Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 21

Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 21
 diska og undirskálar með hvítu líni. Eldhús- skápamir vom með fallega rósóttu bréfi í hillunum og blúndur vom framan á hverri hillu. Hún vann öll sín verk vel og af sér- stakri natni. Eg man efir að í eldhúsinu var stór kolaeldavél og yfir henni var háfúr, en síðast þegar ég man eftir var búið að breyta í eldhúsinu. Fyrir gluggunum í eldhúsinu vom hvítar gardínur með blúndu. Svona gerist ekki af sjálfú sér, það kostar mikla útsjónasemi og dugnað. Þá vom það félagsmálin, Sigríður var forstöðukona Slysavam- ardeildarinnar Hafdísar um tvo áratugi og beitti sér fyrir ýmsu til hagsbóta varðandi sjómennsku, lét setja björgunarhringi á allar bryggjur svo eitthvað sé nefnt. Sjómennimir bám mikla virðingu fyrir henni og tóku ævinlega ofan þegar þeir mættu henni á götu. Þegar Slysavam- ardeildin hélt samkom- ur og veitingar vom á boðstólum, sat Sigríður í sínum íslenska bún- ingi við dymar og tók við greiðslu og það var ekki ósjaldan að ríflega var greitt fyrir kaffið, slík virðing var borin fyrir henni. Oft hélt Sigríður fiindi deildarinnar á heimili sínu og var þá veitt af rausn og ekki krafist neinnar borgunar.“ Heyskapur. Sigriður, Jón, Jóhann Antomusarbörn Sigríðar og Sigríður. dottir Birna, Birna Björns dóttir með Odd- nýju Sv. Björg- vins og Eddu Óskarsdóttur. Frá Fáskrúðsfirði á síðustu öld. Guðrún segir frá því að þegar móðir hennar, Þórhildur, kona Einars í Odda Iést, þá reyndist Sigríður þeim afar vel. Henni er ofarlega í minni sumardagurinn fyrsti 1940, árið sem móðir hennar lést, þegar Sigríður kom með kjól á hana og skyrtur á bræðuma, sem hún hafði saumað. Þetta var ekki hið eina sem hún rétti að ffændbörn- um sínum en hún hafði sérstakar mætur á Guðlaugi. Hann hafði veríð í fóstri hjá henni í nokkra mánuði þegar hann var á fyrsta ári og móðir systkinanna í Odda á sjúkrahúsi í Reykjavík. Guðrún segir að sér sé það líka vel í minni þegar Sigríður hélt upp á afmæli Bimu, dóttur sinnar þann 17. nóvember, en Bima sjálf var í Reykjavík. ií l fM QfnlgB r | fíil Fáskrúðsjjörður 1930. Heimaerbezt 589

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.