann yrði bara að flytja til hennar. „Hann er alveg stórkostlegur Unn- ur, og upplifun að vera með honum“, hafði hún sagt, „en það er ekkert sem fær mig til þess að láta af mínum prinsippum. Hann má koma og flytja inn strax ef hann vill, seinna ef hann vill og sleppa því ef hann vill. Mér þykir ógurlega vænt um hann, ég tala nú ekki um þegar ég komst að því að hann reykir vindla, því mér finnst það svo spennandi, þegar karlmaður kann að reykja vindil með stæl, og drekkur Beilís-líkjör! Ég reyki reyndar ekki vindla en ég drekk mik- inn Bcilís“. Unnur hafði spurt hana hvað hún héldi að hann mundi gera. Erla sagðist ekki alveg vita það, hann ætti eftir að þjóna sem prestur í einhver ár enn, en hann bað hana að trúlofast sér hvernig svo sem sambúðarmálum þeirra yrði háttað. „Kannski er þetta bara meira spennandi svona“, sagði Erla og hafði augljóslega engar áhyggjur af því að Víglundur setti hana út af sakramentinu. Hún er svo frábær og svo viss um sjálfa sig, hugsaði Unnur og fannst notalegt að finna Steinar strjúka yfir kúluna, sem fór aðeins stækkandi. Hún hlakkaði til næstu daga og fann að hana langaði alls ekki að flytja frá Álfta- nesi alveg strax. Hún sofnaði með þá hugsun í kollinum að hún væri heppin að eiga þetta góða fólk að og fá að vera samvistum við það alla daga. Framhald i nœsta blaði. Glucomed BYGGIR UPP LIÐBRJÓSK r(P Fyrir fólk með liðkvilla vegna slitgigtar eða yfirálags Fæst í apótekum Ara I T H 0 R A R E N S E N ! V F B * 11 Ifðan - Bttrt llf Z GIUCO Heima er bezt 429

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.