Heima er bezt - 01.09.2004, Page 48
Asýran - Dregur úr sýrumyndun
Notkunarsvið: Asýran inniheldur ranitidín sem er notað við sárasjúkdómum í meltingarfærum, s.s. maga- og
skeifugarnasárum og er fyrirbyggjandi gegn slíkum sárum. Lyfið er notað við bólgum í vélinda sem stafa af því að
magasýra kemst úr maga upp í vélinda. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir ranitidíni, barnshafandi konur
og konur með börn á brjósti mega ekki nota lyfið. Fólki með skerta nýrnastarfsemi er bent á að ráðfæra sig við lækni
áður en lyfið er tekið. Aukaverkanir: Um 3-5% sjúklinga finna fyrir einhverjum aukaverkunum af völdum Asýran,
eins og t.d. höfuðverk, útbrotum, þreytu, niðurgangi og svima. Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun
fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 15.10.01
www.actavis.is
hagur í heilsu