Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Page 20

Heima er bezt - 01.12.2006, Page 20
Sigríður Ögmundsdóttir með Birnu á fermingardegi hennar. sem mátti ekkert aumt sjá. Það var ekki alltaf gengið eftir greiðslu lyrir húsaskjól og veittan greiða. Til þess að geta rekið þetta var hún með skepnur, kýr og hænsni. Hún var mikil garð- yrkjukona og ræktaði matjurtir, kartöflur, gulröíiir og kál og svo mætti lengi telja. Af sumum var Sigríður talin vinnuhörð en það var ekki meira en venja var í þá daga, því þá þurftu allir að vinna. Bömum sínu kom hún öllum til manns og urðu þau öll hið myndarlegasta fólk. Elst þeirra var Sigrún en hún giftist frek- ar ung Antoníusi Samúelssyni, fæddum 1906. Hann var Fáskrúðsfirðingur. Sigrún og Antoníus eignuðust fimm öm. Elst þeirra var Bjöm, fæddur 1928. Hann giftist konu sem hét Guðrún Mikaelsen og þau eign- ast tvær dætur. Bjöm Antoníusson var á besta aldri þegar hann dmkknaði með Flrafhkeli úr Garði. Næst kom Jón, sem var fæddur 1930 og Jóhann fæddur 1932, Sigríður fædd 1935 og Erlingur 1938. Árið 1952 deyr Antoníus og þá stóð Sigrún eftir ein. Eftir það flutti hún til Reykjavíkur og vann þar ýmis störf. Næst í röðinni af bömum Sigríðar og Bjöms, var Jóhanna hjúkrunarkona, fædd 12. september 1912. Jóhanna vann við hjúkmn á Landspítalanum til fjölda ára. Sigrún Björnsdóttir, Jóhanna Björns- dóttir og Valborg Sigurðardóttir. Sigríður Ógmundsdóttir með dætur sínar. Talið frá vinstri: Jóhanna, Sig- riður, Birna og Sigrún. Hún giftist ekki og helgaði sjúkum alla sína krafta. Næstur á eftir henni kom Benedikt, fæddur 31. Júlí 1916. Hann vann fyrst sem bílstjóri hjá Marteini Þorsteinssyni en mest- an part ævinnar var hann við verslunarstörf. Hann var bílstjóri í vegavinnu og kynntist þá konunni sinni, sem varráðskonavega- vinnumanna, Kristínu Magnúsdóttur frá Eskifírði. Hún var fædd 5. nóvember 1921. Þau settust að á Uppsölum, á heimilinu hjá Sigríði, sem fór þá aðeins að minnka við sig heimilisstörfin. Ekki var annað að merkja en hlutimir gengju vel fyrir sig þó að hún léti smátt og smátt af stjóm til tengdadóttur sinnar. Kristín og Benedikt eignuðust einn son, Bjöm, afar efhilegan mann. Þau tóku dreng- inn Harald, í fóstur sem var óvenjulega fal- Rósa Þorsteinsdóttir og Marteinn Þor- steinsson, mikill athafnamaður versl- unar og útgerðar, auk fiskverkunar. legt bam, ljúfur og góður. Haraldur var sonur vin- konu Kristínar, sem var ffá Eskifirði. Bima varyngst af bömum Sigríðar og Bjöms og er ein eftirlifandi af systkinahópnum. Sigríðurtók frænku sína Hólmfnði Ein- arsdóttur til sín og átti hún heimili sitt hjá Sigríði um áratuga skeið og þegar árin færðust yfír hana var vel að henni hlúð. Hún var algjör einstæðingur sem ólst upp á hrakningi fyrstu ár ævinnar, en hún missti móður sína þegar hún var á fyrsta ári. Það var meira að segja ekki alveg ömggt með aldur hennar en trúlega hefur hún verið 2-3 ámm eldri en hún hélt. Hólm- ffíður andaðist 100 ára. Hún var einstaklega ljúf manneskja og bamgóð og þeim sem kynntust henni þótti vænt um hana. Guðrún Einarsdóttir fra Odda, segir frá því hvað henni er það minnisstætt þegar Sigríður í Uppsölum var að vaska upp. „Hún var alltaf með vatn í tveimur fotum, fyrst var skolað úr köldu, síðan þvegið úr heitu vatni og leirtauið sett í grind. Síðan glattaði hún yfir hvert og eitt sfykki, bolla, 588 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.