Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Page 15

Heima er bezt - 01.12.2006, Page 15
Hjörtur . 5*1 Þórarinsson: 1 ■ Æviferill Fjalla- Eyvindar og Höllu I M aö er erfltt að fara 2- M 300 ár aftur í tímann og rekja Iaunferðalag eins frægasta útilegumanns íslandssög- unnar, Eyvindar Jónssonar og konu hans Höllu Jónsdóttur. Samtímasagn- ir eru til þegar kom til kasta sýslu- manna. Þjóðsagnir urðu miklar. Þær voru sprottnar af ýmsum ástæðum. Almenn forvitni hefur ávallt haldið uppi slíkum sögum, ævintýralegur flótti hefur vakið aðdáun hjá sumum en einnig hræðslu sem almennt ríkti gagnvart útilegumönnum. En cinnig hefur velgjörðamönnum þeirra verið í senn Ijúft að villa sem mest um fyrir réttvísinni, en jafnframt nauðsynlegt að afneita allri aðstoð við grunaða sauðaþjófa. Víða hefur hann átt vel- gjörðamenn í byggð. Útlegðin var for- senda fyrir sauðaþjófnaði Eyvindar en gagnstætt var hjá öðrum þjófum, sauðaþjófnaður þeirra var forsenda útlegðar. Elstu almennu sagnimar eru frá Gísla Konráðssyni. Það kom í hlut föður hans, Konráðs Gíslasonar hreppstjóra á Völl- um í Skagafirði, að flytja Höllu, eftir fangtöku á Hveravöllum, yfir að Þing- eyrum til Bjarna Halldórssonar sýslu- manns. Síðan tóku fleiri saman brot af lífshlaupinu, og úr því hafa spunnist munnmæli og þjóðsögur, seni koma m.a. fram í Þjóðsögum Jóns Amasonar. I nútíma ritum em tvær bækur sem veita ómetanlegar upplýsingar. Guð- mundur Guðni Guðmundsson skrifaði Sögu Fjalla-Eyvindar, 1. útg. 1970 og 2. útgáfa 2004 er kom út hjá Vestfirska forlaginu. Þá ritaði Olafur Briem bókina ....... Útilegumenn og auðar tóttir, 1959. Sú bók var endurútgefm og aukin 1983. Við lestur þessara bóka og með hlið- sjón af því horfellis og hörmungar árferði sem ríkti á þessum ámm, vekur það það undmn og aðdáun hvernig þau gátu bjargað sér áfram með þetta þrennt á Bœrinn Traðarholt, eins og hann er í dag. móti sér, árferðið, flóttann og íjalladvöl- ina. A sama tíma féll fólk úr hungri sem bjó við frjáls kjör í byggð. Æska og uppvöxtur Eyvindar Hlíð, Lœkur, Traðarholt Eyvindur Jónsson fæddist 1714 að Hlíð í Hmnamannahreppi. Foreldrar hans vom Jón Jónsson og Ragnheiður Eyvindsdóttir. Böm þeirra hjóna urðu 10. Eyvindur var elstur systkina sinna. Hann þótti greindur og ráðkænn, en til- tektarsamur, sundmaður góður og vel fær á handahlaupi. Hann náði kunn- áttu í lestri. Handlagni hans var við brugðið og mun hann hafa haft atvinnu af smíðum. Heimaerbezt 583

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.