Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 7

Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 7
í unganum. Hann var þá undir kviðnum á kettinum. Eftir þetta skildust þeir varla að nema þegar Dalimon fór út að sinna skyldustörfum. Þegar kötturinn var inni kúrði unginn oft á hausnum á honum eða undir kviðnum. Þegar unginn óx upp varð þetta falleg hæna en vinskapur þeirra hélst á meðan bæði lifðu. Hænsnin okkar voru komin út af hænsnum sem Petersen lyfjafræðingur kom með frá Danmörku. Þessi merkilega hæna sem Dalimon tók í fóstur, fékk nafnið Petra. Það vakti óskipta athygli ókunnugra þegar Petra og Dalimon fóru í göngutúra saman. Þegar ég var tíu ára fór ég í bamaskólann á Stokkseyri. Það voru tveir salir í skólahúsinu og við vorum rúmlega 40 í skólanum. Fyrsti og annar bekkur voru í öðrum salnum en þriðji og ijórði bekkur saman í hinum salnurn. Mér þótti gaman í skólanum og flest fögin höfðuðu til mín. Það voru ekki kenndar smíðar en teikning var kennd og mér þótti hún skemmtileg og kennarnir hver öðram betri. Þegar ég byrjaði í skólanum átti ég heima í Pálshúsum en á miðjum vetri fluttum við að Sandvík. Sandvík var lítið timburhús á Stokkseyri, sem stóð niður við sjó. I því var eldhús og mamma fékk eldavél. Það vora mikil viðbrigði. Núna er búið að rífa húsið og slétta þar sem það stóð. Faðir minn missti heilsuna þegar ég var krakki. Hann fékk lungnabólgu og brjósthimnubólgu, sem varð til þess að hann gat ekki unnið lengur á sjó hjá öðram. Hann náði sér aldrei eftir þessi veikindi. Bræður mínir hlupu undir bagga með foreldrum mínum við að sjá fyrir heimilinu með móður minni. Faðir minn fékk sér bát og þegar heilsa hans leyfði fór hann á sjóinn og veiddi bæði rauðmaga og grásleppu. Það létti talsvert undir með heimilinu. Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að vinna? Þegar ég var 8 ára fór ég í sveit með móður rninni og tveimur bræðram mínum, Jóni og Guðmundi, að Kálfhóli Ester á Skeiðum. Mamma og bræður mínir voru þar í kaupavinnu. Ég hafði það gott og lítið þurfti ég að vinna, sótti stundum hestana og rak kýmar. Sumarið eftir var ég í Kakkahjáleigu, sem nú heitir Hoftún. Gísli Pálsson, bróðir Isólfs Pálssonar, var bóndi þar og spilaði í kirkjunni. Þá var ég níu ára, fékk bæði orf og ljá og vann í heyskapnum og þóttist maður með mönnum. Ég var líka í alls konar snúningum eins og tíðkast í sveitinni. Þar fékk ég lamb í kaup. Síðan var ég í sveit í Hæringsstaðarhjáleigu. Þar næst á eftir fór ég að Syðra-Velli í Gaulverjabæ, þar vora boðnar í mig 100 krónur og seinna sumarið fékk ég 110 krónur. Það var eini staðurinn þar sem var haldið upp á afmæli mitt. Á þessum bæ var mikið ræktað af grænmeti en slíkt • .€■ Andrés með Ester var fremur óvenjulegt á þeim tíma. Það var ræktað alls konar salat, rófur, næpur, gulrætur, radísur og vitanlega kartöflur, svo að eitthvað sé nefnt. Á þessum bæ bjuggu tveir bræður og tvær systur með móður sinni. Onnur systirin dansaði vikivaka við okkur krakkana. Þama var stutt á milli bæja og mikill samgangur og allt mjög skemmtilegt. Ég var í sveit öll sumur frá því ég var 8 ára og þar til ég fór í síld á Siglufirði þá 17 ára gamall. Ég á bjartar minningar frá þeim tíma. veiðin í læknum Þegar ég var í Pálshúsum var vatn þar stutt frá, sem hét Árskautstaðarvatn. í það vatn rann lítill lækur, Árkvamarlækur. Hreppstjórinn átti land þar að. Þegar ég var krakki, innan við tíu ára aldur, kom ég á lítinn bæ í nágrenninu og sá þar net uppi í sundi á bæjarhúsinu. Þetta vora einhver slitur úr síldameti. Ég fékk að skoða þetta og maðurinn á bænum spurði hvort mig vantaði net og hvað ég ætlaði að veiða. Ég sagðist ætla að veiða silung. Hann gaf mér smábút sem ég fór með heim og pabbi hjálpaði mér að gera netið þannig úr garði að hægt væri að leggja það. Síðan fór ég og lagði þvert yfír lækinn og aflinn var góður. Þá fannst mér lækurinn vera mun breiðari en hann er í raunveraleikanum. Eftir að ég varð fullorðinn kom ég að læknum og hann Heima er bezt 295

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.