Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.04.1940, Blaðsíða 13
BLYSIÐ
11
Ég hafði eitthvað heyrt getið um
pessi allsherjar mötuneyti, þar
sem nælurflakkarar safnast sam-
an með allskonar iófögnuði. "Ég
gekk að einum pessara stóru
kassa og bjóst við, að mér yrði
rétt heit pylsa. En pað brást ai-
deilis. Maðurinn við kassann
sagðist kalla á lögregluna, ef ég
hypjaði mi|g ekki í blurtu, og það
á stundinni. Ég varð hræddur, því
að ég kærði mig ails ekki um
ókeypis fæði og húsnæði á „Hó-
tel de la Police“, eins og mér
er sagt, að Grænlendingar kalli
])að, og ég hljóp eftir Austur-
stræti, eins og ég væri með lif-
andi fjörfisk á bakinu. Par mætti
ég sál'uhjálparhernum, sem kom
par og peytti lúðrana í ákefð-,
en j)ar varð ég ekkert hrædd’ur,
pví að ég vissi sállu minni fylii-
lega borgið.
Nú gekk ég þarna, rauður eins
og karfi, innan um eintómar
blómarósir, en óhöpp geta alltaf
komið fyrir í Reykjavík, ekki
isízt á „rúntinum“. Fyrir fram-
an H'óiel ís'and rakst ég nefni-
lega á miðaldra maddömu, —
í feitara lagi. - Var það högg
mikið, og munaði minnstu, að
við féllum bæði í rot. Ég, sem
er mjög kurteis að eðlisfari, ætl-
aði að bem fram einhverja af-
sök'un, en ég hlýt að hafa verið
ringlaður, því að ég gerði það
með þessum orðum: „Fyrirgefið
þér, gulltunna góð. Meidduð þér
yður nokkuð að ráði?“ En hún
varð bara. öskuvond, þreif regn-
hlif eina heljarmikla og rak mér
eitt vel útílátið högg i ha’usinn.
Ég riðaði við, tók ofan og hélt
áfram göngu minni. En sjálf-
sagt hefi ég slagað eilítið, því
að allt í einu kemur himnastigi
í einkenniisbúiningi á m-óti mér
og segir þrumandi röddu:
„Korndu með mér í Steininn,
lagsi, þú ert fullur“. Hér þýddi
ekki neitt að malda í móinn,
ég var sleginu í rot og fluttur í
Steindmn. Þar fannst mér ég vera
látinn í einhvern afvötnunarklefa.
Ég fann vatn vætlaum andlit mér,
en um leið vaknaði ég. — Stend-
ur • þá ekki hún Búkolla og er
að sleikja mig í framan, en ein-
hversstaðar í fjarska heyri ég
rödd húsbóindans þruma:
„Liggurðu nú aftur steinsof-
andi r fl'órnum, letinginn þinn?"
Og þar með var draumurinn
búinn. f
En nú sit ég uppi á baðstofu-
lofti og er að pára þetta við
kertalj-ós og bíð eftir því, að
draumurinn verði að veruleika.
G. Gunnlaugsson.
Munið að útbreiða
BLYSIÐ!
4-------------------------«