Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Side 24

Heima er bezt - 01.12.2006, Side 24
Agúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ♦ 9 myndir á kórgafli Sunnlendingurinn Þorsteinn málari var fœddur i Skarfanesi á Landi vorið 1817, frumburður hjónanna Guðmundar Þorsteinssonar og Guðlaugar Guðmundsdóttur. Þau bjuggu í Skarfanesi, unz Þorsteinn var 18 ára, en fóru þá búnaði sínum út Jyrir Þjórsá, festu byggð sína í Hlíð í Gmipverjahreppi 1837. - Segir nánar frá fólki og fjölskyldu Þorsteins í öðrum þœtti, en báðir voru Guðmundur og faðir hans nefndarmenn og hreppstjórar á Landi og í Eystrihrepp. Fjórar töflur Þorsteins eru enn yfir altari. Ein brann á Lundarbrekku í Bárðardal 1878, ein eyðilagðist í kirkjufokinu í Hrepphólum, um eina er spurn, etv.fúin og ónýt. Olafsvallataflan er hjá Morkinskinnu. Ein er á Þjóðminjasafni, síöan verk Einars Jónssonar frá Galtafelli kom á kórgaflinn í Stafholti eftir 1952. Hafði Skarfaneshjónunum fæðzt fjöldi bama, áður en þau fóru frá Skarfanesi, lifðu þá 12, eftir tveggja áratuga hjónaband. - í Hlíð er svigrúm til sauðabú- skapar mikið, en langur bakkinn að Stóm Laxá. Vinnufólks var fúll þörf, en fátt var þess og öll sparsemd nauðsyn. Elzti sonurinn hefur ekki reynzt býsna liðtækur. Hitt vekur athygli, að Guðmundur gat lagt honum til eins vetrar vist, herbergi og fæði í Kaupntannahöfn haustið 1844. Eftirsjáin í vinnumanninum, elzta drengnum, hefur ekki verið tiltak- anleg, en furðu rúmur fjárhagur að geta greitt fargjald og húsnæði með matvist og þjónustu. Endurgjald heim kom- ins listmálara gat ekki verið hugmynd Guðmundar bónda í Hlíð. Fremur eygð vonin, að hann gæti bjargazt í Borginni við Sundið og yrði ekki baggi á heimilinu, sem verkefna- lítill listmálari hlaut að verða um miðja 19. öld. I sérprentaðri ritgerð 1992 (Amesingur II) segirPáll Skúlason frá Bræðratungu, að Jón Johnsen yfirdómari, Álaborgar-Jón endranær kallaður, leitaðist við að styrkja Þorstein til list- 592 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.