Blysið : skólablað Gagnfræðaskóla Austurbæjar - 01.04.1940, Blaðsíða 16
14
B L Y S I Ð
Feigur Fallandason:
Og skattstjórinn sjálfur
skrifaði mér.
Einn daginn fékk ég bréf,
aldrei þessu vant. Bréfið var
snyrtilegt, enda frá snyrtilegum
manni, sem sé, hvorki meira né
minna en sjálfum skattstjóran-
um. Þar kvartaði hann yfir því,
að skattskýrsla mín hefði verið
slælega útfyllt, og alls ekki
fuilnægjandi, hvað sundurliðun
snerti. Þessar ávítur særðu
sómatilfinningu mína, svo að ég
greip mitt fallega Hitlersskegg
og strauk mér um sveittan
skallann í sömu andránni. Þreif
síðan Pelikanann minn, það er
að segja pennan minn, deif hon-
um á bólandi kaf í svarta hafið
bláa, ég meina auðvitað blek-
byttuna og rissaði skattstjór-
anum bréf það, sem hér fer á
eftir, Að ég læt ykkur heyra
það, kemur til af því, að ég
held, að það kunni að verða
ykkur til uppbyggingar og
verðugrar áminningar. Bréfið
hljóðaði svo, í helztu tónunum:
,,Háæruverðugi herra skatt-
stjóri!
Sem löghlýðinn ríkisborgari,
þ. e. á móti öllum landráða-
mönnum, leyfi ég mér, samkv.
beiðni yðar, að rita yður ná-
kvæmari skýrslu yfir eignir
mínar, gjöld og tekjur, svo og
aðrar upplýsingar, sem ég tel,
að þér þurfið að vita um. Eg
heiti Feigur Fallandason og bý
á Melamel 10, fjórðu hæð til
vinstri. Það er gengið inn um
bakdyrnar, og þér skuluð vara
yður á hurðinni, það er bölvað
að opna hana. Svo megið þér ó-
mögulega verða skelkaður, þótt
braki dáhtið í stiganum upp til
mín. Ég er atvinnulaus, en í
rauninni misheppnað skáld og
vængbrotinn hugsjónamaður. —
Ég er ógiftur, þrátt fyrir margar
erfiðar tilraunir við að krækja
í konu. Á fyrir engum að sjá
nema sjálfum mér, og varla það.
En ég kem nú að því seinna.
Svo koma þá eignirnar. Og 1
sambandi við þær verð ég að
biðja yður að virða viljann fyrir
verkið.
Efnin í líkamanum, svo sem
vatn, járn, fosfór, kalk. súrefni