Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.2006, Side 31

Heima er bezt - 01.12.2006, Side 31
Kviðlingar kvæðamál Umsjón: Auðurm Bragi Sveinsson Vísnaþáttur Góðir vinir vísna- og alþýðukveðskapar. Hér er safnað saman margvíslegum yrkisefnum. Vísnasmiðir láta sér ekk- ert mannlegt óviðkomandi. Þeir kveða um allt milli himins og jarðar, eins og Sveinn frá Elivogum segir í forspjalli að ljóðabók sinni, Andstæðum( 1933): Kvað ég hnjóð og kersknimál, kvað um fróða presta, kvað um glóð, og k\>að um stál, kvað um góða hesta. Oft til svanna kvœði kvað, kenndur glanni í brögum, glöggt ei vann að gœta að guðs né manna lögum. Kristján Eldjárn forseti var gott skáld, eins og kunnugt er. Eg heyrði Þórarin, son Kristjáns, flytja vísu eftir föður sinn, og ég lærði hana á stundinni, eins og við gerum, er við heyrum snjalla og vel orta vísu. Oll mín kvæði erufikt eða skrípalœti, aðeins reykur eða lykt af öllu, sem ég gæti. Eins og þið vitið sjálfsagt, var ég kennari lengi, og leið- beindi mörgum nemendum við nám. Um það get ég sagt út frá eigin reynslu: Eg kom mér vel við krakkana og kunnáttuna glœddi, og prúðmenni og prakkara ég pínulítið fræddi. Ekki meira af eigin kveðskap að sinni, en snúa sér að hagyrðingi mánaðarins, sem ég svo nefni. Að þessu sinni verður Vestfírðingur fyrir valinu. Maður er nefndur Elís Kjaran Friðfinnsson, fæddur í Dýrafírði 1928. Þekktur er hann fyrir fleira en hagmælsku, því að hann hefur unnið þrekvirki í vegamálum með jarðýtu sinni. Gert færan veg um hina svonefndu Vestfírsku Alpa, leiðina milli Arnarijarðar og Dýrafjarðar. Um þetta starf orti Elís Kjaran hina þjóðkunnu vísu: Kafa ég I klof að vana, kanna leiðina. Eg er að fara upp á hana, elsku heiðina. Elísi Kjaran kynntist ég sumarið 1997, er hann vann við að byggja bæ Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, en hann er smiður góður. Hann kvað þar: Frá hafinu leggur hœgan nið; það hjalar við kletta og sanda. I fjörunni báran flaðrar við fjörugrjótið að vanda. Margan erfiðan klett og múla þurfti Elís að kljást við á leið sinni um hina illfæru Vestfírsku Alpa og fékk sigur. Um baráttu sína á þessum vettvangi, orti Elís eftirfarandi ferhendu, sem ekki þarfnast frekari skýringa: Snúast sumar snörurnar, - snjöll eru svör hjá mörgum. Eg er að fara á fjörurnar jyrir Siggu á Björgum. Á Hrafnabjörgum bjó lengi ein, Sigríður Ragnarsdóttir (1924-1998). Yrkisefni Elíss Kjarans eru mörg, en ég held, að vísur hans um baráttuna við ófærumar verði að sitja í fyrirrúmi í þessum vísnaþætti, en þar hefur hann unnið mikið þrek- virki, sem ber að meta að verðleikum. Um þetta starf sitt yrkir Elís Kjaran; Okkur hjá er andinn frjáls undir Skútabjargi. Tönninni í hillu háls hjó ég - líkur vargi! Bratta vanur. - Brekkuslóð beittir sporar tróðu. Heima er bezt 599

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.