Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 8

Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 8
Ég grét á kvöldin, enda var ég mjög háð móður minni. A bænum voru tvær stelpur, systur, önnur jafngömul mér, hin yngri. Þetta gerðist helst fyrir kvöldmatinn en ég grét víst minna ef það var kjöt í matinn en ekki saltfískur. Val- gerður húsmóðirin á bænum var mjög skynsöm kona. Hún sagði mér seinna að hún hafi tekið mig í fangið og þá hafi ég ekki verið lengi að huggast. Svo hafi ég farið að leika mér með krökkunum og allt var gleymt. Hún sagði „þig vantaði öryggi.“ Fjallið mitt er Ingólfsfjall og draumastaðurinn minn fyrir sumarbústað er Grímsnesið, sunnanmegin við Alftavatnið. Það fmnst mér fallegasti staðurinn. Ég átti sumarbústað norður á Ströndum og það var fínt, en ég á hann ekki leng- ur. Ég var fimm sumur í Grafningnum, á Torfastöðum, en sjötta sumarið var ég búin að eignast systur og var heima að passa hana. Gefa henni að borða, baða og búa til á hana föt og gera allt sem krakki á mínum aldri gat gert. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt. Móðureðlið og ijölskyldukonan kom snemma upp hjá mér og ég hafði alltaf verið mjög gefín fyrir dúkkur. Attirðu mikið af dúkkum þegarþii varst lítil? Nei, ég man ekki eftir dúkkunum mínum. Það var einhvem tíma mjög snemma á Blómvöllum að ég fékk fína dúkku með postulínshöfuð. Vinkona foreldra minna hafði átt þessa dúkku og ég fékk hana í jólagjöf. En bróðir minn var ekki lengi að stúta henni. Þar með var sá draumur búinn. Ég eignaðist ekki almennilega dúkku fyrr en ég var orðin tíu ára. Þá fóm mamma og pabbi til Englands að heimsækja þessa vinkonu sína og þá var keypt handa mér dúkka, sem var öll úr hörðu plasti. Ég á hanna enn þá. Einu sinni eign- aðist ég bláan dúkkuvagn, hann var úr jámi en skermurinn úr plasti sem rifnaði fljótlega. Við stelpumar í nágrenninu fórum oft í búaleik og bökuðum dýrindis drullukökur í dós- arlokum og sem við skreyttum með blómum. Ég naut öryggis og frelsis en það gat líka verið einmana- legt og tómlegt að alast upp á þessum stað. Það var lítið af krökkum á mínu reki í nágrenninu. Þegar ég fór í Mýrarhúsaskóla og var ég eina stelpan sem var sjö ára. Það var dálítið einmanalegt. Þá var skólinn í gamla húsinu sem enn stendur. Þá byrjuðu krakkamir í skóla 7 ára en ég var búin að vera í tímakennslu áður hjá konu sem var inn á Snorrabraut og var kennari og sennilega hætt að kenna í skóla vegna ald- urs. Hún hét Guðrún. Dóttir hennar vann með föður mínum en hann vann þá hjá Gísla Jónssyni, eins og fyrr segir, ók vömbíl og vann í versluninni. Þá var fyrirtækið til húsa á Ægisgötunni. Fyrirtækið var með vömskemmu úti í Sörla- skjóli, í bragga, og þar voru geymdar birgðir fyrir togarana sem hann gerði út. Það var steyptur garður í kring um skólann og lóðin var ógróin, með möl, en á votviðristímum mynduðust pollar, Elísabet Jónsdóttir yngri ásamt ömmu sinni og alnöfnu. sem voru vinsælir hjá mörgum. Það voru ekki nein leik- tæki í skólaportinu og lítið hægt að gera sér til gamans en í frímínútum vomm við oftast rekin út. Mig minnir að skól- inn hafi verið fyrst frá klukkan eitt til þrjú og ég lék mér ekki við neinn. Það var einn strákur í bekk með mér, sem var betri en aðrir. Hann heitir Bjami Ingimundarson og var frá Völlum við Nesveg. Hann var aldrei með neina hrekki eða fíflaskap. Ég eignaðist seinna vinkonu sem átti heima á Elliða, hand- an við Nesveginn, nokkm austar. Hún heitir Edda og var ári yngri en ég. Mamma Eddu var Guðný, afar fær saumakona. Af því að ég var ein, var um það samið að hún fengi að byrja í skólanum þó að hún væri yngri. Það var talsvert liðið á skólann þegar hún byrjaði. Það var mikill munur fyrir mig að fá stelpu með mér. Ég var í Mýrarhúsaskóla allan bamaskólann en það var ekki neinn gagnfræðaskóli á Nesinu svo að ég fór í Gagn- fræðaskóla Vesturbæjar, sem var við Öldugötu, í húsi gamla Stýrimannaskólans. Þangað fór ég með strætó. Þar var Guðni A. Jónsson skólastjóri og þama var ákaflega gott kennaralið. Sverrir Kristjánsson kenndi mér dönsku, aðrir kennarar vom Jón Guðnason, Bjami Guðnason, Haraldur Magnússon og Óskar Magnússon frá Tungunesi, sem var ógleymanlegur kennari. Hann sagðist tala fegursta mál á Islandi. Hann var fáskiptinn og virðulegur maður. Þegar við voram að ljúka seinni bekknum og farin að fá hvolpavit, þá var það hann sem ræddi við okkur um hlutina sem ekki vom í bókunum. Óskar var sannur vinur okkar og það fúndum við, þó svo að hann væri alltaf dálítið stífur og virðulegur. Ég var í A-bekk og þegar komið var undir vor sagði hann að við fæmm öll í menntaskóla og tók til að kenna okkur í aukatímum, grasafræðina, en Óskar var náttúmfræðikenn- ari. Eftir að hafa verið í Vesturbæjarskólanum fór ég í Gagn- 576 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.