Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Síða 17

Heima er bezt - 01.12.2006, Síða 17
 Lcekur í Flóa. lesandi en óskrifandi. Raular gjarnan fyrir munni sér kvæða- eða rímnaer- indi, þó afbakað.,, Ekki er kunnugt um ferðir Eyvind- ar næstu árin eftir að hann hvarf frá Traðarholti, en sögnum ber saman um það að hann hafi sest að búi á Vestfjörðum og gerst þá ráðsmaður hjá Höllu Jóns- dóttur ekkju í Miðvík í Aðalvík. vestfirðir, Hornstrandir Halla Jónsdóttir lífs- förunautur hans kemur til sögunnar Súgandaíjörður, Miðvík í Aðalvík, Hrafnfjarðareyri. Öllum sögnum ber saman um að Eyvindur hafi farið til Vestijarða þegar hann hvarf frá Suðurlandi. Samt sem áður ber að hafa í huga að allir sem reyndu að liðsinna honum, gátu talist samsekir ef þeir liðsinntu rikt- uðum þjófi. Æviferill hans frá 1745 var næstum óslitið launferðalag. Velgerð- armenn hans hafa vafalaust villt um fyrir fulltrúum réttvísinnar eftir megni og ástæðum hverju sinni. Árið 1742 gerist Bergsveinn Hafliða- son prestur í Súgandafirði. Hann var jafnaldri og sveitungi Eyvindar. Þau tengsl leiða líkur að því að Eyvindur Kort yfir Hrafnfjarðareyri við Jök- idfirði. hafi fyrst flutt sig þangað, einnig styð- ur það sagnir um að Halla Jónsdóttir (f. 1715?) hafi verið þaðan. Þessu til viðbótar er talið að hún hafi síðan verið ekkja og búsett í Miðvík í Aðalvík og þangað hafi Eyvindur svo komið og sest að í búi með henni. Staðfestar sagnir eru ekki til staðar, en staðfest er að þau leigðu Hrafnljarðareyri nálgt 1755, af áður nefndum Bergsveini, sem þá var orðinn prestur á Stað í Grunnavík. Náttúrufegurð á Hrafnjjarðareyri. Mikil harðindi voru á þessum árum. I Höskuldsstaðaannál segir: „Gekk á þeim vetri og vori hvinnska, hnupl og þjófnaður almennt af flakkandi fólki líka sumum, er inni voru fram- ar en fyrri, er gripu bæði ætt og óætt. Sauðastuldur víða, einninn hrossa, enda át þá sumur húsgangur allt það tönn á festi og það fundið gat.„ Bóndinn á Hrafnfjarðareyri í Jökulfjörðum I skrá yfir tugthústolla í Isa- Ijarðarsýslu frá árinu 1760, er þess getið að Eyvindur Jónsson bóndi á Hrafnfjarð- areyri greiði tugthústoll, eitt lambskinn og einn skilding. Engin leynd hefur hvílt yfir Eyvindi þetta árið. Böm þeirra, sem talið er að hafí komist á legg, em tvær dætur, Guðrún, sem fæðist 1749 og Ólöfárið 1755 eða 1757 Þessum dætmm sínum kemur Eyvindur í fóstur hjá vinafólki sínu, en þó mun Guðrún hafa verið með þeim undir Amarfellsmúla 1762, því þar komu í leitimar hjá Brynjólfí sýslumanni „skór 10-11 vetra gamals ungmennis af sauðskinni, barns nær- skyrtu ræfill af einskeftu, og bams- sokka ræflar,,. Frá árinu 1760 fer að syrta í álinn. Grunur um sauðaþjófnað vaknar og einn- ig gætu sagnir úr Flóanum frá 1745 hafa borist vestur í Jökulfírði. Telja má víst að launferðalag þeirra næstu 20-25 árin hefjist árið 1760- 61. Framhald í nœsta blaði. Heimaerbezt 585

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.