Heima er bezt - 01.12.2006, Side 9
in, þurft að sauma á mig bæði kjól og kápu og ég man að
ég fékk minnsta kyrtilinn. Við vorum fermd í Fríkirkjunni
af séra Jóni Thorarensen. En af því að pabbi var í vinnu
hjá Gísla Jónssyni og keyrði vörur út í búðimar, þá hafði
hann betri tækifæri en margir aðrir til þess að nálgast það
ómögulega, eins og gos. Gos náði hann í og það var geymt
til veislunnar. Þetta var mjög myndarleg matarveisla og ég
man ekki hvort maturinn var keyptur hjá Síld og físk eða
annars staðar.
Veislan var haldin heima á Blómvöllum, þá var ekki búið
að byggja ofan á húsið svo að húsgögnin vom tekin upp í
svefnherbergi pabba og mömmu og þar sett borð undir veislu-
föngin. Eg fékk þá fínasta kjólinn sem ég hafði átt fram að
því, kjól sem Guðný á Elliða saumaði. Mamma hafði alltaf
saumað allt á mig en hún var mjög góð saumakona.
Kjólinn var gulleitur, úr satíni með siffoni yfír og svart-
an bolero-jakka úr flaueli. Það komu allir ættingjarnir sem
vom boðnir og fyrstu frænkur, sem komu úr föðurættinni,
gáfu mér hálsfesti og eymalokka sem pössuðu við kjólinn.
Það voru ekki samantekin ráð, því þær vissu ekkert hvernig
kjóllinn yrði á litinn. Eg fékk flatbotna svarta lakkskó með
slaufu, sem mikið vom í tísku á þessum tíma. Ég var búin að
fá permanent hjá Fríðu á Bjargi. Mig minnir að hún hafi gert
þetta heima hjá sér, en hún átti þá heima á efstu hæðinni á
Bjargi. Ég fékk úr frá pabba og mömmu og mjög flotta næl-
onblússu frá Binnu frænku minni, Binnu, sem á Ullarhúsið í
Austurstræti. Ég man að þetta var svo flott blússa, sem sást
mikið í gegnum og hún var með blúndunr og plíseringum.
Ég man alltaf hvað mér fannst hún æðisleg, hún var í
kassa. Ég fékk mjög mikið af skartgripum sem ég not-
aði kannski ekki mikið en þeir vom svo tískubundnir.
Svo var það Sæli kafari, Ársæll Jónasson. Þau hjónin
gáfu mér Bismarks silfurarmband.
Ég á mynd af mér á fermingardeginum og það var
þá sem ég uppgötvaði að ég væri ekki ljót. Það var
maður annarrar móð-
ursystur minnar, Fljörtur
Bergstað, hann var búin
að ákveða það að þegar ég
fermdist, þá myndi hann
koma og taka af mér mynd-
ir. Fljörtur var alltaf svo
hlýr og góður, hann var
bróðir Jónasar Jakobsson-
ar myndhöggvara. Hann
kom með myndavél í ferm-
inguna og tók af mér fullt
af myndum og gaf mér
margar myndir og sumar
þeirra stækkaðar. Svo var
líka farið með mig í mynda-
töku á ljósmyndastofuna hjá
Lofti. Þetta var góður tími
og mjög eftirminnilegur.
Ferming. Um sumarið fór ég að
Brúðkaup.
fræðaskóla verknáms,
sem var til húsa í Braut-
arholti. Þar var Magn-
ús Jónsson skólastjóri.
Mér leiddist í þessum
skóla og ég var búin að
læra allt sem kennt var
þar nema félagsfræðina.
Ég valdi þennan skóla út
af handavinnunni og var
í saumadeild. Ég hafði
hugsað mér að verða
handavinnukennari. Þá
var ekki talað um hönn-
un. Ég var þar ekki nema Stúdent.
einn vetur og fannst ég
hafa lítið þangað að sækja.
Fermingin mín
Það var mjög eftirminninlegur dagur. Það var búið að
vera langt verkfall og ekkert til. Þetta var 24. apríl 1955.
Það var ekki til gos og lítið til í matinn nema helst fískur
og það var erfitt með alla hluti. Af því að ég var smávax-
Heimaerbezt 577