Heima er bezt - 01.07.2006, Page 31
Erlendur þjálfari að störfum.
Æfmgasalurinn.
upplifum höfnun, tökum dóm annarra inn á okkur. Reipisjóga
hjálpar okkur að ráða við það og vinna gegn neikvæðri
afstöðu í lífínu. Aukin yfírsýn og skilningur hjálpar.
Það er mikil orka á Islandi, það sýður og kraumar í öllu.
Allt sem við gerum er mörgum sinnum meira en hjá öðrum
þjóðum svo að það liggur við að allt sé með offorsi. Við
erum mörg sem gröfum okkur gröf áður en við vöknum
til lífsins. Það þarf stundum stór áföll til þess að átta sig á
því hvað maður er að gera og hversu hratt við hlaupum á
undan. En við verðum að læra að vinna með þetta því við
erum tvístruð og það liggur við að það þurfi stór áföll svo að
við áttum okkur. En það er fólk í dag sem hefur vaknað til
vitundar án þess að hafa orðið fýrir miklum skakkaföllum,
t.d. Reipisjóga-kennarar sem núna eru í kringum 50 á Islandi.
Þetta er fólk sem er að leita að betra lífí og að vinna í sinni
tilveru. Reipisjóga gengur út á að sýna fordæmi og að þú
getur engu breytt nema sjálfum þér. Ef þú breytir sjálfum
þér breytist umhverfí þitt um leið. Við Reipisjóga kennarar
vinnum í því að sýna fordæmi. í rauninni er líkamlegur árangur
í Reipisjóga einungis byrjun á dýpri vinnu. Reipisjóga er
mjög öflugt kerfí, sniðið til þess að styrkja sál og líkama.
Það samræmir ólíka þætti til að skapa eina sterka heild í
lífi þeirra sem stunda þessa tegund af hug- og heilsurækt.
Reipisjóga örvar alla vöðva líkamans, t.d. fót- og brjóstvöðva,
handleggs-, rass- og bakvöðva. Þaó eykur starfsemi innri
líffæra og örvar meltingu. Brennsla fer í gang og orka eykst.
Eftir því sem flæðið eykst því mun auðveldara á líkaminn
með að losa sig við óæskileg efni. Margir sem hafa átt við
meltingartruflanir að stríða og öðru því tengdu, hafa fundið
muninn til hins betra.
I kenningum Reipisjóga segir að vinsemd og umhyggja séu
nauðsynlegir fylgifískar þess. Þegar Reipisjóga er stundað
þá skulið þið ekki dæma eða gera óraunhæfar kröfur til
frammistöðu ykkar. En skuldbindið ykkur til þess að útkoman
verði ykkur í hag. Líkaminn tekur vel við áskorun og hvatningu.
Þegar við lifum lífínu í góðvild og umhyggju í eigin garð
og annarra, verður árangurinn eftirtektarverður. Þegar við
stundum Reipisjóga erum við að þjálfa hæfni okkar til að
velja viðbragð í stað þess að bregðast við. Við höfum valið
að næra og hugsa vel um okkur. Sjálfsímynd okkar eykst
og þar af leiðandi birtingarform okkar; ekki bara vegna þess
að við erum í betra ástandi líkamlega, og höfum sigrast á
áskoruninni, heldur vegna þess að við stóðum við eigin
skuldbindingar og emm því trúverðug. Með því að lofa og
standa við orð okkar eykst sjálfsvirðing okkar.
Hvað er hugleiðsla?
Einkenni hugleiðslu er að um leið og þú veitir því athygli
að þú ert farinn, ertu aftur kominn. Segjum að þú sért sitjandi
með lokuð augun. Um leið og þú ferð að hugsa ertu farinn
og um leið og þú áttar þig á því ertu kominn. Hugleiðsla
gengur í fæstum tilfellum út á það að komast í einkennilegt
ástand eða hverfa, hún gengur út á það að vera fullkomlega
til staðar.
Við höfum flest upplifað það ástand að öll tilveran hefur
verið í jafnvægi. Það er kyrrð, jafnvægi, fegurð og þakklæti.
Einhverskonar ástand vellíðunar þar sem allt er eins og það á
að vera á því augnabliki og maður upplifir sig á mjög sérstæðan
hátt. Þegar maður fer að hugsa um þetta þá hverfur það.
Guðni gerði sér fljótlega grein fyrir því að íjöldinn allur af
fólki sem kom til hans í Reipisjóga var ekki ánægt þegar það
kom, það var að leita að betra lífi. Sumir hugsuðu neikvætt
um sig eða umhverfi sitt og það kom fram á lífi þeirra.
Þegar hugsunin er jákvæð, löðum við það góða og jákvæða
að okkur.
Þrepin 7 hafa verið sett á netið, en það sem vitað er að ekki
allir hafa aðgang að netinu eru þau birt hér með góðfúslegu
leyfi Guðna Gunnarssonar.
Einnig er komin á netið bók um Reipisjóga, sem Guðni
Gunnarsson gaf þjóðinni.
Heima er bezt 319