Heima er bezt - 01.09.2004, Blaðsíða 41
íu, var talinn mesti heiður sem
dauðlegum manni gat hlotnast.
Slíkum mönnum var líka fagnað
sem þjóðhetjum, er þeir sneru
heim til ættborga sinna að leikum
loknum. Þá voru haldnar veislur
þeim til heiðurs, þeir fengu fram-
færi á kostnað borgarinnar og
styttur af þeim voru reistar á al-
mannafæri. Þannig gekk þetta til í
Grikklandi um aldaraðir eða alla
götu þangað til forn trúarbrögð
fóru að láta undan síga fyrir
kristninni. Loks endaði þetta
þannig, eftir að kristnin var gerð
að ríkistrú, að Þeódósíus keisari
gaf út tilskipun árið 394 e. Kr., þar
sem blátt bann var lagt við því að
halda svo heiðna skemmtun sem
Olympíuleika. Tók þá öllu að fara
aftur í Ólympíu og nokkrum öld-
um síðar fór þessi fornfræga borg
í eyði. Smám saman hurfu þá leif-
ar af húsum, musterum og lista-
verkum undir aur og sand, svo að
fátt stóð þar eftir. Það var svo ekki
fyrr en árið 1875, sem fornleifa-
fræðingar hófu að grafa í rústum
þessarar gömlu borgar og síðan þá
hefur margt ævafornt og merki-
legt verið dregið þar fram í dags-
ljósið.
Og þrátt fyrir bann og eyðilegg-
Olympíuleikar 1960. Sigurvegarar í hnefa-
leikum, Guilio Saraudi frá Ítalíu og Anthony
Madigan frá Astralíu, báðir í þriðja sæti,
Bandaríkjamaðurinn Cassius Clay (síðar
Muhammad Ali), í fyrsta sæti, og Zbigniew
Pietrzykowski frá Póllandi í öðru sœti.
upp sá dagur að hinir fornu
Ólympíuleikar væru endurvaktir
og gerðist það árið 1896. Frum-
kvæði að því átti franski greifinn
Pierre de Coubertin. Hinir fyrstu
af þessum nýju leikum voru
haldnir í Aþenu til heiðurs við
Grikki og forna frægð þeirra. Upp
frá því hafa þeir verið haldnir á
ijögurra ára fresti og þá til skiptis
í hinum ýmsu löndum og heims-
álfum. íslendingar voru í fyrsta
skipti með á Ólympíuleikum í
Lundúnum árið 1908, þar sem þeir
sýndu glímu. Aftur voru þeir með
í Stokkhólmi árið 1912 og þóttu standa sig með miklum
ágætum. Upp frá því hafa þeir að meira eða minna leyti
tekið þátt í þessum alþjóðlegu leikum, þótt þeir hafi jafn-
an verið fremur fáliðaðir. I fyrsta skipti unnu svo Islend-
ingar til verðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne árið
1956, þegar Vilhjálmur Einarsson hlaut silfurverðlaun í
þrístökki. Árið 1984 í Los Angeles vann síðan Bjarni
Friðriksson til bronsverðlauna í júdó og í Sidney árið
2000, hlaut svo Vala Flosadóttir bronsverðlaun í stangar-
stökki. Að öðru leyti hafa Ólympíuverðlaun ekki safnast
að okkur. Við megum samt vel við una, því að samkvæmt
anda og boðskap Ólympíuhreyfingarinnar er það ekkert
aðalatriði að vinna, heldur að vera með í leikunum.
ingu Ólympíu, lifði minningin um
hina fornu leika áfram og gleymd-
ist aldrei með öllu. Loks rann líka
Frá Olympíuleikun-
um 1936. Jesse
Owens að stökkva í
langstökki.
Átt þú í fórum þínum skemmtilega mynd, t.d. af atburði, stað, húsum, dýrum eða
fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er því ekki að senda okkur hana
til birtingar og leyfa lesendum HEB að njóta hennar líka?
Höfðingjarnir hafa valió sér útsýni, affjallinu eina.
Góðir
vinir.
Ljósmyndir: Anna og Guðríður Guðnadœtur, Strönd 11,
V-Landeyjum, 1945 og 1947-8
Sendandi: Hjalti Bjarnason, Hvolsvelli.
Heima er bezt 425