Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 18

Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 18
Freyja Jónsdóttir: Brot úr merkrar ævi konu Hún hét Sigríður Ögmundsdóttir, fœdd að Svínhólum í Lóni, Austur-Skaftafellssýslu, þann l.júlí 1886yngst átta systkina. Foreldrar hennar voru Guðrím Marteinsdóttir og Ögmundur Runólfsson, bændur á Svínhólum. Guðrún var fædd á Flatey á Mýrum œttuð úr Breiðdal af hinni svokölluðu Þorvaldsstaðarœtt (sbr. Ættir Austfirðinga). Ögmundur Runólfsson Þorsteinssonar var frá Geitavík í Borgarfirði eystra. Þegar Sigríður var tæpra tveggja ára lést faðir hennar. Leyst- ist þá heimilið upp, elstu bömin fóm í vinnumennsku á ýmsum bæjum en Guðrún Mar- teinsdóttir flutti að Steinaborg á Berufjarðarströnd til Þorsteins bróður síns, sem þar bjó rausn- arbúi og vom yngstu bömin meó henni. Eftir tveggja ára dvöl á Steinaborg giftist Guðrún Marteinsdóttir Þorgrími Þorláks- syni bónda í Gautavík. Hann var þá ekkjumaður með fjórar ungar dætur. Þannig atvikast það, að þegar Þor- grímur missir konu sína, Þómnni Stein- grímsdóttur, fær hann unga stúlku, Guðrúnu Ögmundsdóttur, til að stýra búinu. Svo vel líkaði Þorgrími við hana að hann bað hana að ílengjast hjá sér. Guðrún Ögmunds- dóttir ber það í tal við móður sína og er miður sín, hún vorkenndi litlu stúlkunum móðurlausu, en þá var Guðrún leynilega trúlofuð pilti úti á Djúpavogi og vildi ekki slíta því sambandi. Björn Björnsson. Sigríður Ogmundsdóttir. Guðrún Marteinsdóttir, móðir hennar, tekur það ráð að skrifa Þorgrími og tclur það góðan kost að hún komi ráðskona til hans. Þetta verður úr og Guðrún flyst að Gautavík. Tókust með þeim Þorgrími góðar ástir og gengu þau í hjónaband og eignuðust þijú böm saman. Effir stuttan tíma í Gautavík fluttist Sig- ríður til systur sinnar, Guðrúnar Ögmunds- dóttur, er þá var giff Sigurði Einarssyni frá Djúpavogi. Þau fluttu síðan til Fáskrúðs- fjarðar. Sigríður var þar að mestu þar til hún giftist Bimi Bjömssyni Hallgrímssonar ffá Stóra-Sandfelli. Þau gengu í hjónaband þann 22.desember 1907, en þá hafði Sig- ríður menntað sig lítilfjörlega, eins og hún sagði sjálf. Hún var um tíma á Seyðisfirði og vann hjá Eyjólfi Jónssyni klæðskera og lærði þar karlmannafatasaum. Einnig var hún um tíma í Reykjavík við matreiðslu- störf en Sigríður var vel greind kona og lífið varð hennar mesti skóli. Sigríður og Bjöm festu kaup á húsi, Uppsölum. Þann 27. nóv- ember 1908 fæðist fýrsta bam þeirra, stúlka, sem hlaut nafnið Sigrún. Um svipað leyti taka þau í fóstur Valborgu litlu Sigurðardótt- ur en Guðrún systir Sigríðar, lést þá um sumarið (26. júní 1908) frá sex ungum bömum. Yngstar voru þær Agústa og Valborg, fæddar 20. ágúst 1907. Ágústa fór í fóstur til Þorsteins, bróður Sigríðar og konu hans Helgu Þorkelsdóttur en þau bjuggu í Gilstungu á Fáskrúðsfirði. Næst í röðinni af bömum Sigríðar og Bjöms var Jóhanna, f. 12. september 1912, hjúkrunarkona til fjölda ára á Landsspít- alanum. Þar á ef'tir var Benedikt, f. 31. júlí 1916. Bjöm stundaði sjóinn og einnig vom þau hjón með smá búskap. I mars 1918 varð Bjöm fyrir slysi um 586 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.