Heima er bezt - 01.07.2006, Blaðsíða 21
Hermann
Oskarsson
Minningar
kennara(barns)
frá Laugaskóla 1976
Laugaskóli
Haustið 1975fór Sigurður
Kristjánsson skólastjóri
Laugaskóla þess á leit við
mig að koma norður og kenna
við skólann íjjarveru föður
míns, Óskars Agústssonar.
Faðir minn hafði fengið leyfi
menntamálaráðuneytisins til að
dvelja í Danmörku og kynna sér
íþróttakennslu. Leyfið varfrá
áramótum ogfram á vor 1976. Ég
hafði verið að vinna í Reykjavík
sumarið 1975 og í Mosfellsbæ
um haustið, orðinn langþreyttur á
lœknisfræðinámi sem ég stundaði
við HI með hléum, frá hausti
1972 tilvors 1975. Tók ég þessari
málaleitan drœmlega Ifyrstu.
Leist mér ekki á að jlytja norður
í fásinnið, enda orðinn vanur
þéttbýlisandanum í Reykjavík.
Atti einnig erfitt með að varpa af
mér hlutverki nemandans og setja
mig í spor kennarans svona á
svipstundu.
Eftir að faðir minn hafði rætt málið
ítarlega við mig og lofað stuðningi sínum,
lét ég tilleiðast og fluttist í Laugar í lok
árs 1975. Tók ég við íþróttakennslu föður
mins í janúar, skömmu eftir að hann hvarf
af landi brott til Kaupmannahafnar, þar
sem hann dvaldi í leyfinu.
Auk kennslunnar kom í minn hlut
að annast pósthúsið á Laugum en
foreldrar mínir höfðu með höndum
póst- og símaþjónustu á staðnum um
langt árabil.
Kennarar á Laugum á þessum tíma vom
auk föður míns og Sigurðar skólastjóra,
sem kenndi íslensku, íþróttakennaramir
þeir Sigurður Viðar Sigmundsson, sem
kenndi eingöngu stærðfræði, Halldór
Valdimarsson, sem kenndi piltum
leikfimi, og Hróar Bjömsson, sem
kenndi smíðar og teikningu. Sigrún
Valtýsdóttir kenndi hannyrðir o.fl.,
Sigurður Randver Sigurðsson ensku,
Málfríður Kolbrún Guðnadóttir vélritun,
Ingólfur Geir Ingólfsson náttúrufræði
og Níels Eyjólfsson raungreinar.
Iþróttafulltrúi ríkisins, Þorsteinn
Einarsson, lagði ekki fortölulaust
blessun sína yfir ráðningu mína. Gerði
hann athugasemd við þá ráðstöfun að
réttindalaus kennari væri ráðinn til
kennslu í íþróttum á Laugum. Fannst
honum skjóta skökku við, þar sem ekki
færri en þrír íþróttakennarar með full
réttindi voru starfandi við skólann á
Heimaerbezt 309