Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2004, Síða 18

Heima er bezt - 01.09.2004, Síða 18
Öll þessi jakkaföt, öll þessi bindi, allir þessi hælaháu skór, öll þessi veski; þetta eru bara einkennisbún- ingar. Tískufrömuðir eru alltaf að framleiða einkennisbúninga. Allir eru eins til fara. Þó fer Arafat held ég ekki mikið í jakkaföt. Hann er spes í klæðaburði. Kannski er hann berfættur í skónum en ef hann fer í sokka eru þeir örugglega af sömu sort. Ekki einu sinni hann þorir að vera öðruvísi að því leytinu til. Auðvitað er það hluti af menningu okkar og siðferði að vera sæmilega til fara með hreint hárið og burstaðar tennur. En það er ekki þar með sagt að allir þurfi að vera eins í ytra útliti. Manneskjurnar eru búnar að búa til svo mörg lögmál í gegnum tíðina. Ekki bara í fatnaði heldur á öllum hliðum tilveru fólksins. Þó er nú sem betur fer sinn siður í hverju landi. Örugglega fáir á íslandi sem borða hunda en í Kína borða þeir hunda. Fáir í Vestur-Evrópu sem borða súra hrútspunga og kæstan hákarl - nema auðvitað Islendingar. En ég þekki ekki svo mikið til í hinum fjarlægu heimshlutum að ég held mig við hinn vestræna heim. Þar sem allir eru í einkennisbúningi og halda að lífið sé leikur á grænum bala. Eða héldu það þangið til stríðið braust út í Júgóslavíu. Fram undir lok síðustu aldar taldi fólk óhugsandi að stríð yrði í Evrópu, að Berlínar- múrinn myndi falla, að Jeltsín stæði uppi á trukk og talaði til heimsins. Að Netið og farsímar yrðu á hverju heimili. Að hryðjuverkamenn yrðu heiminum martröð. Höfum við ef til vill aðlagað okkur þessum breyttu aðstæðum? í öllu falli særir það okk- ur ekki djúpt að heyra að ungabörn hafi verið skotin til bana, ófrískar konur hafi orðið byssuóðum vanvit- um að bráð, hermenn hafi það sér til skemmtunar að pynta fanga og yfir hlakki stríðsherrarnir og tali um frið á jörðu. Stríðsherrarnir eru víst þokkalega menntaðir en menntunin hefur bara farið inn í hausinn á þeim eins og forrit í tölvu. Þeir hafa ekki þróað neitt sjálfir, þeir hafa ekki gert neitt úr því sem þeir lærðu, þeir hanga bara í gamalli, afdankaðri hugmyndafræði, brosa framan í sjón- varpsmyndavélarnar og fólkið og segjast vera að bjarga heiminum. At- vinnuleysi er algengt hagstjórnar- tæki, vextir eru alltaf til hagræðingar fyrir þá ríku og til bölvunar fyrir þá sem lítið hafa. Allt byggt á gömlum lögmálum. Allir í sokkum af sama tagi. Manneskjulegar ráðstafanir eru ekki á borðinu. Mannslíf skipta ekki máli. Þetta er þaö sem við vitum - en það er margt sem við vitum ekki. miklu verra. Og þegar Móðir Jörð fær sig loks- ins fullsadda af óværunni og hristir hana af sér, þá verða örugglega breytingar á högum margra. Þá verð- ur maður kannski feginn að fá ein- hverja skó á fæturna, bláan á hægri, rauðan á vinstri. Nei, nei, þetta er ekki spádómur, þetta er rökrétt hugsun. Við höfum ekki hugmynd um hvað gerist á morgun né hinn. Samanber atburði síðasta áratugar nýliðinnar aldar. Maður getur ekki vitað hvort brúnu skórnir standa snyrtilega rað- aðir í forstofunni í fyrramálið, heldur ekki hvort vinnustaðurinn er óbreytt- ur á sínum stað. Ekki á meðan að innbrot og rán eru tíðari en sólskins- dagar í september. Ef við hér á íslandi, örfáar hræður norður í hafi - tækjum okkur til, hífðum kjarkinn upp úr kassanum og sendum þessi skilaboð út í heim: Nú breytum við heiminum, nú ætl- um við að vera í skóm og sokkum og með vettlinga sitt af hvoru tagi þang- að til að þið hættið þessum stríðs- rekstri bjálfarnir ykkar. Það eru bara illmenni sem standa fyrir stríði, sjáið að ykkur, gerið eitthvað af viti. Við viljum frið og jafnrétti. Við viljum að allir fái að borða. Myndi ekki Skandinavía fylgja í kjölfarið? Fara að okkar dæmi. Og svo fleiri og fleiri. Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Getur ekki Kalvin Klain fengið allar konur í heiminum til að ganga í fötum sem hann hefur hannað? Kaupir ekki allur heimurinn Coca Cola eða hvað? Einhver verður að setja boltann af stað. Og það yrði heimsfrétt ef allir á Islandi tækju upp þennan nýja sið og krefðust friðar á jörðu. Að hugsa sér hvað skóframleið- endur myndu græða. Allir í bláum á hægra fæti, allir í rauðum á vinstri. Þetta yrði eins konar endalaus kröfu- ganga. Og allir bæru fram kröfuna um að hætta stríðsrekstri, gefa svelt- andi fólki mat og umgangast Móður Jörð af virðingu. Að brjóta hefðina, heimatilbúnu lögmálin og hugmyndafræðina sem heiminum er stjórnað eftir í dag. Að rífa sig upp úr lágkúrunni sem sam- þykkir með afskiptaleysi alla heims- ins glæpi. Að koma til móts við fólk sem er að drepast úr leiðindum og hefur ekkert við að vera. Því eftir því sem mér heyrist á dægurmálastöðv- unum er talsvert af fólki sem hefur ekkert að gera. Aumkunarvert - því lífið er svo skemmtilegt ef að maður bara nennir að lifa því. Það er til gáta sem hljóðar svona: Hvað er það sem allir vilja verða en enginn vera? Svarið er: Gamall. Allir vilja lifa en enginn vill vera gamall. Samt er nú vitrasta fólkið statt í íbúðum eldri borgara og á elliheimilum. Það hefur vísdóm og reynslu. Kannski vill það sparka boltanum af stað. Starta bylgjunni sem myndi fara um allan heim ásamt kröfunni um vitræna hugsun hjá foringjunum. Þetta vísa fólk vill ekki tæta Móður Jörð í sundur, sprengja upp borgir, fara með eyðandi drápstól um lönd ná- granna, skjóta lítil böm og svelta önnur í hel. Það er valdið, frægðin og peninga- græðgin sem öllu ræður. Leikur stóru strákanna á taflborði heimsins. Hver gefur þeim þetta vald? Ég held að þeir bara taki það. Með einhverjum ráðum. Oft með styrjöld. Það er ekki smá dónaskapur að ráðast inn í ann- að land og skjóta íbúana og sprengja heilu íbúðarhverfin í tætlur. Þetta er ekki líðandi. Hin svokölluðu vanþró- 402 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.