Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.12.2006, Qupperneq 25
náms. Hitt er víst, að Jón Sigurðsson lagðist fast á plóginn og útvegaði Þorsteini 4 vetra námsstyrk í Höfn, auk sam- skotaijár þingmanna, er Alþingi var endurreist 1845. 100 ríkisdala styrkurinn hverju sinni, svaraði ríflega 7 mánaða húsaleigu með fæði. Eftir 4 vetur og vel það með sumarveru a.m.k. eitt árið, kom Þorsteinn heim í Hlíð 1848, 31 árs. Fyrst í stað mátti eygja von í listmálaranum, en hann seldi 8 altaristöflur á fyrstu 5 árunum eftir námið á Listaháskól- anum í Kaupmannahöfn. Svo varð hann matvinnungur hjá fólki sínu í Hlíð. 1860 var 9. og síðasta altaristaflan keypt á kórgaflinn austur í Stöð. Þá var Þorsteinn a.m.l. farinn að heiman. Altaristöflur í kirkjunum voru um miðja 19. öld dökkar ijalamyndir með málaraverki af síðustu kvöldmáltíðinni eða atburði langa frjádags. Eru nokkrar slíkar enn í kirkju- húsi í dreifbýlinu og þykja sóma sér vel, aðrar á söfnum. Allmikill rammi eða skápur með yfirbyggingu er um lítið málverkið, sem er stækkað um helming með vængjum á hjömm, áður nefnt útskotnum mynda-hurðum. Þar er gjarna á myndmál úr Gt, Móse og Aron. Ein slík töflubrík var í Hrepphólakirkju 1849, talin bezta verk, en 1851 hafa sókn- armenn gefið til kirkjunnar olíumálaða altaristöflu í gylltri umgerð, eftir Þorstein Guðmundsson málara. Kostaði hún 50 ríkisdali. Hin fyrri var afskrifuð með biskupsbréfi. Verð nýju töflunnar var allt að hálfu leyti fólgið í útskomum ramma (álímdu skrauti) og dýrri gyllingunni, sem var full- komin nýlunda hérlendis. Gizkað skal á, að Þorsteinn hafi haft gullbronsið með sér frá Kaupmannahöfn. Myndefnið, kvöldmáltíðin, var vönduð eftirlíking heimsfræga málverks Leonardos da Vinci. Altaristaflan eyðilagðist í kirkjufokinu 29. desember 1908. Önnur tafla, sömu gerðar, einnig í gylltri umgerð, var komin í kirkjuna í Bræðratungu, þegar síra Jóhann Kr. Briem prófastur vísiterar þar 4. júní 1850. Kostaði hún 32 ríkisdali og hlýtur ramminn að hafa verið viðhafnarminni. Gáfu Guð- mundur Guðmundsson og Vigdís Þórðardóttir hjón í Króki töfluna. Er hún enn í Bræðratungukirkju og þykir dýrmæti, sem von er. 7 aðrar altaristöflur Þorsteins vom flestar frá ámnum 1852-1853, nema Stöðvarmyndin, skráð árið 1860. Vafa- lítið máluð mörgum ámm fyrr. Kirkjan í Stöð var mjög hrörlegt hús, þegar hún var lögð niður, en nýtt guðshús safnaðarins vígt úti á Kirkjubóli 1926. Þá höfðu hinar björtu altaristöflur Ankers Lund o.fl. Dana, fyrir löngu orðið öll tízka, en íslenzkra málara frá um 1910, Asgríms, Þórarins B. Þorlákssonar og litlu síðar Kjarvals og Eyjólfs Eyfells. Hvort sem mynd Þorsteins í Stöðvarkirkju var skemmd eða óhrein af sóti, var hún ekki samkvæm tíðarandanum. Hún hvarf með gamla prestssetursstaðnum í Stöð, en kann að vera geymd með afkomendum síra Guttorms Vigfússon- ar (d. 1937). Anna Þorsteinsdóttir prófastsfrú, dótturdóttir hans, man vel eftir altaristöflu sunnlenzka málarans, en telur afdrif hennar óljós. Máluð altarisbrík með útskotnum fjölum var í Búrfells- kirkju í Grímsnesi 1848. Þá var kirkjan þar svo til nýtt Altaristaflan í Bræðratungu. Myndfrá Elísabetu Gutt- ormsdóttur. Búrfellskirkja byggð 1845. Mynd: A.S. 2006. Ólafsvallakirkja á Skeiðum. Altaristafla Þorsteins málara er m't í viðgerð hjá Morkinskinmt skv. upplýsingum Sig- þrúðar Jónsdóttur í Tröð. Mynd: A.S. 1959. Heimaerbezt 593

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.